12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (700)
137. mál, verðlag, samkeppnishömlur og órettmætir viðskiptahættir
Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 56 frá 1978 sem fjalla um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti með síðari breytingum.
Hér er um endurflutning á þingmáli að ræða frá s.l. vetri. Þá var í framhaldi af kjarasamningum, sem þá voru gerðir á útmánuðum, allmikil umræða í þjóðfélaginu um nauðsyn á verðlagsaðhaldi og mikið lagt undir í þeim efnum, að skilja mátti, að sjálf forsenda kjarasamningagerðar og efnahagsstjórnar mundi fara eftir því hversu til tækist um verðlagsaðhald í framhaldinu.
Þá var hreyft ýmsum hugmyndum og að mörgu leyti þörf umræða fór fram um stöðu verðlagsmála og verðlagseftirlit, aðhald almennings, um stöðu neytendaverndar og neytendaaðhalds í þessu samhengi og mætti fleira nefna.
Þetta frv. varð til í framhaldi af þeirri umræðu og var flutt til að leggja þessari viðleitni lið að halda aftur af verðhækkunum á vöru og þjónustu. Það gengur út á að skylda seljendur hvers kyns vöru og þjónustu, eins og segir í 1. gr., að gefa upplýsingar um verðbreytingar innan tiltekinna marka og eftir tilteknum reglum sem um það yrðu settar. Með leyfi forseta hljóðar 1. gr. frv. svo:
„Á undan 45. gr. í VI. kafla laganna, sem til er vitnað, komi ný grein, svohljóðandi:
Seljendum hvers kyns vöru eða þjónustu er óheimilt að hækka vöruverð eða gjaldtöku fyrir þjónustu nema það sé sérstaklega tilkynnt. Heimilt er að auglýsa samtímis verðbreytingar til hækkunar eða lækkunar.
Sé vöruverð hækkað er seljanda vöru skylt að auglýsa hækkunina á áberandi hátt á sölustað, nýtt verð ásamt hinu eldra, svo og hvenær hækkunin tekur gildi. Slíkar tilkynningar um verðbreytingar vöruflokka og vörutegunda skulu vera uppi eigi skemur en 14 daga frá gildistöku verðbreytinga.
Hvers kyns hækkanir þjónustuaðila á gjaldskrám skulu tilkynntar með eðlilegum fyrirvara þannig að notendur þjónustunnar megi auðveldlega gera sér grein fyrir verðbreytingunum, hvenær og hve miklar þær verða. Verðlagsstofnun skal setja sérstakar reglur um skyldu seljenda skv. þessari grein.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Síðan segir í grg. að enn séu allar hinar sömu forsendur fyrir hendi sem mæli með ráðstöfunum af þessu tagi og voru á s.l. vetri þegar þær aðstæður voru uppi sem ég hef þegar gert grein fyrir. Það má vera ljóst að forsenda þess að verðmyndun sé eðlileg þar sem um svokallað „frelsi“ er að ræða í álagningu og vöruverði er að nægilegt verðskyn almennings sé fyrir hendi og að kaupendur vöru og þjónustu hafi greiðar og nægar upplýsingar um verðlag. Frv. þetta er sem sagt flutt til að tryggja betur en nú er að mati flm. þennan aðgang almennings að upplýsingum og þar með það aðhald að seljendum sem eðlilegt og nauðsynlegt er.
Í framhaldi af þessu hlýtur sömuleiðis að teljast eðlilegt að viðskiptavinir hafi greiðan aðgang og réttur þeirra sé tryggður til upplýsinga um verðbreytingar, um verðlagsþróun síðustu daga og vikna, í raun og veru hvort sem til lækkunar eða hækkunar er. Það er, eins og öllum er kunnugt, altítt að verslanir auglýsi mjög rækilega og á mjög áberandi hátt verðbreytingar til lækkunar. Hvort sem menn kalla það afslátt, útsölur eða eitthvað af því taginu kannast allir við að hafa farið í verslanir og séð áberandi auglýsingar um slík tilboð af hálfu seljenda.
Það hefur minna farið fyrir hinu og ég kannast naumast við það að hið gagnstæða eigi við, þ.e. að viðskiptavinum sé gerð grein fyrir því ef um verðbreytingar til hækkunar er að ræða. Nú ætti tæknilega ekkert að vera örðugra að gera grein fyrir verðbreytingum sem ganga í þá áttina en verðbreytingum sem eru til lækkunar þannig að með samþykkt frv. af þessu tagi eða hliðstæðum ráðstöfunum ætti að verða bót á þessu.
