18.11.1986
Sameinað þing: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (808)

152. mál, afstaða Íslands til stöðvunar kjarnorkuvígbúnaðar

Utanríkisráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Sem svar við fsp. hv. þm. vil ég segja þetta: Íslendingar hafa ekki breytt afstöðu sinni til þeirrar till., sem nefnd hefur verið sænskmexíkanska tillagan, um svokallaða frystingu kjarnavopna sem afgreidd var í 1. nefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna fyrir viku. Eins og undanfarin ár sátu Íslendingar hjá við afgreiðslu tillögunnar. Ástæður þessa eru m.a. eftirfarandi:

Till. er í öllum meginatriðum óbreytt frá fyrri tíð. Að vísu hefur verið felld niður setning sem áður var í henni og fól í sér gagnrýni á varnarstefnu Atlantshafsbandalagsins. Hins vegar eru enn í till. ýmsar vafasamar fullyrðingar, t.d. um að jöfnuður sé með risaveldunum í hernaðarmætti og þannig horft fram hjá gífurlegum yfirburðum Sovétmanna á sviði hefðbundins vígbúnaðar, auk þess sem að þeim atriðum sem um er fjallað í ályktun Alþingis frá 1985 er ekki þar farið.

Það er ógjörningur að skrifa undir slíkar fullyrðingar. Frysting mundi t.d. ekki hafa áhrif á flugvéla og kafbátavarnir Sovétmanna sem eru gífurlega öflugar með hefðbundnum vopnum og mundu halda áfram að eflast. Þannig yrði dregið úr stöðugleika og aukið á óvissu þegar til lengri tíma er litið.

Smám saman hafa menn færst frá hugmyndinni um frystingu sem síðan yrði að fylgja eftir með tímafrekum og erfiðum viðræðum um niðurskurð. Nú þykir eðlilegra að ræða fyrst um afvopnun og síðan aðgerðir til að tryggja jafnvægi og öryggi til langs tíma.

Þá finna menn það till. til foráttu eins og áður að í henni er aðeins almennt orðað og alls ófullnægjandi orðalag um eftirlit. Það verður aldrei of oft lögð áhersla á mikilvægi þess að eftirlitið sé fullnægjandi og þannig að aðilarnir geti unað við það og treyst.

Í öllu falli verða menn að gæta raunsæis í þessu efni þar sem ályktanir allsherjarþingsins skipta engu nema til komi samkomulag risaveldanna sjálfra. Forsendur þess eru að frysting og bann séu liður í víðtækari samningum um afvopnun sem sé fylgt eftir með alþjóðlegu eftirliti er sé framkvæmt þannig að aðilar uni því og treysti. Sænsk-mexíkanska tillagan uppfyllir ekki þetta skilyrði.

Á undanförnum vikum og mánuðum hafa afvopnunarmálin tekið nokkuð nýja stefnu. Á fundi leiðtoga risaveldanna í Reykjavík var fjallað um stórfelldan niðurskurð í birgðum kjarnavopna og sýndu bæði ríkin vilja ekki aðeins til að frysta núverandi ástand heldur til þess að skera niður birgðir kjarnavopna. Þessar viðræður eru enn í gangi og það er undir þessum ríkjum komið hvort árangur næst eða ekki.

Það er ankannalegt að á sama tíma og risaveldin eru að ræða sín á milli um niðurskurð skuli önnur ríki halda fast við hugmyndir um frystingu. Frysting kemur meira að segja varla til greina lengur sem fyrsta skref í viðræðum risaveldanna í átt til afvopnunar eins og vikið var að hér að framan. Sovétmenn töluðu t.d. aðeins um frystingu þegar þeir höfðu greinilega yfirburði á sviði meðaldrægra kjarnavopna í Evrópu fyrir 3-4 árum og á það skal bent að á yfirstandandi allsherjarþingi flytja þeir engar tillögur um frystingu eins og þeir hafa gert áður.

Vegna þessara breyttu forsendna hafa ýmis vestræn ríki hert afstöðu sína gegn þessari till. T.d. sátu Lúxemborg og Vestur-Þýskaland hjá í fyrra, en greiddu nú afkvæði gegn. Af ríkjum Atlantshafsbandalagsins voru það aðeins Danir, Norðmenn og Grikkir sem greiddu till. atkvæði. Norðmenn breyttu um afstöðu í fyrra með grg. um atkvæðagreiðsluna þar sem þeir nánast lýstu sig andvíga tillögunni. Þrjú ríki, Íslendingar, Spánverjar og Hollendingar, sátu hjá, en hin NATO-ríkin greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Þess má að lokum geta að Kínverjar sátu hjá við afgreiðsluna, en Japanir greiddu atkvæði gegn henni.