11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (622)
111. mál, bann við tilraunum með kjarnavopn
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Á þskj. 114 hef ég leyft mér að bera fram svofellda fsp. til hæstv. utanrrh.:
„1. Hver er afstaða ríkisstjórnarinnar til áframhaldandi tilrauna Bandaríkjamanna með kjarnavopn?
2. Hvað hefur ríkisstjórnin aðhafst í þessu efni á grundvelli samþykktar Alþingis frá 21. maí 1985 um stefnu Íslendinga í afvopnunarmálum?“
Þetta er fsp. Bakgrunnur hennar er m.a. sá að 30. júlí 1985 lýstu Sovétríkin yfir einhliða stöðvun tilrauna með kjarnorkuvopn neðanjarðar í sex mánuði og hafa síðan framlengt slíkt tilraunabann margsinnis til þessa dags. Ég hygg að fresturinn, sem Sovétmenn settu síðast, gildi til komandi áramóta. Bandaríkjastjórn hefur hins vegar ekki tekið undir áskoranir úr mörgum áttum, þar á meðal frá Bandaríkjaþingi, um að stöðva af sinni hálfu tilraunir með kjarnorkuvopn og hefur gert 18 slíkar tilraunir á sama tíma og Sovétríkin hafa haldið að sér höndum.
Daginn eftir að leiðtogafundur var ákveðinn milli Reagans og Gorbatsjoffs hér í Reykjavík þann 30. sept. sprengdu Bandaríkjamenn í Nevada og nú síðast 15. október skömmu eftir leiðtogafundinn. Það er ekkert sem fram hefur komið af þeirra hálfu um að Bandaríkjastjórn hyggist binda endi á tilraunir af sinni hálfu.
Þessar tilraunir af hálfu Bandaríkjamanna eru að mínu mati storkun gagnvart almenningsáliti heimsins og þær eru að hluta til liður í geimvopnarannsóknum sem komu í veg fyrir víðtækt samkomulag risaveldanna um afvopnun á Reykjavíkurfundinum.
Ég vænti þess að það komi hér fram frá hæstv. utanrrh. skýr viðbrögð í þessu máli og varðandi hans stefnu og stefnu ríkisstjórnarinnar í heild til þessa stóra máls.