12.11.1986
Efri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (679)

125. mál, opinber innkaup

Iðnaðarráðherra (Albert Guðmundsson):

Virðulegur forseti. Eins og kom fram í frumræðu hæstv. fjmrh. er hér um að ræða frv. sem var undirbúið að nefnd sem ég setti á laggirnar sem fjmrh. í þann tíma. Á þetta hefur verið nokkuð deilt eða athugasemdir komið fram hjá til að mynda hv. 11. þm. Reykv. Ég vil reyna að leiðrétta hana — ég held að hún átti sig ekki á hvað hér er um að ræða og eins gera athugasemd við frv. sem ég vona að hæstv. fjmrh. heyri.

Það er best að taka 1. gr. fyrst þar sem segir: „Tilgangur þessara laga er að tryggja hagkvæmni í rekstri ríkisins að því er varðar kaup á vörum og þjónustu til rekstrar og framkvæmda. Opinber innkaup heyra undir fjmrn.“

Við skulum gera okkur grein fyrir því að opinberum innkaupum er ekki bara stýrt af Innkaupastofnun eða stofnunum sem eru annaðhvort í innkaupum eða framkvæmdum. Innkaupunum er stýrt af þeim sem gera verklýsingu eða vörulýsingu. Ég skal taka dæmi: Þegar ég var um tíma í stjórn — nokkur ár, ein átta eða tíu ár-Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar var eitt af stærstu vandamálum stjórnarinnar að fá t.d. arkitekta og hönnuði til þess að gera hlutlausar lýsingar, verklýsingar og innkaupalýsingar fyrir byggingar. Sem dæmi voru flestallar útboðslýsingar með skilyrðum um að Höganes-flísar númer þetta og þetta skyldu notaðar á þessum og hinum staðnum. Það voru mál á hólfum í eldhúsi fyrir ísskápa eftir ákveðnum tegundum. Þannig að það var útilokað að kaupa annað á veggi en Höganes-flísar, það var útilokað að kaupa aðra skápa eða eldavélar en þær sem pössuðu í viðkomandi málsett hólf á teikningum. Þannig að allir aðrir framleiðendur í veröldinni voru útilokaðir. Þessu var breytt. Og stjórn Innkaupastofnunarinnar heimtaði hlutlausar verklýsingar og innkaupalýsingar, þannig að allir gátu boðið í sem framleiddu.

Varðandi 2. gr. vil ég segja það að ég get ekki sætt mig við þriggja manna stjórn. Ég get ekki sætt mig við það að tveir menn geti komið sér saman um að ráða innkaupum. Það hefur farið fram hjá mér við gerð þessa frv. þegar það var kynnt í ríkisstjórninni, en hér hafði ég lagt til sem fjmrh. að þarna yrði a.m.k. fimm manna stjórn. Það er gott að hafa í stjórn slíkrar stofnunar menn úr öllum stjórnmálaflokkum því að þetta er pólitískt kjörin stjórn og ekki rétt að hafa þá ábyrgð á herðum innkaupaforstjóra að taka allar ákvarðanir án aðstoðar stjórnar.

Hér í 3. gr. er talað um, og reyndar í öðrum greinum, að stjórn opinberra innkaupa sé jafnframt stjórn innkaupastofnunar: „Innkaupastofnunin annast innkaup fyrir allar stofnanir og fyrirtæki ríkisins.“ Þetta er ekki gert til þess að flækja málin, alveg þveröfugt. Þetta er gert til þess að gera mönnum kleift að gera góð tilboð í mikið magn. Við skulum bara taka það sem stjórnarandstaðan á sínum tíma — til að hjálpa stjórnarandstöðunni hérna því hún er sú sama og var þá í Reykjavíkurborg — þá var tekið sem dæmi, og átti að vera til þess að lítillækka þá sem voru með tillöguna, klósettpappír. Klósettpappír er notaður í öllum stofnunum borgarinnar. Klósettpappír er notaður í öllum stofnunum ríkisins. Þið getið ímyndað ykkur það magn sem er notað alls staðar þar sem ríkið er með rekstur. Hvort haldið þið að sé ódýrara að gera heildarinnkaup fyrir allt það magn sem þarf að nota á vegum ríkisins yfir allt árið og hafa það svo hér á vörulager án kostnaðar, án fjárfestingar ríkisins, ríkið skuldbindur sig bara eftir útboð til að kaupa af lager lægstbjóðanda á þessu viðkomandi útboðsári, eða að kaupa í litlu magni af versluninni á horninu jafnvel þó einhver afsláttur sé frá útsöluverði?

Hér var gerð athugasemd við 5. gr. Ég held að 5. gr. sé nokkuð góð. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Innkaupastofnun ríkisins annast innkaup á vörum og þjónustu fyrir ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki, rannsakar sameiginlegar þarfir á vörum og þjónustu og beitir sér fyrir samræmdum innkaupum á vörum til þarfa ríkisins.“ Það á við um þetta, sem ég var að segja, fyrir utan annað, að þarna fer fram faglegt mat eins og hæstv. fjmrh. var að segja áðan að maður ætti að leita til fagmanna. Það þarf faglegt mat á því hvað stofnun miðað við stærð og mannfjölda þarf mikið magn af viðkomandi vörutegundum, hvað það þarf mikið magn yfir árið. En það er mjög mikið umframmagn sem er keypt í mörgum stofnunum, það vitum við, til þess að fyrirbyggja að vöruna geti nokkurn tíma vantað. Ég er með í huga það sem kom út úr slíkri könnun og slíkri skoðun þegar fagmenn voru fengnir til að rannsaka hvort rétt var staðið að innkaupum á filmum t.d. til röntgendeilda. Þá kom upp úr kafinu að það var mikill munur á því að gera innkaup beint eða gera innkaup eftir tilboðum. Og það kom líka upp úr kafinu að ýmsir framleiðendur vildu kaupa silfur til baka sem enginn í stjórn Innkaupastofnunar vissi hvernig var með farið áður. Það var hægt að selja framleiðendum til baka það silfur sem gekk af í ónýtum filmum og stórsparaði stofnuninni fé. Það eru þessar kannanir og svona innkaup, þegar fagmenn koma nálægt hlutunum, sem gera það að verkum að stofnanirnar spara stórfé. Það er tilgangur hæstv. fjmrh. með þessu frv.

