12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 806 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

Skýrsla um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips hf.

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi taka undir þær fyrirspurnir sem komu fram frá hv. 4. landsk. þm. Það er óhjákvæmilegt að fá um það upplýsingar hversu mörg eintök voru gerð af þessari skýrslu og hverjir áttu að fá þau þannig að það liggi alveg hér fyrir þinginu. Ég tel að þingið eigi rétt á því að vita þetta vegna þess að rannsóknarnefndin var ákveðin í framhaldi af umræðu á Alþingi. Það voru fluttar tillögur, bæði í neðri deild og í efri deild, um sérstaka rannsóknarnefnd út af Hafskipsmálinu. Þeim tillögum var hafnað, en því var lofað í ræðum hæstv. viðskrh. og stjórnarliða á sínum tíma að þetta mál kæmi fyrir Alþingi til meðferðar strax og skýrslan væri tilbúin. Í rauninni litu alþm. allir svo á að hér væri verið að vinna skýrslu fyrir þingið. Ég hefði þess vegna talið eðlilegra að hæstv. viðskrh. hefði komið þeim fáu eintökum sem fjölfölduð voru í hendur alþm., formanna þingflokkanna, en að koma þessu í hendur ráðherranna fyrst af öllum mönnum.

Þetta var þingmál og þingleg krafa og það var eðlilegt að hæstv. viðskrh. kæmi málinu þess vegna fyrst til þingsins. Ekki síst er þetta brýnt vegna þess að samkvæmt því sem við höfum séð í fjölmiðlum, m.a. í sjónvarpi ríkisins í gærkvöld, er í skýrslunni mjög þungur áfellisdómur yfir einum aðila í þjóðfélaginu öllum öðrum fremur, en það er Alþingi Íslendinga. Þó ekki hefði verið nema þess vegna en líka vegna forsögu málsins hefði átt að koma þessu plaggi fyrst í hendur forustumanna þingflokka, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu, sem trúnaðarmáli á því stigi ef ráðherra kaus að hafa það svo.

Ég held að hæstv. viðskrh. geti ekki frekar en aðrir hæstv. ráðherrar kvartað yfir því að stjórnarandstaðan hafi misfarið með trúnað sem henni hefur verið sýndur á undanförnum árum. Ég held reyndar að það sé hægt að nefna fáein dæmi um að það hafi jafnan verið farið betur með trúnaðarmál af stjórnarandstöðunni en stjórnarflokkunum og hefur þar verið um að ræða upplýsingaleka eða fréttir jafnvel úr hinum alinnsta hring, að ég fari ekki nánar út í að skilgreina það.

Ég vil beina því til hæstv. viðskrh. í tilefni af þessari skýrslu og þeim áfellisdómi sem þar er um að ræða á Alþingi Íslendinga að umræða um þessa skýrslu fari fram hið allra fyrsta í sameinuðu þingi. Ég skora á hæstv. ráðh. að beita sér fyrir því að sú umræða geti farið fram strax á morgun. Ég held að það sé langeðlilegast, úr því að skýrslan er komin, að hún verði tekin hér strax til umræðu. Ég beini því til forseta okkar í hv. neðri deild að hann beiti sér fyrir því á fundi forseta neðri deildar, efri deildar og sameinaðs þings að umræða geti farið fram um þetta mál strax á morgun á fundi sameinaðs þings þá.

Ég vil a.m.k. fyrir hönd þingflokks Alþb. láta það koma skýrt fram að við óskum eftir því að umræða fari fram hið allra fyrsta um þetta mál. Ég held að það sé nauðsynlegt að þingið fái að fjalla um þetta og þm. að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum strax í upphafi hinnar opinberu umræðu um málið.

Ég ítreka þessar óskir mínar til hæstv. ráðh. og hæstv. forseta og undirstrika svo að við Alþýðubandalagsmenn fluttum till. í báðum deildum þingsins um rannsóknarnefnd á vegum þingsins í þetta mál. Ég held að nýjustu tíðindi málsins undirstriki ákaflega vel að það hefði verið skynsamlegri leið gagnvart þinginu að þingið hefði fengið að fara yfir þetta mál líka til þrautar þegar frá upphafi.