18.11.1986
Sameinað þing: 18. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (839)

21. mál, áhrif markaðshyggju

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Oft hefur nú verið þörf á leiðréttingu. En hafi íbúum við Súgandafjörð fækkað nokkuð á sjötta hundrað eins og hér kom fram þá hafa þeir verið yfir þúsund. (SvG: Þetta er útúrsnúningur.) Yfir þúsund samkvæmt einfaldri stærðfræði og ég vil óska eftir því að hv. 3. þm. Reykv. stundi heimanám áður en hann tekur til að fræða þingheim á þann veg sem hann er hér að gera. (SvG: Þetta er ómerkilegur útúrsnúningur.)