16.10.1986
Sameinað þing: 4. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (76)
Stefnuræða forsætisráðherra
Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Góðir Íslendingar.
Sú ríkisstjórn sem nú situr var mynduð til þess að forða þjóðinni frá afleiðingum óðaverðbólgu og koma jafnvægi á efnahagsmálin. Nú eru horfur á því að hvort tveggja muni takast. Óðaverðbólgan, sem geisaði fyrri hluta ársins 1983, fór ört vaxandi. Hún hefði eflaust leitt til stöðvunar fjölmargra atvinnufyrirtækja og mikils atvinnuleysis. Efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar var áreiðanlega teflt í tvísýnu.
Komið var í veg fyrir þetta með hörðum lögbundnum aðgerðum. Stjórnarandstæðingar nefndu þær gerræðislegar og árásir á kjör fólksins í landinu.
Þeir spáðu því jafnframt að árangur yrði enginn. Sem betur fer fór það á annan veg, enda hvort tveggja fjarri lagi.
Verðbólgan lækkaði úr 130 í 20% á árinu 1983. Atvinnu og kjörum fólksins var bjargað frá hruni. Þetta tókst ekki síst vegna víðtæks skilnings almennings. Fólkið í landinu gerði sér grein fyrir því að ekki yrði lengur búið við vaxandi óðaverðbólgu og erlendar skuldir. Án slíks skilnings almennings hefðu þessar markvissu aðgerðir að sjálfsögðu mistekist.
Það jafnvægi, sem nú má ætla að geti orðið í efnahagsmálum þjóðarinnar, má fyrst og fremst þakka því víðtæka samkomulagi sem náðist um kaup og kjör og efnahagsaðgerðir í febrúar s.l. á milli atvinnurekenda, verkalýðshreyfingar og launþega og ríkisvalds. Þetta samkomulag reyndist kleift annars vegar vegna batnandi ytri aðstæðna, vaxandi fiskafla, lækkandi olíuverðs og hækkunar á fiskverði erlendis og hins vegar vegna þeirrar festu í efnahagslífinu sem sköpuð hefur verið með aðhaldssamri gengis- og peningamálastefnu ríkisstjórnarinnar. Slíkur árangur í efnahagsmálum virtist ekki líklegur þegar ég flutti stefnuræðu ríkisstjórnarinnar fyrir einu ári. Ytri aðstæður breyttust hins vegar skyndilega til hins betra í janúarmánuði s.l. Ég taldi þá rétt að hvetja aðila vinnumarkaðarins opinberlega til þess að taka höndum saman við ríkisvaldið og nýta batann til að ná jafnvægi í efnahagsmálum þjóðarinnar með því að koma verðbólgu niður fyrir 10% og draga úr viðskiptahalla, en tryggja jafnframt aukningu kaupmáttar með hóflegum kjarasamningum. Þetta var af mörgum talin óraunhæf bjartsýni og ýmsir stjórnarandstæðingar hvöttu til mikilla launahækkana. Sem betur fer svöruðu ábyrgir forustumenn verkalýðshreyfingar og atvinnurekenda ekki slíkum kröfum. Þeim er að sjálfsögðu ljóst að minni verðbólga og viðskiptahalli er ekki síst umbjóðendum þeirra til hagsbóta.
Því minni ég á þetta að einstöku stjórnarandstæðingar halda því enn fram að ríkisstjórnin hafi verið neydd til þeirra samninga sem gerðir voru í febrúar. Það er að sjálfsögðu hin mesta firra. Þeir tókust vegna náins samráðs allra aðila og vegna þess að niðurrifsöflunum var haldið utan garðs.
Kjarasamningarnir voru ábyrgir og raunhæfir. Ríkisstjórnin gerði kleift að gera þá samninga með þátttöku ríkissjóðs sem nam 1800 millj. kr. Því fjármagni var vel varið. Tollar og gjaldskrár opinberra fyrirtækja voru lækkaðar, endurgreiðslur af landbúnaðarafurðum auknar og launaskattur og jöfnunargjald á raforku felld niður. Einnig beitti ríkisstjórnin sér fyrir því að nafnvextir voru lækkaðir án tafar í kjölfar samninganna. Slíkt hefur engin ríkisstjórn áður gert. Verðlagseftirlit var og hert og upplýsingamiðlun um verðlag bætt mjög. Ég er sannfærður um að þessar aðgerðir hafa haft ómæld áhrif, bæði til þess að halda verðlagi í skefjum og til þess að draga úr fjármagnskostnaði atvinnuveganna.
