11.11.1986
Sameinað þing: 15. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
Skemmdarverk á eignum Hvals hf.
Gunnar G. Schram:
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að flytja forsrh. þakkir mínar fyrir þau svör sem hann gaf hér vegna þess máls sem ég tók hér til umræðu í upphafi, þ.e. hvernig bregðast beri við þeim spellvirkjum sein átt hafa sér stað nú fyrir örfáum dögum.
Það er gott til þess að vita að ríkisstjórnin mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að fá þá aðila sem þarna eiga hlut að máli framselda til refsingar hér á landi eða þá í sínum heimalöndum. Það er hins vegar oft erfitt um vik við slíkt framsal. Það eru ýmsar lagaflækjur sem snjallir lögfræðingar geta þar fram borið til að tefja mál og til að eyða málum. það er kannske ekki meginatriðið fyrir okkur í dag að við komum höndum yfir þá tvo eða þrjá útlendinga sem þarna áttu hlut að máli þó að það sé vitanlega sjálfsagt og nauðsynlegt að gera allt sem hægt er til þess.
Meginmálið er það að þessir atburðir sýna, eins og einhver orðaði það í umræðunum áðan, að við erum ekki lengur smáþjóð lengst úti í hafsauga sem getur sett allt sitt traust á að hún sé saklaus og hrekklaus. Við erum komin inn í hringiðu alþjóðastjórnmála, eins og nýliðnir atburðir, leiðtogafundirnir, sýna, og við erum líka komin inn í hringiðu alþjóðamála að því er varðar spellvirki og hryðjuverk. Þessir atburðir eru þess vegna því miður tímamótandi atburðir í þjóðarsögu okkar. Þess vegna er það meginatriðið að þessir atburðir sem gerðust nú á aðfaranótt sunnudags verði til þess að við tökum upp nýja og breytta stefnu í öryggismálum þjóðarinnar, öryggismálum þjóðarinnar inn á við.
Lögregluríki viljum við ekkert stofna á Íslandi. En það er langur vegur frá því til þess að sýna sjálfsagða varúð og gætni, að taka upp sjálfsagt samband við þá erlendu aðila sem vita um ferðir spellvirkja og skipulag hryðjuverkasamtaka.
Ég bendi einnig á það í þessu sambandi, þegar við ræðum það sem nýlega hefur skeð, hvernig háttað er öryggi æðstu stofnana íslenska lýðveldisins. Við vitum að hér á þingpöllum sitja og standa mjög knáir þingverðir, hvort þeir eru til mikilla átaka eða vopnaðra andsvara veit ég ekki. Hvernig er varið gæslu ríkisstjórnar, ráðherra og forsetaembættisins á Bessastöðum og hér í Reykjavík? Mér vitanlega er málum þar háttað á allt annan hátt en tíðkast hjá nokkrum nálægum þjóðum. Þess vegna held ég að það sé kominn tími til að sú nefnd sem forsrh. nefndi áðan skili hið fyrsta áliti og að það álit verði þess eðlis og þess efnis að gripið verði til ráðstafana sem eru sjálfsagðar í þessum efnum og aðrar þjóðir hafa fyrir löngu komið á fót hjá sér.