12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (692)

Skýrsla um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips hf.

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég skal verða við óskum forseta um að vera stuttorður vegna þess að það hafa þegar komið fram helstu atriði þess sem ég ætlaði að segja, þ.e. að hér hefur verið lýst því að það voru ýmsir utan ríkisstjórnar sem voru metnir þess virði að fá að sjá þessa skýrslu, svo sem eins og Seðlabanki, bankastjórn Útvegsbanka o.fl.

Ég vil líka geta þess um hvalamálið og vegna umræðna sem urðu um það s.l. sumar að þá var mjög náið samráð allra stjórnmálaflokka. Hæstv. sjútvrh. og hæstv. utanrrh. höfðu samráð við fulltrúa allra stjórnmálaflokka á hverju stigi málsins. Trúnaður var ekki brotinn. Það gátu allir aðilar fylgst mjög nákvæmlega með og ekki síst Alþingi. Við höfum því um það fordæmi að þessi mál gangi vel og að öllum valdaaðilum sé gert jafnhátt undir höfði. Ég tel því að það hafi verið meiri háttar afglöp að formönnum stjórnmálaflokka eða formönnum þingflokka voru ekki afhent eintök af þessari skýrslu í gær. Um leið ítreka ég þær kröfur sem ég hef komið fram með hér áður um að það verði birtur listi yfir þá sem fengu þessi eintök og að það verði kannað hvaðan sú skýrsla kom sem veifað var framan í landsmenn í gærkvöld.