18.11.1986
Sameinað þing: 18. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (841)
135. mál, nýting sjávarfangs
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Hér er á ferðinni mjög gott mál en því miður er þetta umræða sem búin er að vera í gangi í þjóðfélaginu undanfarinn áratug eða jafnvel undanfarna áratugi án þess að mikið hafi verið gert. Það hafa jafnvel verið samþykktar till. hér á hv. Alþingi um það að stefnt skuli að þessu markmiði, að nýta betur það sjávarfang sem aflað er, en þessi till. er enn þá jafntímabær og þær till. sem hér hafa áður verið fluttar.
Nú skyldi maður halda að á síðustu árum, á meðan flokksbræður hv. flm. hafa setið í sjútvrn., að eitthvað sérstakt hafi verið gert í þessum málum. En því miður, það ber ekki mikið á því. Jafnvel sú setning, sem er önnur greinin í grg., þar sem sagt er að kvótinn hafi gert einhverja sérstaka hluti í sambandi við þetta, því miður, kvótinn hefur ekki orðið til þess að breyta einu eða neinu, nema síður sé, til þess að nýting sjávarafla hafi verið aukin á þeim árum sem kvótinn hefur verið.
Það er nú svo að kraftasóknin hefur ekki horfið með kvótanum og kraftasóknin hér á landi er enn þá í fullum gangi. Það að afla mikið eða sinna því ekki hvernig sá afli, sem á land er borinn eða í skip er fenginn, er nýttur. Kvótinn hefur jafnvel orðið til þess að þessir hlutir hafa farið á hinn verri veg þannig að sú fiskveiðistjórnun, eða kvótinn, sem við búum við núna hefur orðið til þess að aflinn hefur ekki verið fluttur í land heldur verið kastað í sjóinn strax á miðunum. Það er því hinn mesti misskilningur sem segir hér í grg., með leyfi hæstv. forseta, þar sem segir:
„Með tilkomu kvótans er því tímabili sögunnar lokið þegar afkoma fiskiskipa fór aðallega eftir því hversu mikill afli barst að landi og hversu hratt.“ Þetta kemur hvergi heim og saman og enn er sagt í grg.: „Nú er afkoma frekar komin undir því að verðmæti þess afla er heimilt er að veiða sé sem mest.“
Það hefur ekki borið á þessu og kraftasóknin er sú hin sama og áður var. En miðað við allt það umtal sem átt hefur sér stað í sambandi við ágæti þeirrar fiskveiðistjórnunar og ágæti þess ráðherra sem hefur stjórnað hér sjávarútvegsmálum undanfarin fjögur ár, þá gæti maður búist við því að till. eins og sú sem hér er til umræðu væri algjörlega óþörf. Fjölmiðlar og ráðuneyti hafa lýst ágæti fiskveiðistefnunnar það rækilega á undanförnum mánuðum og undanförnum árum að það virtist sem svo að svona till. væri algjörlega óþörf. Aukin verðmæti, aukinn afli, aukið verðmæti afla, betri nýting fiskiskipa og betri nýting fiskvinnslustöðva. Þetta er sem sagt það sem hefur fylgt þeirri stefnu sem Framsfl. og ríkisstjórnin hefur fylgt á undanförnum árum. En eins og ég sagði áðan þá er þessi till. jafnþörf nú og hún var fyrir tíma framsóknarráðherra í sjútvrn. Þess vegna er leiðari eins og sá sem birtist í Tímanum fyrir nokkrum dögum um markvissa stjórnun sjávarútvegsmála eins og hálfgerður gríntónn í sambandi við þessa hluti.
Í Fiskifréttum föstudaginn 6. júní s.l. kom frétt þar sem sagt er frá upplýsingum sem Ingólfur Arnarson hjá Fiskifélagi Íslands gaf á ráðstefnu um þróun sjávarútvegs sem haldin var í Reykjavík þá vikuna á undan. Með leyfi forseta, þá segir svo:
Hann leiddi tölurök að þeim staðhæfingum sínum að kastað hefði verið í sjóinn hrognaverðmæti upp á 316 millj. kr. fyrstu þrjá mánuði ársins. Á ofangreindu tímabili hefði þorskaflinn numið 160 þús. tonnum miðað við óslægðan fisk. Af þessum afla hefði slægður þorskur togaranna numið 44 000 tonnum en slægt um borð á bátum 28 000 tonnum. Samtals slægt úti á sjó 72 000 tonn. Ef gengið væri út frá viðurkenndum nýtingartölum gæfi þetta 4230 tonn af hrognum.
Ingólfur sagði að miðað við innvigtunarskýrslur hefðu í mesta lagi 150 tonn af þessu magni skilað sér í land. Getur það verið að á tíma fiskveiðistjórnunar, eins og nú á sér stað, þá eigi sér stað slík sóun sem þessi? Væri ekki, ég segi ekki nær, væri ekki þörf á því, þegar við erum að ræða þessi mál, að nauðsynlegt sé að flytja slíka till. sem þessa, að það væri tekið í taumana í sambandi við slíka sóun og þá sem ég nefndi hér og haft er eftir Ingólfi Arnarsyni fulltrúa í Fiskifélaginu? Hvernig stendur á því að sjútvrn. grípur ekki í taumana þegar slíkir hlutir sem þessir eiga sér stað, þegar stjórnunin er það miðstýrð að hverju fiskiskipi hringinn í kringum landið er stjórnað, gefinn ákveðinn skammtur, en þessi skammtur er án nokkurra kvaða, án nokkurra skilyrða?
Það kemur líka fram síðar í grg. hvernig hlutirnir eiga sér stað og hvað er að eiga sér stað á miðunum hringinn í kringum landið við þá fiskveiðistjórnun sem við búum við. Flm. nefndi hér í ræðustól aðan að 60 000 tonnum af afla væri kastað úr togurunum. Til hvers erum við að hafa kvóta á skip þegar þetta er leyft, aflakvóta, takmörkun sóknar, og leyft er að kasta, eins og hér er sagt, um 20% af afla skuttogara, um 60% af afla frystitogara? Við búum við það að það er bannað að sækja afla og hann bundinn ákveðnum kvöðum og á sama tíma hendum við þessum verðmætum í hafið.
Eitt af því sem hefur leitt af fiskveiðistjórnuninni eru frystitogarar, bein afleiðing kvótastjórnunarinnar. Hver er munurinn á almennum skuttogara og frystitogara? (Forseti hringir.) Skuttogarinn kastar ekki nema 20% en frystitogarinn 60%. Þetta er það sem sú fiskveiðistefna, sem við höfum við búið við undanfarin ár, er að leiða yfir okkur.
Hér er talað um það að auka aðstoð við vöruþróun og búa fyrirtækjum aðstöðu til hennar og einnig er talað um það að stórefla markaðsleit. Skyldi þetta nú falla heim og saman við þá þróun sem er að gerast í sjávarútvegsmálunum í sambandi við gámaflutningana og ferskfiskútflutninginn? Er þetta eitthvað sem hægt er að kalla vöruþróun, að flytja í auknum mæli út hráefni fyrir erlenda aðila að fullvinna?
Ég held að þó að þessi till. sé góð og gild og sjálfsagt að fara um hana góðum höndum, þá þurfum við fyrst og fremst að huga að því að breyta þeirri fiskveiðistefnu sem við búum við. Ef henni yrði breytt þá eru líkur til að ýmislegt af því sem hér er nefnt mundi fara á betri veg.