Reyndar er til og það er ekki óvenjulegt að rekast á það erlendis að í anddyri verslana séu upplýsingatöflur uppi þar sem menn nýta sér jafnvel nýjustu tækni til að koma á framfæri við viðskiptavini upplýsingum um verð á helstu vöruflokkum og vörutegundum og þar er jafnvel um að ræða svokallað samanburðarverð þannig að viðskiptavinir geta fyrir fram gert sér grein fyrir því hvernig einstakir vöruflokkar standast verðsamanburð. Með nútímatækni er auðvitað hægt að gera þetta mjög auðvelt og aðgengilegt og ætti að vera tiltölulega einfalt mál í framkvæmd fyrir verslunaraðila.
Hvað varðar þá sem vinna samkvæmt auglýstum gjaldskrám er hér í raun og veru um enn þá sjálfsagðari hlut að ræða. Þó að þar sé auðvitað nokkuð um það að hækkanir séu tilkynntar fyrir fram í fjölmiðlum mætti tvímælalaust setja skýrari reglur um fyrirkomulag slíkra hluta.
Ég tel einnig rétt að það væri mjög þarft að Verðlagsstofnun og verðlagsaðilar athugi rækilega hvort ekki sé ástæða til að setja nánari reglur um ýmislegt fleira á þessu sviði, svo sem verðmerkingar vöru, þannig t.d. að svonefnt samanburðarverð, þ.e. verð á stöðluðum einingum, svo sem kílógrömm eða lítra á vörum sem mældar eru þannig máli, skuli vera til viðbótar einingarverði. Það auðveldar neytendum mjög að gera sér grein fyrir raunverulegu verði einstakra vörutegunda ef um samanburðarverð staðlaðra eininga er að ræða. En það er ljóst að slíkar ráðstafanir getur Verðlagsstofnun gert innan ramma gildandi laga og þarf engar lagabreytingar til.
Sömu sögu er að segja um viðskipti sem síðustu daga og vikur hafa verið nokkuð til umræðu, þ.e. viðskipti með afborgunarskilmálum. Það er alveg ljóst um það ófremdarástand sem þar ríkir að engu er þar um að kenna öðru en að Verðlagsstofnun hefur ekki nýtt sér heimildir í lögum til að setja skýrar, ótvíræðar reglur um þessi viðskipti. Það er ljóst að skv. 45. gr. gildandi laga um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti hefur Verðlagsstofnun fullar heimildir til að setja ótvíræðar reglur um viðskipti með afborgunarskilmálum og á það þá bæði við verðmerkingar í versluninni sjálfri, þ.e. upplýsingar um afborgunarskilmálana, þar með talin lánskjör, og einnig um auglýsingar á sömu vörutegundum sem seldar eru með sama hætti. Þeim sem ekki hafa kynnt sér 45. gr. ráðlegg ég að lesa hana. Það ætti þá að vera alveg ljóst að ekki þarf lagabreytingar til að heimila Verðlagsstofnun að setja slíkar reglur og ég tel hárrétt að athuga hvort ekki beri að gera svo.
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa um þetta ýkja langt mál eða mikið fleiri orð. Ég tel tvímælalaust að ráðstafanir af því tagi sem hér eru lagðar til stuðli að verðlagsaðhaldi og jafnframt tel ég þær flokkast undir almenna upplýsingaskyldu við neytendur og vera því tiltölulega sjálfsagðar.
Ég tek fram að það væri æskilegt að sú virðulega þingnefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar ræddi við hagsmunaaðila í því skyni að kanna hvernig eðlilegast væri að standa að framkvæmd þessara hluta burtséð frá lagaákvæðum, en það eru þó atriði sem eðlilegra væri að taka inn í reglugerð sem Verðlagsstofnun setti á grundvelli lagaákvæðis þess sem hér er flutt.
Það er fjöldamargt fleira reyndar sem ástæða væri til að ræða og fróðlegt væri að ræða í sambandi við þessi efni, þ.e. almennt um verðlagsaðhald, upplýsingaskyldu við neytendur og neytendamál, og ég vil í því sambandi minna á nokkra umræðu sem orðið hefur um auglýsingar og málefni auglýsinga og tillögu sem liggur frammi á hv. Alþingi um nauðsyn þess að setja lög og reglur um auglýsingar.
En hér er sem sagt hreyft sérstaklega við einum þætti þessa máls, sem ég er sannfærður um að gæti haft nokkra þýðingu á þessu sviði, að stuðla að almennu verðlagsaðhaldi og stuðla að því að neytendur hefðu aðgang að eðlilegum upplýsingum um þróun vöruverðs. Ég treysti því að hv. þingnefnd, sem fær málið til umfjöllunar, skoði það með velvilja og vinni af venjubundnum röskleika að því.
Ég legg svo til, herra forseti, að þessu máli verði vísað til hv. fjh.- og viðskn.