11.11.1986
Sameinað þing: 15. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (637)

Skemmdarverk á eignum Hvals hf.

Gunnar G. Schram:

Herra forseti. Svo sem alþjóð er kunnugt hafa þau ótíðindi gerst nú um helgina að skemmdarverkamenn hafa raðist inn í íslenska lögsögu, sökkt tveimur skipum hér í Reykjavíkurhöfn og valdið milljónatjóni á eignum Hvals hf. í stöð félagsins í Hvalfirði.

Alda hryðju- og skemmdarverka hefur gengið yfir álfuna á undanförnum árum. Við Íslendingar höfum átt því láni að fagna að sú óbótastarfsemi hefur ekki náð til okkar lands fram til þessa. En nú er komið að vatnaskilum í þessum efnum. Fjarlægðin og fámennið verndar okkur ekki lengur gegn alþjóðlegum flugumönnum. Útsendarar öfgahópa og hryðjuverkasamtaka hafa á laun ruðst inn í íslenska lögsögu, brotið gegn fullveldisrétti íslenska ríkisins og framið hér gróf hegningarlagabrot.

Forustumenn Sea Shepherd-samtakanna hafa nú þegar lýst sök á hendur sér og jafnframt greint frá því að þeir muni halda áfram að fremja skemmdar- og hryðjuverk hér á landi í þeim tilgangi að þvinga Íslendinga til að stöðva hvalveiðar, sem í alla staði eru löglegar og við höfum fulla heimild til frá ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í júní í sumar.

Þessar hótanir, þessi skemmdarverk hljóta að kalla á tvenns konar viðbrögð af hálfu okkar Íslendinga og þá fyrst og fremst af hálfu íslenskra löggæsluyfirvalda.

Í fyrsta lagi verður að neyta allra þeirra ráða sem tiltæk eru til að hafa hendur í hári þeirra tilræðismanna sem úr landi komust síðdegis á sunnudag og þá íslenskra samverkamanna þeirra ef um þá er að ræða. Dómsmrn. er kunnugt um hvaða einstaklingar það voru sein úr landi fóru, breskur og bandarískur ríkisborgari, og með samvinnu og liðsinni Interpol og yfirvalda hlutaðeigandi ríkja verða íslensk yfirvöld að krefjast þess að mennirnir verði handteknir og framseldir hingað til lands til refsingar skv. íslenskum lögum. Lagaflækjur munu e.t.v. koma í veg fyrir að það verði hægt, en þá verður að gera þá kröfu að hlutaðeigandi yfirvöld í löndum þar sem þessir menn eru búsettir og ríkisborgarar dragi þá fyrir dóm og refsi þeim fyrir þau brot sem þeir hafa framið hér á landi.

En það er annar þáttur þessa máls, herra forseti, sem er ekki síður alvarlegur og ástæða er til þess að undirstrika alveg sérstaklega. Atburðir helgarinnar sýna okkur svart á hvítu að framkvæmd öryggismála hér innanlands er greinilega mjög ábótavant. Íslensk löggæsluyfirvöld verða að taka upp nýja og breytta starfshætti og vera mun betur á verði en hingað til að því er varðar komur útlendra manna hingað til lands. Rannsókn á skýrslum Útlendingaeftirlitsins í gær hefur sýnt að 2–3 menn sem tengjast samtökum Paul Watson hafa verið hér á landi síðustu 2–3 vikurnar. Því miður komst sú vitneskja ekki til skila fyrr en mennirnir voru allir á bak og burt.

Þetta mál hlýtur því að verða til þess að grundvallarbreytingar verði gerðar í þessum efnum til að koma í veg fyrir að erlendir skemmdar- og hryðjuverkamenn eigi greiða leið inn í landið sem saklausir skemmtiferðamenn eða náttúruskoðarar. Á því máli verður að taka þegar í stað af öryggi og festu.

Að lokum vil ég beina þeirri spurningu til hæstv. forsrh., sem nú gegnir störfum dómsmrh., hvaða ráðstafanir íslensk stjórnvöld hafi nú þegar gert til að koma lögum yfir hina erlendu skemmdarverkamenn og á hvern hátt þau hyggjast tryggja að unnt verði að verja land og þegna fyrir erlendum hryðjuverkamönnum í framtíðinni.