Einnig þykir mér rétt að minna á þá staðreynd að vilyrði um stórfellda breytingu á húsnæðislánakerfinu eru að koma til framkvæmda. Það mun reynast húsbyggjendum og kaupendum til mikilla hagsbóta þegar fram í sækir.
Í endurskoðaðri þjóðhagsspá, sem nýlega hefur verið kynnt, kemur fram að þau markmið sem sett voru við gerð kjarasamninganna munu nást og í ýmsum tilfellum gott betur. Kaupmáttur tekna heimilanna mun aukast töluvert umfram það sem gert var ráð fyrir. Verður hann á þessu ári að meðaltali sá mesti sem hann hefur verið í sögu þjóðarinnar.
Ætla mætti að þetta leiddi til aukins viðskiptahalla. Svo hefur þó ekki orðið. Þvert á móti er talið að viðskiptahallinn verði um 1300 millj. kr. minni en áður var áætlað og aðeins 1,5% þjóðarframleiðslu. Viðskiptajöfnuður mun verða vel jákvæður. Það eru fyrst og fremst vextir af erlendum skuldum sem valda halla á viðskiptajöfnuði í heild. Að vísu hefur innflutningur aukist á árinu, en útflutningur hefur vaxið enn meira og það sem er jafnvel enn mikilvægara: peningalegur sparnaður hefur aukist verulega umfram áætlun. Þótt háir raunvextir íþyngi atvinnuvegunum eiga þeir ásamt hækkandi tekjum vafalaust stóran þátt í auknum sparnaði. Í þessum efnum þarf að rata hinn gullna meðalveg.
Erlendar skuldir hafa sem hlutfall af landsframleiðslu lækkað úr 55% 1985 í 52% 1986 og stefnt er að lækkun í 49% á næsta ári. Greiðslubyrði af erlendum skuldum sem hlutfall af útflutningstekjum fer einnig lækkandi. Þótt þetta stefni í rétta átt eru erlendar skuldir þó of miklar og varasamar fyrir þjóðarbúið. Því er það tvímælalaust eitt mikilvægasta verkefnið nú að þjóðarútgjöld vaxi sem minnst svo að svigrúm skapist til að draga úr erlendum skuldum þjóðarinnar.
Við kjarasamningana í febrúar var að því stefnt að ná verðbólgunni í 10% á þessu ári. Flest bendir til þess að það muni takast þrátt fyrir að krónan hefur verið látin síga um ríflega 2% gagnvart meðalgengi frá því að samningarnir voru gerðir. Það reyndist nauðsynlegt vegna þess tekjutaps sem fall dollarans hefur valdið fiskvinnslu landsmanna.
Um stöðu atvinnuveganna má segja að hún sé breytileg. Ýmis fyrirtæki eiga í erfiðleikum vegna skulda frá verðbólguárunum. Önnur hafa notið batnandi ástands í ríkum mæli. Með lækkuðu olíuverði og þeim samningum um fiskverð sem gerðir hafa verið á árinu er afkoma útgerðarinnar betri en verið hefur um langan aldur. Er nú talið að hún sé rekin að meðaltali með um það bil 7% hagnaði. Í fiskvinnslunni er afkoman hins vegar mjög breytileg. Með lækkun á fjármagnskostnaði hefur staðan víða batnað. Hjá um það bil 20 fyrirtækjum er afkoman þó erfið. Sameiginlegt virðist þeim húsum að skuldir eru mjög miklar og fjármagnskostnaður nánast óviðráðanlegur þótt rekstrarafkoman sé viðunandi hjá ýmsum þeirra. Ríkisstjórnin hefur gert sérstakar ráðstafanir til að rétta hlut þeirra fyrirtækja sem bjarga má með fjárhagslegri endurskipulagningu. Að því er unnið með skuldbreytingum í viðskiptabönkum og sjóðum og lánum frá Byggðastofnun.
Í landbúnaði eru miklir erfiðleikar. Óhjákvæmilegur samdráttur hinnar hefðbundnu framleiðslu er vandasamur í framkvæmd og veldur bændum miklum búsifjum. Ofan á það bætist að loðdýraræktin, sem mjög hefur verið á treyst til þess að koma í stað kjöt- og mjólkurframleiðslu, á við mikið verðfall að stríða á erlendum mörkuðum. Það er væntanlega tímabundið en gerist þegar verst kemur bændum. Þá hefur minni neysla landbúnaðarafurða innanlands aukið á vandann.
