16.10.1986
Sameinað þing: 4. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (84)
Stefnuræða forsætisráðherra
Málmfríður Sigurðardóttir:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Ég sakna þess úr því plaggi sem hér er til umræðu, stefnuræðu hæstv. forsrh., hversu lítið er þar fjallað um byggðamál og í því litla sem um þau er sagt örlar ekki á neinni stefnu. Í fjárhagsörðugleikum undanfarinna ára hefur verulega hallað á landsbyggðina. Atvinnuþróun þar hefur dregist saman og jafnvel stöðvast á ýmsum stöðum. Smærri sjávarþorp úti á landi berjast fyrir tilveru sinni og fyrir sumum þeirra er það barátta upp á líf og dauða. Samdrátturinn og minnkandi atvinnusköpun úti á landsbyggðinni hefur valdið því að á árunum 1984-1985 fækkaði fólki á landsbyggðinni í beinum tölum. En slíkt hefur ekki gerst síðan á árunum 1945-1946.
Auknum og eðlilegum kröfum fólks til fjölbreyttara atvinnulífs og félagslegrar þjónustu er ekki sinnt. Fjármálastefna ríkisstjórnarinnar hefur aftur á móti valdið því að ný störf hafa einkum skapast á höfuðborgarsvæðinu. Öll þjónusta sogast sífellt á sama blettinn næstum því eins og það sé náttúrulögmál, meira að segja þjónusta fyrir þá atvinnuvegi sem eiga sínar dýpstu rætur á landsbyggðinni, og fyrir hvert nýtt framleiðslustarf úti á landi skapast 45 þjónustustörf á höfuðborgarsvæðinu. Þangað sem fjármagnið og atvinnusköpunin er streymir fólkið af landsbyggðinni sem hingað til hefur framleitt um 70% af útflutningstekjum þjóðarinnar. Hvernig horfir fyrir þessum gjaldeyrisskapandi atvinnuvegum ef enn fækkar þeim sem að þeim vinna? Og ég vil minna á að þorri íbúa höfuðborgarsvæðisins hefur atvinnu sína af þjónustustörfum. Hvernig horfir fyrir þeim ef verulegur samdráttur verður í framleiðslu landsbyggðarinnar? Það er ekki síður hagur þeirra að atvinna og framleiðsla eflist úti um landið.
Fjármálastefna undanfarinna ára hefur ýtt undir skefjalausan innflutning og verslunarhyggju og að nokkru á kostnað innlends iðnaðar og iðnaðaruppbyggingar. Innflutningur og verslun virðast hafa algeran forgang með fyrirgreiðslu í bönkum og lánastofnunum. Ný fyrirtæki virðast ekki fá aðgang að því fjármagni sem þau þurfa á að halda til uppbyggingar og ekki heldur þau sem fyrir eru. Þessi stefna er í raun fjandsamleg innlendri framleiðslu og bitnar hvað harðast á landsbyggðinni.
Fyrir nokkrum kvöldum var umræðuþáttur í sjónvarpinu þar sem reynt var að meta áhrif þau sem umfjöllun erlendra fjölmiðla um land og þjóð vegna undangenginna stóratburða hér kynni að hafa á ferðamannastraum hingað til lands svo og á markaðsmál. Öllum sem þar ræddu málin kom saman um að hér ættu Íslendingar gullin tækifæri sem yrði að fylgja eftir og nýta. Ferðamannaþjónusta er nýleg og vaxandi atvinnugrein hér á landi og Kvennalistinn hefur á undanförnum árum lagt fram tillögur til eflingar henni sem ég vil minna á.
Örar breytingar hafa orðið á þessum atvinnuvegi. M.a. hafa bændur í auknum og sívaxandi mæli tekið að sér að veita ferðamönnum beina, innlendum sem erlendum. Áður komu ferðamenn hingað fyrst og fremst til að kynnast hálendi Íslands, en nú hefur skoðunin meira færst ofan í byggðir og út að ströndum. Og við megum líka búast við að fá annars konar ferðamenn til okkar en áður hefur verið, ferðamenn sem vilja kynnast þjóðinni ekkert síður en landinu. Þessi fyrirsjáanlega þróun kallar á fleiri gistihús og stækkun þeirra sem fyrir eru ásamt byggingu þjónustumiðstöðva fyrir ferðamenn. Ferðaþjónustu bænda, sem er vaxandi þáttur í atvinnulífi byggðanna og hefur orðið ferðamannaþjónustunni yfirleitt ómetanlegur stuðningur, þarf að stórefla. Þar er ekki síst tækifæri til að auka þekkingu erlendra ferðamanna á því lífi sem lifað er hér. Og gleymum því ekki að í augum útlendinga hafa Íslendingar hingað til verið fáránleg dvergþjóð sem eiginlega ætti helst ekki að geta verið til.
