11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (604)
58. mál, notkun almannafjár til tækifærisgjafa
Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Já, slíkar reglur hafa verið settar.
Eftir að umrædd ályktun var samþykkt ritaði ég ríkisendurskoðanda og óskaði eftir því að hann gerði tillögur um reglur. Þær bárust í nóvember 1985 og þær voru samþykktar í ríkisstjórninni 26. nóv. 1985, kynntar ráðuneytisstjórum og ríkisendurskoðanda falið að fylgjast með því að þeim yrði framfylgt. Reglurnar eru þannig:
„1. gr. Óheimilt er að verja fé ríkisins til tækifærisgjafa nema í þeim tilfellum sem um ræðir í 2. og 3. gr.
2. gr. Í sambandi við opinberar og óopinberar heimsóknir er heimilt að gefa gjafir í samræmi við venjur er myndast hafa.
3. gr. Ráðherra getur í sérstökum tilfellum heimilað gjafir sem viðurkenningu fyrir gott starf í þágu ríkisins, enda sé verði þeirra í hóf stillt.“
Ég kynnti mér hvað við væri átt með 2. gr. og var fullvissaður um að það væru mjög fastar venjur sem hafa skapast um opinberar heimsóknir og yfirleitt væri um mjög hóflegar gjafir að ræða, bækur og þess háttar hluti eða íslenska muni sem ekki væru dýrir.
Jafnframt er ekki heimilt að gefa starfsmönnum gjafir nema með samþykki ráðherra og þá í því einstaka tilfelli að um sérstaka viðurkenningu sé að ræða og verði sé stillt í hóf.