Í iðnaði hefur afkoman verið nokkuð breytileg eftir greinum og ekki síst eftir fyrirtækjum. M.a. hefur ullariðnaðurinn átt og á í erfiðleikum þótt horfur hafi heldur batnað. Unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu ullariðnaðarins og nauðsynlegri tækniþróun.
Nýsköpun í atvinnulífinu hefur verið umtalsverð. Hefur fjármagn það sem Rannsóknaráð ríkisins hefur fengið til úthlutunar reynst mjög mikilvægt í þessu sambandi. Aftur á móti hafa viðskiptabankarnir reynst tregir til þess að veita fyrirtækjum á nýjum sviðum eðlilega fyrirgreiðslu. Hefur það valdið verulegum vandræðum sem stjórnvöld geta orðið að hafa afskipti af.
Að öllum líkindum ber fiskeldi hæst hinna nýju greina. Þar hafa fjölmargir aðilar hafið framkvæmdir og framleiðslu, sumir í mjög stórum stíl.
Ferðamannaþjónusta hefur vaxið hröðum skrefum. Mikilvægi þeirrar atvinnugreinar eykst stöðugt. Þegar á heildina er litið virðist árið 1986 munu verða íslensku þjóðarbúi hagstætt. Viðskiptakjör hafa batnað, aukinn afli, hlýnandi sjór og markviss stjórnun hefur leitt til betri afkomu. Mjög ólíklegt er að bati á árinu 1987 verði nokkuð í líkingu við það sem nú hefur orðið. Reyndar virðist sjór hafa kólnað á ný á þessu ári. Það getur, ef langvarandi verður, boðað nýja erfiðleika í sjávarútvegi. Við skulum þó vona að svo verði ekki. Fremur virðist hætta á að olíuverð muni fara hækkandi á næstu misserum og gengi dollarans gæti enn fallið. Hins vegar gæti orðið verðhækkun á íslenskum afurðum og bendir reyndar margt til þess og vextir gætu enn lækkað. Þegar á heildina er litið virðist því óhætt að gera ráð fyrir að viðskiptakjör verði á árinu 1987 svipuð og þau eru nú. Í því sambandi er þó vert að minna á óvenjumikla óvissu í alþjóðlegum efnahagsmálum, einkum vegna þeirrar spennu sem stórfelldur hallabúskapur í Bandaríkjunum veldur og þeirrar staðreyndar að hægt hefur á hagvexti í heiminum á þessu ári þvert á vonir s.l. vor.
Vegna batnandi ástands sjávar undanfarin tvö ár og því góðs ástands mikilvægustu fiskstofna má gera ráð fyrir að botnfiskafli geti aukist nokkuð, e.t.v. um 4-5% á næsta ári. Aftur á móti eru markaðir fyrir loðnu- og síldarafurðir ekki álitlegir og getur því brugðið til beggja vona um afrakstur af þeim þótt stofnarnir séu sterkir. Þegar á heildina er litið er talið að þjóðarframleiðsla geti aukist um 2% á árinu 1987.
Á grundvelli þess bata sem orðið hefur á þessu ári og þeim horfum sem ég hef lauslega lýst er þjóðhagsáætlun ríkisstjórnarinnar byggð. Með efnahagsstefnunni 1987 hyggst ríkisstjórnin ná eftirgreindum fjórum meginmarkmiðum:
1. Verðhækkanir frá upphafi til loka árs 1987 verði ekki meiri en 4-5%.
2. Atvinna verði næg en betra jafnvægi og minni spenna verði á vinnumarkaði.
3. Vöxtur þjóðarframleiðslu og þjóðarútgjalda haldist í hendur og verði nálægt 2% á árinu 1987.
4. Viðskipti við útlönd verði sem næst hallalaus og hlutfall erlendra skulda af landsframleiðslu og gjaldeyristekjum lækki.
Takist að ná þessum markmiðum má verja þann kaupmátt ráðstöfunartekna og þau góðu lífskjör sem náðst hafa á árinu 1986. Ríkisstjórnin telur jafnframt að innan þessa ramma númist lagfæring á kjörum þeirra sem búa við lakari kaupmátt kauptaxta og lökust kjör og á það beri að leggja áherslu. Aukist hins vegar ráðstöfunartekjur heimilanna í heild umfram 2,5% er hætt við að markmiðið náist ekki nema sparnaður aukist þeim mun meira. Einkum mun þó hætt við að halli á viðskiptum við útlönd verði óviðunandi, verðbólgan magnist og erlendar skuldir hækki á ný.
