11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í B-deild Alþingistíðinda. (624)
111. mál, bann við tilraunum með kjarnavopn
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Það kom skýrt fram í svari hæstv. utanrrh. að hann styður í reynd áframhaldandi tilraunasprengingar af hálfu Bandaríkjamanna með kjarnavopn. Hann tekur ekki undir samhljóða ályktun Alþingis. Ég leyfi mér að vitna til samþykktarinnar frá 23. maí 1985:
„Alþingi ályktar að beina því til ríkisstjórnarinnar að styðja og stuðla að allsherjarbanni við tilraunum, framleiðslu og uppsetningu kjarnavopna undir traustu eftirliti.“
Þetta er skýr samþykkt af hálfu þingsins. En hér kemur hæstv. utanrrh. og vefur stuðning sinn við áframhaldandi tilraunasprengingar af hálfu Bandaríkjanna í þann búning sem við heyrðum hann gera áðan. Segir: Þetta er svo flókið mál, þetta á að tengjast afvopnunarviðræðunum og það þarf að gæta þess að þær afvopnunarviðræður raski ekki einhverju jafnvægi. Þetta er dæmalaus málflutningur sem við heyrum hér. Og ég spyr: Er samstarfsflokkur sjálfstæðismanna í ríkisstjórn, Framsfl., sammála þessari niðurstöðu? Væntanlega munar hæstv. utanrrh. ekkert um að svara fyrir Framsfl. því það er spurt um afstöðu ríkisstjórnarinnar. Og hér eru framsóknarþingmenn viðstaddir og gefst færi á örstuttri athugasemd undir þessum dagskrárlið.
Vegna eftirlitsins, herra forseti, er nauðsynlegt að rifja upp að að frumkvæði bandarískra aðila og þingmannasamtaka hefur verið tekið á þessu máli með þeim hætti að Sovétríkin hafa boðist til að heimila eftirlit sem að mati þessara aðila er fullgilt, að hleypa eftirlitsaðilum með mælitæki nálægt sínum rannsóknarstöðvum og sínum tilraunastöðvum með kjarnavopn, en það var athyglisvert að þegar hópur Sovétmanna átti að fara vestur til þess að koma álíka vinnu í gang þar og komast að því hvort Bandaríkjastjórn að sínu leyti væri ekki reiðubúin, þá voru settar hindranir í veg fyrir þá aðila eftir því sem fréttir hermdu.
Ég held að það liggi fyrir og mönnum sé ljóst að það er komið fram, og það er mjög stórt í þessu máli, vilji af hálfu Sovétríkjanna til að opna fyrir eftirlit. Nú vil ég ekki kveða úr um það neitt endanlega hvort það er fullgilt það eftirlit, en þær raddir hafa komið fram frá aðilum sem ekki er ástæða til að ætla að séu að hlaða undir hið sovéska herveldi og aðstöðu þess.
Að endingu aðeins þetta: Þessi afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar, sem hér birtist í svari hæstv. utanrrh., er hneyksli. Ísland styður áframhaldandi tilraunasprengingar Bandaríkjanna eftir að hitt risaveldið hefur haldið að sér höndum síðan á miðju ári 1985.