11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 740 í B-deild Alþingistíðinda. (605)
58. mál, notkun almannafjár til tækifærisgjafa
Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ef ég hef skilið svörin rétt hafa verið settar reglur sem kveða á um að opinberar stofnanir til að mynda, ef ég hef tekið rétt eftir, hafa ekki heimild til að nota almannafé til tækifærisgjafa nema með samþykki ráðherra. Ég bið ráðherrann að leiðrétta mig ef það er ekki rétt. Mér skilst að reglurnar kveði á um að hafa þetta í samræmi við venjur sem myndast hafa. Nú höfum við fyrir okkur dæmi, hæstv. ráðh., um mjög óeðlilega notkun á almannafé til tækifærisgjafa þannig að það verður að leyfa sér að vænta að slík viðmiðun verði ekki höfð að leiðarljósi.
Víða erlendis hafa verið settar slíkar reglur, t.d. í Noregi og Danmörku, og þar eru tækifærisgjöfum settar mjög þröngar skorður og má segja að slíkar gjafir séu að jafnaði ekki meira en 1–5 þús. kr. virði. Þar er miðað við fasta fjárhæð. En sú leið hefur ekki verið valin í þessu tilfelli. Þess ber þó að vænta að þessar reglur, sem settar hafa verið, veiti ákveðið aðhald í þessu efni.
Það þekkist líka víða erlendis að settar eru reglur sem banna embættismönnum og stjórnmálamönnum að þiggja gjafir frá viðskipta- og hagsmunaaðilum í tengslum við störf sín. Það hefur komið fram í umræðum um þessi mál og menn hafa velt því fyrir sér hvort nauðsynlegt væri að setja slíkar reglur eða lög hér á landi. Að vísu var ekki um það beðið í þessari ályktun frá Alþingi, en ég held að það væri fróðlegt í tengslum við þessa umræðu að fá fram afstöðu hæstv. forsrh. til þess hvort hann telur rétt að setja slík lög og reglur að því er það ákvæði varðar hér á landi einnig.