Af þessum ástæðum virðist nauðsynlegt að vöxtur útgjalda þjóðarbúsins verði í heild innan við eða um 2%. Ríkisstjórnin mun miða stefnu sína í fjármálum og peningamálum við þetta markmið. Til þess er óhjákvæmilegt að fylgt verði sömu aðhaldsstefnu í gengismálum og verið hefur á þessu ári. Það mun verða gert á meðan þessi ríkisstjórn situr.
Stöðugt gengi er forsenda minnkandi verðbólgu og jafnvægis í efnahagsmálum þjóðarinnar. Því aðeins er gengisfelling réttlætanleg að skilyrði í þjóðarbúskapnum versni mjög og stöðvun útflutningsatvinnuveganna virðist fram undan. Þær aðstæður eru ekki fyrir hendi nú. Mönnum ætti auk þess að vera ljóst að undanhald í gengi færir fyrirtækjum sem skulda mikið erlendis aðeins mjög skammvinnan bata ef aðrir kostnaðarliðir innanlands hækka í kjölfarið.
Ef þjóðarútgjöld eiga ekki að aukast umfram 2% og þensla og launaskrið að minnka verður ríkissjóður að stilla útgjöldum sínum í hóf. Með því frv. til fjárlaga sem lagt hefur verið fyrir Alþingi er að þessu stefnt. Þó er ljóst að teflt er á tæpasta vaðið með aukinni samneyslu og fjárfestingu hins opinbera.
Gert er ráð fyrir að halli á ríkissjóði á árinu 1987 verði um 1500 millj. kr. Hann stafar nær eingöngu af því sem ríkissjóður lagði til kjarasamninganna í febrúar s.l. Þótt slíkur halli sé umtalsverður er hann þó verulega minni en á þessu ári. Án aukinna tekna ríkissjóðs mun reynast erfitt að ná hallalausum fjárlögum á næstu árum.
Gert er ráð fyrir að tekjuskattur lækki um 300 millj. kr. Er þannig enn eitt skref stigið til þess að afnema tekjuskatt af almennum launatekjum. Hins vegar er ráðgert að leggja orkuskatt á innflutta orku. Hin mikla lækkun á olíuvörum hefur leitt til mun meira tekjutaps ríkissjóðs en gert var ráð fyrir þegar kjarasamningar voru gerðir í febrúar. Ríkisstjórnin telur því eðlilegt að leggja á tímabundinn orkuskatt sem gæfi ríkissjóði um það bil 600 millj. kr. Er það svipað og gert hefur verið víða erlendis eftir að olíuverð féll. Þá er gert ráð fyrir að framkvæmd skattalaga verði bætt og innheimtan hert. Á þessu þingi verða lögð fram frumvörp um hert viðurlög við skattsvikum og um ýmsar aðrar endurbætur í skattamálum sem unnin eru m.a. á grundvelli tillagna nefndar sem kannaði skattsvik og lagðar voru fram á Alþingi með skýrslu fjmrh. s.l. vor. Með því að fylgja þessum málum eftir af fullkominni einurð er það sannfæring mín að stórlega megi draga úr skattsvikum og þar með draga verulega úr halla ríkissjóðs. Erfitt er þó að áætla um hve stóra fjárhæð geti orðið að ræða.
Gert er ráð fyrir að halli á ríkissjóði verði á árinu 1987 að öllu leyti brúaður með innlendri lántöku og afborganir af erlendum lánum að nokkru lækkaðar.
Ný erlend lán hins opinbera verða um 2550 millj. kr. en afborganir af eldri lánum verða 2930 millj. kr. Þannig mun hið opinbera minnka erlendar skuldir sínar á næsta ári. Vegna mikillar innlánsaukningar hefur ráðstöfunarfé bankanna aukist verulega og sömuleiðis bundið fé í Seðlabanka. Þessi staða veitir svigrúm til að draga úr erlendum lántökum og leita í ríkara mæli eftir lánsfé innanlands. Því er gert ráð fyrir að viðskiptabankarnir kaupi ríkisskuldabréf fyrir 1650 millj. kr. Auk þess er ráðgert að viðskiptabankarnir kaupi veðskuldabréf af lánastofnunum fyrir a.m.k. 400 millj. kr. Til þess að auðvelda þeim þetta verður bindiskylda lækkuð eins og fyrirheit voru gefin um á síðasta þingi við afgreiðslu laga um Seðlabanka Íslands. Í heild er einungis gert ráð fyrir lántökum erlendis nettó að upphæð 1500 millj. kr. Er það minni aukning erlendra lána en um langt árabil.
