12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í B-deild Alþingistíðinda. (707)
142. mál, lögtök og fjárnám
Flm. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Í þessu frv. eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um lögtök og fjárnám án undanfarins dóms eða sáttar og eru þær í þágu lögtaksþola og til þess að minnka kostnað hans.
Í fyrsta lagi er lagt til að fjárhæðir í lögunum séu færðar til núgildandi verðlags.
Í öðru lagi er lagt til að um birtingu lögtaksúrskurða fyrir iðgjöldum til lífeyrissjóða og iðgjöldum af ábyrgðartryggingum bifreiða fari á sama hátt og um birtingu lögtaksúrskurða fyrir sköttum og öðrum líkum gjöldum. Hér er um gjöld að ræða sem margir skulda og getur verið mjög fyrirhafnarmikið og kostnaðarsamt að birta lögtaksúrskurð á hvern einstakan. Réttaröryggi yrði ekki hróflað þó að þessi leið yrði farin.
Í þriðja lagi er lagt til að svokallaður innheimtukostnaður falli ekki á lögtakskröfur. Lögtakskröfur eru sérstæðar og eru ýmsar iðgjaldakröfur og skattakröfur algengastar. Það er embættisskylda fógeta að annast um þessar kröfur og hreinn óþarfi að fela sérstökum innheimtumönnum slíkar kröfur til innheimtu. Þess eru dæmi að krafist hafi verið innheimtulauna samkvæmt gjaldskrá Lögmannafélags Íslands af skattakröfum sem lögtakshæfar eru og er slíkt að öllum líkindum ólöglegt, en siðleysi ef lög eru. Er hér lagt til að tekinn sé af allur vafi í þessum efnum.
Rétt er að benda sérstaklega á að það er hreinn óþarfi fyrir þá sem lögtaksrétt eiga um kröfur sínar að fela þær lögmönnum til innheimtu. Einfalt bréf um lögtakskröfuna er fógeta nægur grundvöllur til lögtaks. Þó þykir rétt að greiðabeiðandi fái einhverja þóknun fyrir ritun þess bréfs.
Ég legg til, herra forseti, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og allshn.