13.11.1986
Sameinað þing: 16. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (736)

144. mál, viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Kristín Ástgeirsdóttir:

Herra forseti. Sú skýrsla sem hér er til umræðu er um margt mjög merkileg. Hún lýsir ekki aðeins glæfralegum rekstri eins stærsta fyrirtækis landsins, barnalegri oftrú Útvegsbankans og vanhæfni stjórnenda hans heldur er hún um leið saga um pólitísk tengsl, óeðlilega fyrirgreiðslu og siðleysi. Skýrslan um samskipti Útvegsbankans og Hafskips hf. lýsir ákaflega vel einum geira íslensks samfélags þar sem fornar venjur kunningsskapar, reddinga og hagsmunatengsla ráða ríkjum, en hagsmunir almennings í landinu eru grafnir og gleymdir.

Þessi skýrsla svarar mörgum spurningum, en hún vekur líka spurningar um ábyrgð, hlutverk stjórnenda opinberra stofnana og ekki síst þær kröfur sem stjórnendur og stjórnmálamenn gera til sjálfra sín.

Niðurstöður skýrslunnar eru þær helstar að Útvegsbankinn hafi fylgst ákaflega illa með málefnum Hafskips, stærsta viðskiptavinar síns. Lánveitingar urðu miklu meiri en eðlilegt gat talist, tryggingar skorti, stjórnendur bankans treystu blint á upplýsingar Hafskips og þeir aðilar sem áttu að sinna eftirliti sváfu á verðinum. Meginniðurstaðan er svo auðvitað sú að stjórnendur Útvegsbankans hafi verið og séu í raun óhæfir til þeirra starfa sem þeir hafa valist til.

Þegar saga samskipta bankans og Hafskips er skoðuð og í ljós kemur að fyrirtækið rambaði á barmi gjaldþrots 1973, 1977 og átti við vaxandi erfiðleika að etja eftir 1982 verður nær óskiljanlegt hversu illa bankinn fylgdist með gangi mála. Að vísu sýndu reikningar fyrirtækisins allt aðra útkomu en hún raunverulega var og svo virðist sem Hafskip hafi átt mjög traustan stuðningsmann innan bankans sem í skýrslum sínum sýndi ótrúlega tryggð við skipafélagið og afhenti gagnrýnislaust upplýsingar um veð sem ekki stóðust. Hvað eftir annað var skipafélaginu bjargað út á lygnan sjó að því er bankinn taldi.

Að sjálfsögðu þarf það ekki að vera neitt óeðlilegt að fyrirtækjum sé hjálpað yfir erfiðan hjalla, t.d. til að koma í veg fyrir atvinnuleysi eða jafnvel hrun lítilla byggðarlaga. Vandinn er hins vegar sá hvar eigi að draga mörkin, hvenær rekstur er orðinn vonlaus. Og þar brást stjórnendum Útvegsbankans bogalistin. Í skýrslunni segir, með leyfi forseta:

„Þótt ársreikningi 1984 hafi verið áfátt í ýmsum veigamiklum atriðum þurfti samt enginn að vera þess dulinn að félagið var gjaldþrota í árslok 1984.“

Í árslok 1984 voru þeir bankastjórar sem enn starfa við Útvegsbankann komnir til starfa og hvað gerðist? Enn einu sinni átti að bjarga skipafélaginu. Hlutafjáraukning og yfir máta bjartsýnar áætlanir um Atlantshafssiglingar áttu að koma fleytunni á flot að nýju þrátt fyrir mikið tap á siglingum yfir Atlantshafið. Á miðju ári 1985 reyndu bankaráð og stjórn bankans að klóra í bakkann gagnvart fjölmiðlum. Enn var verið að reyna að bjarga því sem bjargað varð. Síðasta ævintýrið var stofnun Íslenska skipafélagsins, örlítil lenging á hengingarólinni sem mun kosta bankann litlar 20–30 millj. að mati rannsóknarnefndarinnar. Þetta gerðist á tíma þeirra bankastjóra og þess bankaráðs sem enn sitja.

