19.11.1986
Neðri deild: 13. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í B-deild Alþingistíðinda. (860)

157. mál, aðför

Flm. (Jón Magnússon):

Virðulegi forseti. Á þskj. 167 hef ég leyft mér að flytja frv. til laga um breytingu á 33. gr. aðfararlaganna, og legg til að hún orðist svo:

„Þegar aðfararheimild er fyrir hendi og fógeti álítur að öðru leyti ekkert því til fyrirstöðu að verða við beiðni um aðför tiltekur hann stund til aðfarar svo sem verða má eftir óskum dómhafa. Fógeti getur ex officio eða skv. beiðni dómhafa boðað dómfellda til að mæta við fyrirtöku gerðarinnar með áskorun sem hann lætur hlutaðeigandi stefnuvotta birta dómfellda a.m.k. sjö dögum fyrir fyrirtökuna. Í áskoruninni skal getið um tilefni fyrirtökunnar og hvenær og hvar hún fari fram.

Mæti dómfelldi ekki við fyrirtöku gerðarinnar getur fógeti að kröfu og ábendingu dómhafa gert aðför í þinglýstum og skráðum eignum eða eignarréttindum dómfellda. Fógeti skal tilkynna dómfellda um aðförina með ábyrgðarbréfi.

Verði aðför ekki framkvæmd skv. ofangreindu getur fógeti framkvæmt hana að heimili dómfellda, starfsstöð hans eða þar sem dómfellda er að finna. Ef dómur dæmir mann til að framselja muni eður af hendi láta má aðför hefja þar er þeir eru fyrir. Nú á dómfelldi eigi heimili á Íslandi og er þá rétt aðför að hefja þar er hann verður fyrir eða munir hans eru sem til fullnægingar má nota.“

Ég vek athygli á því að síðustu tvær málsgreinarnar eru samhljóða síðustu málsgreinum núverandi 33. gr. aðfararlaganna.

Hér er lögð til sú breyting á aðfararlögunum að miðað er við það að aðför geti hafist skv. mati fógeta eða beiðni dómhafa á starfsstöð viðkomandi fógeta. Þegar um slíkt er að ræða, sem er jú frávik frá þeirri meginreglu aðfararlaganna að aðför skuli hefja á heimili dómfellda, þá er gert ráð fyrir því miðað við þessa tillögu að gerðarþola sé birt áskorun um fyrirkall með a.m.k. sjö daga fyrirvara fyrir fyrirtökuna og mæti hann ekki við fyrirtökuna þá megi framkvæma aðför í þinglýstum eða skráðum eignum hans eða eignarréttindum. Þegar um slíkt er að ræða þá er lögð sú skylda á hendur fógeta að hann tilkynni gerðarþola í ábyrgðarbréfi um það að aðför hafi átt sér stað í þar tilgreindum réttindum.

Þessi breyting er lögð til fyrst og fremst til þess að draga úr kostnaði við aðfarargerðina. