15.10.1986
Neðri deild: 3. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (61)

18. mál, kosningar til Alþingis

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég skal vera stuttorður.

Í fyrsta lagi vil ég segja það vegna orða hv. 3. þm. Reykv. að það, eins og hann veit, var aldrei ætlunin að nota þær reglur, sem komu fram í almennu kosningalögunum, í sveitarstjórnarkosningum. Um það var samið í upphafi. Eftir reglum um kosningar í sveitarstjórnir var farið við síðustu sveitarstjórnarkosningar og það er að sjálfsögðu d'Hondt reglan. Í því kerfi er fræðilegur möguleiki að minni hluti kjósenda geti náð meiri hluta í sveitarstjórnarkosningum. Það er sú regla sem hefur verið í kosningalögum um árabil og heldur áfram að vera í lögum um kosningar til sveitarstjórna.

Í öðru lagi er öllum ljóst og ekki síst formanni Alþb., hv. þm. Svavari Gestssyni, að stjórnarskrárnefnd er ekki að fjalla um kosningatilhögun. Við lítum svo á, og ég held að allir hafi áttað sig á því, hann einnig, að kosningamálefnin, þ.e. tilhögun kosninga, séu til umfjöllunar á Alþingi en ekki í stjórnarskrárnefnd. Það eru auðvitað fjöldamörg önnur málefni er varða stjórnarskrána sem eru til umfjöllunar í stjórnarskrárnefnd. Ég gef hins vegar ekki frekar en hv. þm. og formaður Alþb. getið mér til um hvað starf nefndarinnar er komið langt.

Það sem skiptir máli, og það er þess vegna sem ég opnaði þessar umræður eftir að hæstv. ráðh. hafði mælt fyrir frv., er að vekja athygli á því að þetta er í þriðja skiptið sem við gerum tilraun til að ná fram breytingum á nýsettum kosningalögum. Það hafa allir í orði kveðnu lýst því yfir að þeir séu tilbúnir að ganga til þess verks, en þegar á hólminn hefur komið finnst mér stundum að á hafi skort að menn hafi þorað að ræða þær hugmyndir til hlítar. Við skulum átta okkur á því að þegar um þessa nýju tilhögun var samið á sínum tíma kom fram sú hugmynd eða tillaga frá þeim sem fóru með formennsku hjá minni stjórnmálaflokkunum, Alþfl. og Alþb., að þeir ættu verulega möguleika á því í nýju kosningakerfi að fá þm. kjörna í minnstu kjördæmunum, þurrkuðust ekki út í minnstu kjördæmunum. Þetta varð til þess að stærri flokkarnir eiga meiri möguleika á því að fá fleiri menn kjörna en þeir eiga skilið samkvæmt sínu hlutfalli í stærri kjördæmunum. Þetta sjónarmið var staðfest með þeim kosningalögum sem í gildi eru.

Ég held að ég fari ekki rangt með og ég held að það hafi verið upplýst og komið fram á opinberum vettvangi að það mun einkum vera innan þingflokks Alþb. sem um þetta mál hefur verið deilt. Þegar ég opnaði þessar umræður áðan var það til að átta mig á því hvort það þýddi nokkuð að vera að ræða þetta mál með það að yfirlýstu markmiði að ná svokölluðu víðtæku samkomulagi um lausn málsins, hvort Alþb. væri tilbúið til að hverfa frá þeim hugmyndum sem eru í núgildandi lögum. Ég heyrði það af ræðum hv. þm. Páls Péturssonar og hv. þm. Kjartans Jóhannssonar að Alþfl. og Framsfl. eru tilbúnir að gera þetta, en mér fundust svör formanns Alþb. ekki vera nægilega skýr. Þess vegna kann það að gerast að meiri hluti myndist um breytingar á þessum lögum. Það verður skoðað í þeirri nefnd sem fær þetta mál til meðferðar og engin ástæða er til þess á þessu stigi að kveða of sterkt að orði.

Aðalatriði málsins er að vekja athygli á því að við erum í blindgötu með þetta mál. Kerfið, sem á að kjósa eftir, er flókið. Það er hægt að einfalda það ef menn ganga til þess verks.

Ég er því líka sammála, sem hér hefur komið fram, að þetta verður að gerast fyrir jól og ef ekki næst samkomulag eða myndast meiri hluti er eins gott að lýsa því yfir þá þegar að það verði kosið eftir gildandi lögum óbreyttum og kynna þá það kerfi sem kjósa á eftir eins og hv. þm. Svavar Gestsson lagði til. (PP: Gildandi lögum svo breyttum.) Gildandi lögum breyttum þannig að þau séu í samræmi við stjórnarskrá. Það er eina brtt. sem við samþykktum að flytja á s.l. vori. Ég tel að um frv. sem hér liggur fyrir sé full samstaða allra þingflokkanna. Það er ekki vandamálið. Eina breytingin sem í frv. felst og fjallar raunverulega um kosningakerfið er að breyta kosningalögunum til samræmis við stjórnarskrárákvæði. Það er það allra minnsta, held ég, sem þingflokkarnir geta komið sér saman um, að virða stjórnarskrá landsins.