Ríkisstjórnin telur að umræddur halli á ríkissjóði muni ekki stofna í hættu því markmiði að viðskiptajöfnuður náist á árinu 1987, enda fari peningalegur sparnaður vaxandi eins og verið hefur undanfarin tvö ár. Til þess að stuðla að því mun ríkisstjórnin áfram leggja áherslu á jákvæða raunvexti. Með minni verðbólgu munu nafnvextir að sjálfsögðu verða lækkaðir. Þá er gert ráð fyrir að raunvextir lækki nokkuð frá því sem þeir eru nú til samræmis við vexti í helstu viðskiptalöndum okkar. Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að þó ný bankalöggjöf veiti viðskiptabönkunum aukið frelsi til þess að ákveða vexti er gert ráð fyrir því að ákvarðanir um vexti verði háðar samþykki bankaráða sem við ríkisbankana eru kosin af Alþingi. Einnig gera lög um Seðlabanka Íslands ráð fyrir því að hann geti með heimild ráðherra tryggt að raunvextir hér á landi verði ekki hærri en í helstu viðskiptalöndum okkar Íslendinga.
Þótt ríkisstjórnin telji óhætt, með tilliti til þess jafnvægis sem náðst hefur á árinu, að slaka á bindingu og stuðla að lækkun raunvaxta er aðhald í peningamálum eftir sem áður óhjákvæmilegt á meðan mikil þensla ríkir í þjóðfélaginu eins og nú er. Við það að verðbólga fer vel niður fyrir 10% mun verða unnt að koma heilbrigðari skipan á ýmislegt í peninga- og efnahagsmálum þjóðarinnar. M.a. er þá tímabært að athuga hvort ekki er rétt að afnema alla vísitöluviðmiðun fjármagns og annarra fjárskuldbindinga.
Eftir kjarasamningana í febrúar s.l. var verðgæsla hert og almenningi veittar stórauknar upplýsingar um verðlag. Þessu mun verða haldið áfram. Verðlagsstofnun mun með athugunum sínum stuðla að lægra verðlagi, bæði í heildsölu og smásölu.
Með þeim meginleiðum sem ég hef lýst telur ríkisstjórnin að takast megi að ná þeim markmiðum í efnahagsmálum sem hún hefur sett sér. Forsenda þess er þó að kjarasamningar um næstu áramót verði innan þess ramma. Um leið og góður byr er notaður til þess að ná jafnvægi í efnahagsmálum er óhjákvæmilegt að nýta batnandi þjóðarhag til þess að bæta afkomu þeirra atvinnugreina sem enn eiga í rekstrarerfiðleikum eftir verðbólgu undanfarinna ára.
Eins og ég hef áður sagt er undanlátssemi í gengi mjög takmörkuð eða engin lækning í þessum tilfellum. Ríkisstjórnin mun í þess stað leggja áherslu á fjárhagslega endurskipulagningu með lengingu lána með sem minnstum afborgunum fyrstu árin, auknu eigin fé og lækkun fjármagnskostnaðar. Á það mun verða lögð áhersla við viðskiptabankana að hluti af auknu ráðstöfunarfé þeirra verði nýttur til fjárhagslegrar endurskipulagningar þeirra fyrirtækja sem eru hjá þeim í viðskiptum. Jafnframt er gert ráð fyrir því að Stofnfjársjóður og Byggðastofnun taki þátt í þessu verki. Vegna fiskvinnslunnar eru Byggðastofnun ætlaðar 300 millj. kr. í þessu skyni á lánsfjáráætlun ársins 1987. Ráðstöfun þess fjármagns er þegar hafin.
Breytingu framleiðsluhátta í landbúnaði mun verða fram haldið í samræmi við nýleg lög um framleiðslu landbúnaðarafurða o.fl. Minni neysla, einkum lambakjöts og óvænt verðfall skinna veldur meiri erfiðleikum en gert var ráð fyrir. Ekki virðist álitlegt að þeir bændur sem áfram framleiða mjólk og lambakjöt dragi almennt saman búskap umfram það sem orðið er. Því gera nýlegir samningar ríkis og bænda ráð fyrir nýjum leiðum.