Það þarf að kynna ferðamönnum fleira varðandi land og þjóð en hve gott sé að borða íslenskan fisk sem virtist í sjónvarpsþættinum vera eina fæðutegundin sem til greina kæmi að bera fyrir þá. Lambakjötið okkar hlaut þar enga umfjöllun. Ekki hefði þó síður verið ástæða til þess, en kannske ekkert merkilegt að framleiðsla landbúnaðar eigi sama að mæta á þessum vettvangi og annars staðar. Ullar- og skinnaiðnaður, sem hér er mikilvæg atvinnugrein, hefur óhjákvæmilegan fylgifisk í kjölfarinu sem mörgum er þyrnir í augum, lambakjötið. Og ég vil benda á það alveg sérstaklega nú, þegar óttinn við mengun fæðutegunda grúfir yfir þjóðum heims, hvílíka möguleika við eigum á matvælaútflutningi, við sem erum enn laus við þetta skelfilega vandamál.
En það sem mér fannst einkenna þessa umræðu í sjónvarpsþættinum var auðgunarsjónarmiðið, hvað við gætum nú grætt á allri þessari fjölmiðlaumfjöllun. Tilefni leiðtogafundarins, afvopnunarmál og tilraun til að koma á friði í heiminum, sem skiptir þó öllu máli, var eitthvað sem var víðs fjarri.
En ég vil leggja áherslu á að ég álít að við séum öldungis varbúin að mæta þeirri flóðbylgju ferðamanna sem gera má ráð fyrir að yfir okkur dynji, líka þegar litið er til þess að á nýjum fjárlögum er framlag til Ferðamálasjóðs skorið niður um helming.
Þau mál, sem ég hef nú drepið á, varða einkum landsbyggðina og þau eiga sammerkt í því að í stefnuræðu hæstv. forsrh. er lítið sem ekkert um þau fjallað og alls engin stefna mörkuð hvað þau varðar.
Ég ætla lítillega að víkja að skólamálum. Á þau er ekki minnst í stefnuræðunni fremur en sá málaflokkur sé ekki til. Undanfarið hefur verið nokkur umræða um hve þrengt hefur verið að kostum grunnskólanna á landsbyggðinni, bæði með niðurskurði á þátttöku ríkissjóðs í akstri nemenda í skólana og niðurskurði á sérkennslu. Þar var þó sannarlega ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Tímans vegna get ég ekki rætt þetta mál svo sem ástæða væri til, en ég minni hæstv. menntmrh. á að þetta mál verður ekki látið kyrrt liggja.
Í ár, á afmælisári Háskóla Íslands, eru fjárframlög til hans stórlega skert og þrátt fyrir stór orð um nauðsyn á eflingu rannsóknarstarfa til uppbyggingar menningar- og atvinnulífs eru framlög til Rannsóknasjóðs látin standa í stað. Með þvílíkum aðgerðum er því sleppt að greiða farmiðann inn í framtíðina. Þar verðum við þá hvergi hlutgeng.
Við vitum ekki og sjáum ekki fyrir hvers konar breytingum veröld okkar kann að taka á komandi tímum og jafnvel tæpast í náinni framtíð. Engin kynslóð hefur fyrr búið við slíka óvissu. En eitt er víst að þær breytingar geta orðið gífurlegar og gagngerar. Öllu skiptir að búa þær kynslóðir sem á næstunni vaxa upp sem best undir það að mæta til lífs og starfa í heimi sem við sjáum ekki fyrir nú hvernig kann að líta út eftir nokkra áratugi. Góð menntun og þekking er eitt af höfuðskilyrðunum til að kunna að bregðast við aðstæðum sem upp kunna að koma hverju sinni. Góð og traust menntun er besta veganestið sem við getum gefið uppvaxandi kynslóð og jafnframt besta fjárfestingin sem kostur er á fyrir þjóðarheildina. Því skora ég á hæstv. ríkisstjórn að endurskoða afstöðu sína til menntunar og menningarmála.