13.11.1986
Sameinað þing: 16. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í B-deild Alþingistíðinda. (734)

144. mál, viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hv. 11. þm. Reykv. fann að því í ræðu sinni áðan að það mál sem hér er til umræðu hafi verið tekið á dagskrá of fljótt, það hafi ekki unnist tími, mátti skilja, fyrir þm. til þess að kynna sér svo mikilvægt mál. Það skal tekið fram að forseti tjáði hv. þm. í gær að það væri ætlunin að taka þetta mál á dagskrá. Það skal tekið fram að þó að mál sé tekið á dagskrá er ekki þar með sagt að það sé tekið til umræðu. Það kemur stundum fyrir eins og alkunna er að einhver þm. kemur að máli við forseta og óskar eftir að mál sem er á dagskrá sé ekki tekið til umræðu. Slík ósk kom ekki fram frá hv. 11. þm. Reykv. Það skal og tekið fram að það var almennur vilji fyrir því að ekki drægist að taka þetta mál til umræðu. M.a. sagði hv. 3. þm. Reykv. í Nd. í gær að hann skoraði á hæstv. viðskrh. að beita sér fyrir því að þessi umræða gæti farið fram strax á morgun, eins og það var orðað. Forseti taldi þetta vera réttmæta skoðun og þess vegna var málið tekið á dagskrá. Þetta skal tekið fram að gefnu tilefni.