Nauðsynlegt er að taka í ríkara mæli en gert hefur verið tillit til aðstæðna, t.d. landgæða og landeyðingar. Aðstoða þarf bændur, sem búa á svæðum þar sem hætta er á landspjöllum, til að taka upp aðrar búgreinar eða hætta búskap ef þeir kjósa. Vísa ég í þessu sambandi til athyglisverðrar skýrslu um landnýtingu sem nýlega er komin út á vegum landbrn. Jafnframt er óhjákvæmilegt að veruleg breyting verði á framleiðslu landbúnaðarafurða.
Neysluvenjur fólks hafa breyst mjög og munu enn breytast. Bændur og vinnslustöðvar verða að kappkosta að koma til móts við kröfur neytenda.
Ljóst er jafnframt að ekki nægir að hafa stjórn á aðeins einum þætti kjötframleiðslunnar. Framleiðsluna alla verður að samræma. Það er bæði neytendum og framleiðendum til góðs og hagkvæmast fyrir þjóðarbúið. Um það þurfa framleiðendur sjálfir að fjalla.
Af öðrum þáttum atvinnulífsins, sem unnið er að, vil ég nefna eftirfarandi:
Gert er ráð fyrir að viðræðum um byggingu kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði ljúki fljótlega. Verði ákveðið að ráðast í það fyrirtæki verða samstarfssamningar ríkisstjórnarinnar og fyrirtækisins Rio Tinto Zink Metals lagðir fyrir Alþingi til staðfestingar að öllum líkindum á þessu haustþingi. Áfram mun haldið athugunum á stækkun álversins í Straumsvík og þar með nýtingu þeirrar ágætu aðstöðu sem þar er.
Um orkufrekan iðnað, sem svo er nefndur, vil ég þó taka fram að horfur í heiminum almennt eru ekki sérstaklega hagstæðar fyrir hann. Því getur svo farið að lítið verði um framkvæmdir á þessu sviði hér á landi á næstunni.
Orkunotkun hefur aukist hægar á undanförnum árum en áður var og spáð hafði verið. Því hafa orkuspár verið endurskoðaðar og orkuframleiðsla og sala löguð að nýjum aðstæðum. Þótt hagur einstakra hitaveitna sé mjög erfiður vegna mikilla og óhagstæðra skulda hefur hagur annarra orkufyrirtækja farið batnandi. Því hefur reynst unnt að lækka raunverð orku frá Landsvirkjun til almenningsveitna um 36% síðan það var hæst 1983 og mun áfram verða haldið á þeirri braut.
Ríkisstjórnin mun áfram kappkosta að örva nýsköpun í atvinnulífinu. Fjármagn það, sem Rannsóknaráð ríkisins hefur haft til styrkveitinga til rannsókna í þágu nýsköpunar, hefur reynst ákaflega mikilvægt í þessu sambandi eins og fyrr er nefnt. Gert er ráð fyrir því að á þessu þingi verði lagt fram frv. til laga um sjóð þennan og starfsemi Rannsóknaráðs almennt o.fl.
Á vegum iðnrh. er í undirbúningi frv. til laga um einkaleyfi. Það á að bæta starfsskilyrði hugvitsmanna og auðvelda þeim að njóta eðlilegs hagnaðar verka sinna. Komið hefur í ljós að þörf fyrir áhættufjármagn er mjög mikil, einkum á fyrstu árum nýrra fyrirtækja. Gegnir Þróunarfélag Íslands í því sambandi mikilvægu hlutverki. Í ýmsum tilfellum getur samstarf við erlenda aðila, sem búa yfir þekkingu á tækni, leyst mikinn vanda. Um það eru reglur nú óljósar, breytilegar frá einni atvinnugrein til annarrar og jafnvel svo að forræði Íslendinga þar sem það er nauðsynlegt er ekki tryggt og heimildir til að veita leyfi og undanþágur í höndum margra. Því er nauðsynlegt að endurskoða reglur sem gilda um þátttöku erlendra aðila í íslenskum atvinnufyrirtækjum. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því og þá hafa í huga að samstarf við erlenda aðila á ýmsum sviðum getur verið mikilvægt og fullkomlega eðlilegt. En tryggja verður að Íslendingar sjálfir hafi óskert forræði yfir atvinnulífi landsins.
Af mörgum öðrum mikilvægum verkefnum, sem unnið er að, vil ég nefna nokkur.
Lengi hefur uppstokkun bankakerfisins verið á dagskrá. Það verk hefur gengið seint, enda mörg ljón á veginum. Ýmsir virðast jafnvel þeirrar skoðunar að ekki sé rétt að fækka ríkisbönkum. Erfiðleikar Útvegsbankans krefjast þess þó. Málið getur ekki dregist lengur. Viðskrh. hefur lýst þeim leiðum sem til greina koma. Þær eru nú í ítarlegri skoðun og mun niðurstaðan lögð fyrir Alþingi á þessu haustþingi.
