12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 822 í B-deild Alþingistíðinda. (708)

142. mál, lögtök og fjárnám

Jón Magnússon:

Virðulegi forseti. Mér finnast þær tillögur, sem hér koma fram og hv. síðasti ræðumaður lýsti áðan, vera mjög til bóta og til þess fallnar að draga úr kostnaði lögtaksþola. Hitt er svo annað mál að það verður að vara mjög við því, sem fram kemur í 2. gr. frv., að hreppstjórar fái víðtækari heimild til að gera lögtök. Að vísu gerir flm. að tillögu sinni að heimild þeirra takmarkist við fjárhæð er nemi 100 þús. kr., en þess ber að geta í því sambandi að sú takmörkun er í raun ákaflega lítils virði vegna þess að langsamlega flestar, yfirgnæfandi meiri hluti af öllum lögtakskröfum er undir þessu marki þannig að þessi takmörkun gildir nánast ekki nema í undantekningartilvikum. Í raun væru lögtaksheimildir hreppstjóra óskoraðar nánast í öllum tilvikum.

Ég vek athygli á að það er ekki gerður áskilnaður við val á hreppstjórum að þeir hafi hlotið sérstaka almenna menntun, hvað þá að þeir hafi hlotið sérstaka fræðslu í löggjöf þessarar þjóðar. Þeir eru ekki lögfræðimenntaðir. Það ber að benda á í því sambandi líka að lögtak er í raun dómsgerð. Það er við það miðað að gerðarþoli eigi rétt til að andmæla. Það er við það miðað að sá sem framkvæmir lögtaksgerðina, þ.e. fógeti í hverju tilviki, verði að gæta sérstakrar þar til greindrar leiðbeiningarskyldu gagnvart gerðarþola. Ég get ekki séð að hreppstjórar séu til þess bærir og tel það ekki í þágu réttaröryggis að þeir fái heimild til lögtaksgerða.