Hvers vegna fór sem fór? Samkvæmt skýrslunni svara bankastjórarnir því svo á bls. 76, með leyfi forseta:

„Þeir treystu því að ársreikningar félagsins, undirritaðir af löggiltum endurskoðanda þess, væru öruggir. Þeir treystu upplýsingum frá Hafskipi um verðmæti eigna félagsins. Þeir treystu því að Hafskip fengi varnarliðsflutningana aftur. Þeir treystu fyrirætlunum Hafskips um Atlantshafssiglingarnar. Þeir treystu á styrk hluthafanna í félaginu og fjármálareynslu stjórnarmanna þess. Svo kom það í ljós að Hafskip brást þessu trausti og því fór sem fór.“

Niðurstaða mín eftir þennan lestur er sú að því miður sitji og hafi setið í stjórn Útvegsbankans menn sem ekki eru starfi sínu vaxnir. Og hvers vegna skyldi það vera? Mín skoðun er sú að um sé að kenna þeirri staðreynd að bankastjórar og bankaráðsmenn eru valdir pólitískt. Peningastofnanir þjóðarinnar eru eign allra landsmanna og það er sameiginlegur sjóður allra landsmanna, ríkissjóður, sem ber ábyrgðina og tekur á sig skellinn þegar dæmið verður endanlega gert upp. Almenningur í landinu á að geta treyst því að við stjórnvölinn sitji menn sem vinna með almannaheill í huga en setja ekki hagsmuni einstaklinga, þótt valdamiklir séu, í öndvegi.

Sú venja hefur skapast hér á undanförnum áratugum að bankastjóraembættin, býsna mörg, eru eins konar atvinnubótavinna fyrir þreytta þingmenn og fyrrv. ráðherra sem um leið eiga auðvitað að treysta hagsmunatengslin. Hér þarf að verða stefnubreyting. Allar stöður bankastjóra á að auglýsa, líka

í Seðlabankanum, og velja til starfa menn sem hafa þá viðskipta- eða hagfræðimenntun og reynslu sem nauðsynleg er.

Eins og fram kemur í skýrslunni var bankalegra sjónarmiða, eins og það er kallað, ekki gætt í samskiptum Útvegsbankans og Hafskips heldur var viljinn til að bjarga Hafskipspiltunum, þessum grónu viðskiptavinum bankans, hagsmunum bankans yfirsterkari. Það sýnir svo að ekki verður um villst að þrátt fyrir þau ummæli sem höfð eru eftir bankaráðsmönnum um að bankinn hefði ekki mátt missa af reynslu bankastjóranna og þekkingu þeirra á málefnum bankans, að reynslan ber vott um hið gagnstæða.

Það vekur athygli við lestur skýrslunnar hve öllu eftirliti með starfsemi bankans var áfátt. Ekki vantar þó kerfið í kringum hann, ráðherra, bankaráð, bankaeftirlitið. Bankaráðið fylgdist ekki með viðskiptum Hafskips. Bankaeftirlitið leit ekki á málið árum saman þrátt fyrir fyrri erfiðleika Hafskips. Lögum samkvæmt á bankaráð Útvegsbankans að hafa yfirumsjón með starfsemi hans. Hvað þýðir það? Fær bankaráðið ekki reglulegt yfirlit um stöðu bankans? Fer það ekki yfir ársreikninga bankans? Fylgist það ekki með útlánum og innlánum? Ég vildi gjarnan heyra skýringar frá formanni bankaráðsins, hv. þm. Valdimar Indriðasyni.

Það væri hægt að hafa langt mál um þessa skýrslu, en ég vil að lokum fjalla um það atriði sem mér finnst vera aðalatriðið í þessu máli öllu, það siðferði sem skýrslan endurspeglar og það siðferði sem kemur fram í viðbrögðum þeirra manna sem nú verja sig og sína í fjölmiðlum.