Í tíð þessarar ríkisstjórnar hefur mikil breyting orðið á húsnæðislánakerfinu. Lánin hafa verið lengd og hækkuð til muna. Á næstu mánuðum verður áhersla lögð á að þeir sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn hafi forgang. Í því sambandi verður að hafa í huga að of mikil þensla í byggingariðnaði getur reynst efnahagslífinu skaðleg og stofnað í hættu því jafnvægi sem nú er í sjónmáli. Svipað má segja um málefni þroskaheftra. Fjármagn til þess málaflokks hefur verið stórlega aukið og heimilum og aðstöðu verið komið upp víða um land. Þetta er mikið gæfuspor. Uppbygging á þessu sviði verður haldið áfram á meðan þessi ríkisstjórn situr.
Byggðanefnd þingflokkanna hefur skilað athyglisverðri skýrslu. Ýmsar tillögur sem þar eru gerðar hljóta þingflokkarnir og ríkisstjórnin að ræða. Undanfarin ár hefur orðið mikil byggðaröskun. Því verður að breyta. Það er þjóðinni allri fyrir bestu. Að sjálfsögðu er það verkefni Byggðastofnunar að gera tillögur og áætlanir til úrbóta. Með tilvísun til umræddrar skýrslu hef ég óskað eftir því við stofnunina að gerðar verði áætlanir um aðgerðir sem stuðlað geta að jafnvægi í byggð landsins. Í samkomulagi stjórnarflokkanna frá 25. maí 1983 segir:
„Sett verði lög um umgengni á landinu, verndun náttúru og auðlinda.“
Að framkvæmd þessa samkomulags hefur verið unnið en því miður ekki náðst samstaða enn. Á grundvelli tillagna, sem ég hef lagt fram í ríkisstjórninni, geri ég mér nú vonir um að frumvörp þessa efnis verði lögð fyrir þingið fljótlega. Þetta er afar mikilvægt mál.
Við Íslendingar búum í landi þar sem gróður og dýralíf er mjög viðkvæmt. Þetta þurfum við þó hvort tveggja að nýta okkur til framfæris. Það verðum við að gera af fullri skynsemi. Við eigum að kappkosta að skila betra landi til afkomenda okkar en við tökum við. Því miður hefur ekki verið svo um aldirnar. Trjágróðri var nær gjörsamlega eytt og víða er landið uppblásið. Þótt myndarlegt átak sé gert til þess að græða landið á ný fer því víðs fjarri að þeirrar varúðar sé gætt sem landið krefst. Við Íslendingar erum svo lánsamir að búa í tiltölulega hreinu og ómenguðu landi. Við verðum lítið vör við súrt regn sem nú spillir skógum og vötnum á stórum svæðum í Evrópu. Eyðingar kjarnorkunnar hefur ekki heldur gætt hér. Við megum þó ekki vera svo blind að ætla að svo muni það verða um alla eilífð. Á meðan mengunin vex hröðum skrefum færist hún stöðugt nær. Þessi mál getum við því ekki látið lengur afskiptalaus á erlendum vettvangi. Við hljótum að styðja þá kröfu að stórlega verði dregið úr hættu á mengun frá kjarnorkuverum og iðnaði og slíkt sett undir alþjóðlegt eftirlit. Til þess að á okkur verði hlustað þurfum við að koma okkar eigin málum í gott lag.
Að morgni 29. september s.l. gengu sendiherrar Sovétríkjanna og Bandaríkjanna á minn fund og báru fram þá ósk frá æðstu mönnum risaveldanna að þeim yrði heimilað að halda fund sinn hér á landi 11. og 12. október. Það samþykkti ég án tafar, enda Íslandi með þessu sýnt einstakt traust og virðing. Við fundi valdamestu manna heims bindur hrjáður heimur helst vonir við það að horfið verði af braut hins vitfirrta kjarnorkukapphlaups og þjóðirnar taki þess í stað höndum saman í sókn til betri sambúðar og betra mannlífs.
Að sjálfsögðu var ljóst að fundi þessum mundi fylgja mikið umstang og fyrirhöfn sem og varð. En með honum lögðum við Íslendingar fram mikilvægan skerf í friðarviðleitni þjóðanna. Undirbúningur undir þennan fund tókst með ágætum og hvar sem borið er niður fáum við þann vitnisburð að fundurinn hafi orðið okkur til sóma. Ég vil því nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem lögðu nótt við dag til að gera fundinn svo sem hann varð.
