18.11.1986
Sameinað þing: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (791)
112. mál, hússtjórnarfræðsla
Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):
Hæstvirtur forseti. Á s.l. vori kom það fram í fréttum að ákvörðun hefði verið tekin um að hætta rekstri hússtjórnarskólanna að Laugum í Þingeyjarsýslu, Varmalandi í Borgarfirði og Laugarvatni í Árnessýslu frá 1. sept. s.l.
Nú er það ljóst að rekstur hússtjórnarskóla hefur átt erfitt uppdráttar. Aðsókn að þeim hefur minnkað á seinustu árum sem eflaust má rekja til þeirrar þróunar sem orðið hefur í þjóðlífinu. Heimilisstörf eru í raun orðin aukastörf og stúlkur, sem áður hefðu hugsanlega farið í hússtjórnarskóla, leita sér nú menntunar sem færir þeim starfsréttindi en það gerir hússtjórnarnámið ekki. Það er þó augljóst að það er ekki síður nauðsynlegt nú, einmitt vegna breyttrar stöðu fjölskyldunnar, að leggja áherslu á hússtjórnar- eða heimilisfræðslu og það á öllum stigum náms. Það þarf að auka hana og efla einnig á framhaldsskólastigi þar sem hún gæti tengst fjölbrautar- og menntaskólanámi og veitt viss réttindi á þeirri námsbraut eða punkta eins og nú er kallað.
Því leikur mér hugur á að fá vitneskju um ástæðuna fyrir ákvörðun hæstv. menntmrh. um að hætta rekstri þeirra hússtjórnarskóla sem ég nefndi hér í upphafi, sbr. 1. lið fsp. minnar sem er að finna á þskj. 115, einnig hve margir hússtjórnarskólar eru nú starfandi í landinu og hvort fyrirhugaðar eru ráðstafanir til að efla hússtjórnarfræðslu í framhaldsskólum.