Að mínum dómi eiga stjórnmálamenn að gera miklar kröfur til sjálfra sín, meiri kröfur en aðrir. Alþm. hafa því hlutverki að gegna að setja landinu lög og að sjá til þess að þeim sé framfylgt. Þeir verða að halda árunni hreinni, halda sig utan við hagsmunapot úti í þjóðfélaginu og forðast að koma sér í þá aðstöðu að hægt sé að beita þá óeðlilegum þrýstingi. Kjósendur í landinu eiga að geta treyst því að allar ákvarðanir séu teknar með almannaheill í huga að bestu manna yfirsýn. En því miður er langt frá að svo sé. Að mínum dómi er það blettur á Alþingi að alþm. sitji í bankaráðum og það er Alþingi til vansæmdar að hafa kjörið aftur þá bankaráðsmenn sem sátu í súpunni þegar Hafskipsmálið komst í hámæli. Hvort sem þeir vissu eða vissu ekki um hin einkennilegu samskipti Útvegsbankans og Hafskips hefðu þeir ekki átt að gefa kost á sér og Alþingi alls ekki að kjósa þá. Það sýnir vægast sagt undarlegt mat að senda aftur að bankaráðsborðinu þá menn sem hefðu átt að fylgjast betur með en gerðu það ekki.

Allt vekur þetta þá spurningu hvar sjálfsvirðing manna er stödd sem sitja sem fastast þrátt fyrir mesta fjármálahneyksli aldarinnar hér á Íslandi og spurningu um hvaða kröfur menn gera til sjálfra sín. Ég varpa þeirri spurningu fram hvaða viðbrögð menn haldi að hefðu komið fram erlendis við máli eins og þessu í löndum eins og Norðurlöndunum eða Bretlandi. Halda menn að viðkomandi ráðamenn hefðu setið áfram?

Í blöðunum í morgun reyna menn hver um annan þveran að verja sig og nánast skella skuldinni á rannsóknarnefndina. Bankamálaráðherra ver bankastjórana með þeim rökum að þeir hafi starfað svo skamman tíma. En ég spyr: Hvað gera menn sem taka við stjórn fyrirtækis? Kynna þeir sér ekki stöðu fyrirtækisins? Hvað gerðu bankastjórarnir í þeirri stöðu sem upp var komin í árslok 1984 þegar Hafskip var í raun gjaldþrota eftir því sem segir í skýrslunni? Þeir ætluðu enn að bjarga málum þótt lán til Hafskips væru komin upp úr öllu valdi og orðin miklu meiri en eiginfjárstaða bankans þoldi. Er þetta afsakanlegt, herra bankamálaráðherra?

Bankastjórarnir verja sig og skjóta í laumi á hæstv. iðnrh. Albert Guðmundsson sem er nánast hvítþveginn í skýrslunni eins og hér hefur komið fram. Um Albert Guðmundsson segir að skjalfestar upplýsingar um afskipti hans af málefnum Hafskips meðan hann sat báðum megin borðsins sem formaður bankaráðsins og stjórnarformaður Hafskips hafi ekki komið fram. Í Þjóðviljanum í morgun er haft eftir Lárusi Jónssyni bankastjóra að þau orð að Albert hafi ekki beitt áhrifum sínum innan bankans séu ekki frá þeim bankastjórunum komin. Enn vaknar spurning: Er þáttur Alberts Guðmundssonar enn óupplýstur?

Af þessu öllu saman dreg ég eftirfarandi ályktun: Í ljósi þeirra upplýsinga sem fram koma í skýrslunni um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips hf. ber bankaráðsmönnum að segja af sér þegar í stað og bankastjórum að láta af störfum. Banki með slíka stjórn og slíka fjármálapólitík á sér varla viðreisnar von eftir útkomu þessarar skýrslu nema þar verði stórfelldar breytingar gerðar. Sé þingmönnum annt um virðingu Alþingis og heill umbjóðenda sinna ættu þeir að snúa sér alfarið að þingstörfum og velja til bankaráðsstarfa fólk úr atvinnulífinu, launafólk, karla og konur sem hafa hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi í stað þröngra flokkssjónarmiða og samtryggingar hinna sterku sem stundum reynast þó veikari en sýnast.