11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (613)

59. mál, húsnæðissparnaðarreikningar

Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Í tengslum við fsp. og þann formála sem ég hafði að mínu máli áðan beindi ég því til hæstv. félmrh. hvort hann teldi ekki rétt og eðlilegt í ljósi þeirra upplýsinga sem fram hafa komið í þessu máli að hann styddi þá brtt. sem hans ráðuneyti, félmrn., lagði fyrir félmn. á síðasta þingi. Ég sagði að ég mundi aftur í ljósi þessara upplýsinga leggja fram frv. og ég beindi því til ráðherra hvort hann vildi ekki styðja það mál. Ég óska eftir að ráðherra svari því við þessa umræðu.