18.11.1986
Sameinað þing: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (803)

148. mál, hafnamál

Fyrirspyrjandi (Þórður Skúlason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör við spurningum mínum. Ég fagna því að hann skuli beita sér fyrir því að það verði veittar 10 millj. kr. til að byggja yfir líkanstöðina. Ég tel að með því móti yrði því forðað að sérhæft starfsfólk, sem stofnunin hefur yfir að ráða til þess að annast straumfræði- og líkanrannsóknir, mundi segja upp og þessi starfsemi mundi flytjast til útlanda, en þar voru slíkar tilraunir gerðar áður en þessi stofnun tók til starfa.

Í sambandi við þörfina á nýframkvæmdum og endurnýjun eldri mannvirkja liggur ekki fyrir hve mikið þarf í hvorn lið fyrir sig, en það liggur hins vegar fyrir að til hafnarmannvirkjagerðar í heild sinni þarf mikla fjármuni. Ég er hins vegar ósammála því sjónarmiði, sem kom fram hjá ráðherranum, að hugmyndir sveitarstjórnanna um hafnarframkvæmdir væru óraunhæfar. Ég held að það eigi ekki við nema í einstaka undantekningartilvikum.

Ég fagna því að ráðherrann hyggst leggja fram fjögurra ára áætlun um hafnargerðir. Ég held að það sé ekki hægt að bera því við að áætlanir hafi ekki verið gerðar þó að fé hafi verið lítið. Ég held að það sé einmitt enn meiri ástæða til að gera nákvæmar og ítarlegar áætlanir ef fjármagnið er af skornum skammti.

Hins vegar vil ég vekja athygli á að frá árinu 1975 til 1983 er umfang hafnaframkvæmda um 300-400 millj. kr. öll árin, en það er einmitt sú upphæð sem Hafnamálastofnun áætlar að þurfi að vera til staðar árlega til þess að hafnarmannvirki drabbist ekki niður og að eðlileg endurnýjun í höfnum landsins geti átt sér stað.

Síðustu 2-3 ár eru hafnaframkvæmdir þó mun minni. Fjárveiting til allra hafna, eins og hér hefur komið fram, var um 70 millj. kr. á árinu 1986 og áætluð um 160 millj. kr. á næsta ári. Stærsti hluti þessara fjárveitinga fer til greiðslu á vangreiddum ríkishluta eins og kom fram hjá hæstv. ráðh. Hér er auðvitað ekki um fjárskort að ræða heldur breyttar áherslur. Það eru til nægir peningar til að byggja t.d. brennivínsbúð hérna upp í Kringlu fyrir 40 millj. kr. og þannig mætti lengi telja. Það er líka hægt að veita peningum til þess utan fjárlaga að kaupa hús eins og hús Vörumarkaðarins og súrmjólkurstöðina sem var til umræðu á þingi fyrir stuttu. En það er eins og stjórnvöld hafi gleymt því um þessar mundir hver undirstaðan er undir velferð þessarar þjóðar. Það er furðulegt ef stjórnvöld í eyríki, sem byggir allt sitt á siglingum og sjósókn, sjá ekki nauðsyn þess að byggja góðar hafnir umhverfis landið.