Og að sjálfsögðu — eins og segir áfram í 5. gr. ef viðkomandi stofnanir vilja flytja inn vöruna sjálfar geta þær fengið viðskiptalega aðstoð og leiðbeiningar hjá fagstofnuninni sem er þessi innkaupastofnun.

Síðasta setningin sem hv. 11. þm. Reykv. gerði að umtalsefni hljóðar svo, með leyfi forseta: „Stofnunin ráðstafar eigum ríkisins sem ekki er lengur þörf fyrir.“ Eignum, þ.e. fasteignum — ég er ekki að tala um eignir, ég er að tala um eigur ríkisins verður ekki ráðstafað nema með samþykki Alþingis. Fjmrh. þarf að fá heimild Alþingis, eins og við öll hér vitum, skv. 6. gr. fjárlaga til þess að ráðstafa eignum ríkisins. En eigur ríkisins — það er allt annað hugtak í þessu tilfelli. Við skulum segja að við skiptum um einhvern hlut, endurnýjum einhvern hlut, og gamli hluturinn er nothæfur, hann er enn þá söluvara á einhverju verði. Það er það að vita hvað verður um allt það verðmæti sem er í þeim hlutum sem við erum að skipta um. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar setti á stofn slíka „skransölu“ skulum við segja. Ég veit ekki annað en að hún hafi borgað sig allsæmilega. Aftur á móti, þó að ég hafi verið fjmrh. um tíma, er mér ekki alveg ljóst hvernig þau mál ganga á vegum ríkisins. Ég hef svona óljósa hugmynd um það en það er ekki í eins föstu formi eins og hjá Reykjavíkurborg núna þó að mikið vanti upp á að það sé í lagi þar vegna þess að við höldum að strax og við erum búin að fá eitthvað nýtt í hendurnar getum við hent því sem gamalt er þó það sé hálfslitið eða hálfnotað.

Síðan kemur 6. gr. þar sem segir, með leyfi forseta:

„Innkaupastofnunin skal viðhafa þá meginreglu að kaupa ekki inn aðrar vörur en þær sem fyrir fram er vitað að ríkisstofnanir þarfnast eða þær hafa pantað hjá stofnuninni.“

Ég kem aftur að því sem ég sagði áðan, að menn viti hvað eru eðlileg innkaup hjá stofnun í hverju sem er og að ekki sé pantað meira en þörf er á, að það haldi ekki áfram að eiga sér stað að Innkaupastofnun ríkisins sé einhvers konar heildverslun á sumum sviðum. Það var hún, hvort sem hún er það nú eða ekki, ég skal ekkert um það segja. Hún á ekki að vera heildverslun og ríkið á ekki að fjárfesta í vörum umfram það sem þörf er á.

„Þeirri meginreglu“ segir svo áfram, með leyfi forseta, „skal fylgt að bjóða út kaup á vörum og þjónustu til rekstrar og fjárfestingar.“ Það er óþarfi að fjölyrða um þetta. En hér er ekki hægt að binda í lögum, eins og kom fram hjá hv. 4. þm. Vesturl., að það skuli kaupa allt sem íslenskt er og hægt er að nota. Það verður að vera samkeppni og íslenskur iðnaður hefur aldrei beðið um sérréttindi. Hann hefur beðið um jafnrétti í innkaupum. Við viðurkennum ekki að íslenskur iðnaður sé á neinn hátt verri en erlendur. En við þurfum að yfirstíga þá vantrú sem við öll höfum haft á íslenskum iðnaði og losna við þá fordóma sem fylgt hafa okkur úr forneskju því að íslenskur iðnaður fær gott hráefni alls staðar frá og hann er með sams konar vélar og eru notaðar erlendis og íslenskt hugvit og fólk sem vinnur við vélarnar er ekki síður fært um að vinna sitt verk vel en útlendingar. Þannig að við höfum ekkert þangað að sækja nema ef það skyldi vera verðið sem er innanlandsvandamál. Í því tilfelli hefur ríkið og Reykjavíkurborg líka viðurkennt vissan verðmun á íslenskum afurðum og erlendum og það verður að halda áfram að leyfa þann verðmun. Hver hann verður er reglugerðaratriði hjá hæstv. fjmrh. hverju sinni eða að sjálfsögðu að fengnum tillögum frá stjórn Innkaupastofnunarinnar.

Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta frv. Ég held að þetta sé mjög gott frv. og góð breyting sem hér er vonandi að eiga sér stað. En vegna tímans vil ég ekki taka meiri tíma í að ræða þetta frv. en mæli eindregið með því að menn kynni sér það vel og átti sig á því hvernig þessi innkaup hafa farið fram og hvernig lagersöfnun hefur átt sér stað og hvað hefur orðið um þann lager og hvað hann hefur legið lengi í fjárfestingu áður en til þess hefur komið að hann hefur verið nýttur, og eins hve mikið af nýtanlegum vörum og vélum hefur verið tekið út úr stofnunum og kannske grotnað í geymslu í staðinn fyrir að verða að verðmætum hjá einstaklingum eða einstökum aðilum.