Um niðurstöður fundarins sjálfs eru nokkuð skiptar skoðanir. Margir urðu fyrir vonbrigðum. Skoðun mín er þó sú að þegar litið verði til baka þá verði talið að Reykjavíkurfundurinn hafi verið sá merkasti sem leiðtogar stórveldanna hafa haldið. Þar voru lagðar fram róttækari tillögur um fækkun kjarnorkuvopna og jafnvel eyðingu en áður hafa sést. Það er sannfæring mín að almenningur í þessum heimi muni krefjast þess að á þeim tillögum verði byggt samkomulag um afvopnun.
Í utanríkismálum mun ríkisstjórnin fylgja sömu stefnu og gert hefur verið. Hún telur mikilvægt að varnarsamtök vestrænna þjóða séu sterk svo þau megni að viðhalda því jafnvægi sem verið hefur í Evrópu í meira en 40 ár. Þetta er ekki síst mikilvægt nú þegar vonir eru bundnar við árangur í viðræðum stórveldanna sem leiði til gagnkvæmrar afvopnunar. Hið sama gildir um veru varnarliðsins hér á landi þótt við viljum landið sem fyrst án erlends hers. Er vera hans hér liður í þessu jafnvægi sem ríkisstjórnin telur ekki rétt að raska eins og nú er ástatt. Í samskiptum Íslendinga og Bandaríkjamanna hafa hins vegar orðið nokkrir erfiðleikar. Lausn er nú í augsýn á deilu um flutninga fyrir varnarliðið. Því ber að fagna. Við Íslendingar viljum góð samskipti við Bandaríkjamenn eins og aðrar þjóðir. En við munum standa fast á okkar rétti og engan yfirgang þola.
Góðir Íslendingar. Með þeirri þjóðhagsáætlun sem dreift hefur verið á Alþingi er kafli um horfur 1988 til 1991. Eins og gert var í síðustu þjóðhagsáætlun er þarna leitast við að líta fram á veg. Nauðsyn á því kemur m.a. glöggt fram í dæmum sem sett eru fram í þessum kafla. Þar sést að mjög lítið má út af bera til þess að sú bjarta mynd sem nú blasir við í efnahagsmálum verði dökk. Aflabrestur eða óhagstæð viðskiptakjör geta gjörbreytt þeirri þróun sem verið hefur að undanförnu. Jafnvel þó tækist við slíkar aðstæður að halda verðbólgu í skefjum, sem er vafasamt, er hætt við að erlendar skuldir ykjust á ný hröðum skrefum. Vonandi verða næstu árin hagstæð. Íslendingar vita hins vegar af gamalli reynslu að aflabrestur verður aftur og viðskiptakjörin versna. Því er afar mikilvægt að þjóðin noti nú vel þann bata sem orðinn er til þess að styrkja grundvöllinn og minnka erlendar skuldir.
Á mínum vegum er nú að ljúka framtíðarkönnun sem nær allt fram til ársins 2010. Að þessu verki hefur undanfarin tvö ár unnið mikill fjöldi áhugasamra manna sem verðskulda þakkir. Niðurstöður þessarar merku könnunar verða á næstunni kynntar almenningi. Það er von mín að um þær verði mikið rætt og fjallað því mikilvægt er að horfa langt fram á veg og lengra en áður hefur verið gert. Að sjálfsögðu eru framtíðarspár til langs tíma miklum erfiðleikum háðar og munu reynast rangar í ýmsum atriðum. Engu að síður er slík vinna ákaflega mikilvæg. Sumt er alltraust, eins og t.d. spár um mannfjölda og aldursdreifingu. Af slíkum staðreyndum má draga mikinn lærdóm um áhrif á þjóðfélagið í heild sem nauðsynlegt er að hafa í huga ef menn vilja komast hjá því að fljóta sofandi að feigðarósi. Aðrar hugmyndir um framtíðina eru meira byggðar á mati kunnáttumanna. Þær þarf þó einnig að skoða. Það gerir okkur kleift að búa okkur undir hið líklega en vera þó viðbúin því óvænta. Þannig getum við best búið okkur í haginn fyrir framtíðina.
Ég hef fylgst með þessu verki og er sannfærðari um það nú en nokkru sinni fyrr að framtíð lands og þjóðar getur orðið góð og björt ef við föllum ekki í þá gryfju að fórna langtímafarsæld fyrir skammtímagróða.