11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (603)
58. mál, notkun almannafjár til tækifærisgjafa
Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 58 að bera fram fsp. til forsrh. um reglur um notkun almannafjár til tækifærisgjafa. Það var 18. apríl 1985 sem samþykkt var hér á Alþingi þál. sem orðaðist svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að setja reglur sem kveða á um að takmarka notkun almannafjár til tækifærisgjafa hjá stofnunum í eigu ríkisins.“
Þar sem nú er liðið um það bil eitt og hálft ár síðan Alþingi samþykkti þessa ályktun og mér er ekki kunnugt um að slíkar reglur hafi verið settar er nú spurt:
„Hafa verið settar reglur um notkun almannafjár til tækifærisgjafa, sbr. ályktun Alþingis frá 18. apríl 1985?“