17.11.1986
Neðri deild: 12. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í B-deild Alþingistíðinda. (778)
150. mál, Skattadómur og rannsókn skattsvikamála
Flm. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það er algeng við bara þegar upp koma vandamál í okkar hagkerfi, félagslegri þjónustu eða annars staðar, að það megi ekki taka sérstaklega á því máli, það megi ekki setja sérlög, það eigi að leysa málið á almennum grundvelli. Ég þekki þetta ákaflega vel t.d. úr þeim málaflokkum sem ég hafði með að gera í heilbr.- og félmrn. fyrir fáeinum árum þar sem uppi höfðu verið þau sjónarmið að alls ekki mætti setja sérlög. Það ætti að leysa þetta í heild í tengslum við annað o.s.frv. Niðurstaðan varð þó sú að í mjög veigamiklum málaflokkum voru sett sérlög, vegna þess að þeir málaflokkar voru þannig á sig komnir að það varð að taka á þessum málum sérstaklega, og þau sérlög hafa skilað góðum árangri.
Nú liggur það fyrir að þegar lögin um tekju- og eignarskatt voru sett 1978 þá vorum við mörg þeirrar skoðunar að eðlilegt væri að láta reyna á ákvæði þeirra laga bæði varðandi ríkisskattstjóra, skattsektanefnd og rannsóknaraðila skattamála. Það er hins vegar ljóst eftir að skýrsla skattsvikanefndarinnar kemur út hér á s.l. sumri og er lögð fyrir Alþingi 18. apríl 1986, þá er ljóst samkvæmt niðurstöðu opinberrar nefndar, þar sem eru fulltrúar frá ýmsum aðilum, sérfræðingar o.s.frv., að hér er um stórfellt vandamál að ræða. Okkur grunaði það, við getum sagt við vissum það, en opinber nefnd hefur sent frá sér ítarlega skýrslu um þetta mál. Það er um að ræða vanda upp á 7-9 milljarða króna á þessu ári sem hverfa út úr landsframleiðslunni, 7000-9000 millj. kr., og koma ekki til skatts. Og það er talið að ríkið og opinberir aðilar tapi á þessu 3000 millj. kr. Það er meira en fer til allra framkvæmdaframlaga ríkisins samkvæmt fjárlagafrv. ársins 1985, sem þarna er um að ræða. Þeir sem hér eru geta borið í huganum þessa upphæð saman við ýmsar fjárveitingar eða kostnaðarliði í ríkisútgjöldunum á næsta ári. Ætli þetta væri ekki drjúgt t.d. upp í kostnaðinn við heilbrigðisþjónustuna, svo ég nefni dæmi? Eða almannatryggingakerfið, svo ég nefni annað dæmi? Það er alveg augljóst mál að ef Alþingi ekki svarar þeim kröfum og niðurstöðum, sem fram koma í áliti skattsvikanefndarinnar frá s.l. sumri, þá er tilgangslaust að leggja hlutina á borðið eins og gert er í þessu fyrir hv. Alþingi vegna þess að menn gera ekki neitt. Menn aðhafast ekki neitt og segja: Þetta er ekki hægt að afgreiða með sérlögum. Þetta verður að gera innan ramma hins almenna kerfis.
Ég er alveg sammála því að hæstv. dómsmrh. hefur þó nokkuð ýtt á þessi mál í sinni ráðherratíð og ég er sannfærður um það að þær ákvarðanir, sem hann hefur tekið í þeim efnum og dómsmrn., hafa skilað sér í því að meðferð ýmissa meiri háttar mála, fjármálabrota, hefur gengið hraðar fyrir sig en áður var. Ég er heldur ekki að halda því fram að það að setja niður skattadóm leysi málið, en það mundi sýna alvarlega viðleitni af hálfu Alþingis til að koma til móts við þessar alvarlegu niðurstöður skattsvikanefndarinnar.
Ég held að Alþingi verði að taka ákvarðanir í þessum efnum sem hinn almenni skattgreiðandi skynjar sem alvöru en ekki sem kák, ekki sem hálfkák og ég held að ákvörðun um Skattadóm væri ákvörðun og yfirlýsing af hálfu Alþingis um það að hérna ætti að fara að taka á hlutunum af alvöru og festu. Ef menn hins vegar hér á hv. Alþingi gera það ekki, þá er með því verið að lýsa því yfir að þetta rammgötótta skattakerfi sem hér er eigi bara að vera si svona áfram. Það auðvitað gengur ekki. Þar með eru menn orðnir tvöfaldir og margfaldir í roðinu, þegar þeir eru að gagnrýna skattsvik, ef þeir vilja ekki aðhafast neitt til þess að taka verulega myndarlega á þeim málum.
Ég vil sem sagt segja það að ég hef tekið eftir því sem hæstv. núv. dómsmrh. hefur verið að aðhafast í tengdum málum og ég tel að það sé þakkarvert sem þar hefur verið gert, en ég er einnig þeirrar skoðunar að þegar skattsvikaskýrslan liggur fyrir sé málið komið á nýtt stig og þar af leiðandi eigi að taka nýjar ákvarðanir, m. a. um að endurskoða fyrri ákvarðanir í þessum efnum, t.d. um það að setja upp sérstakan skattadóm.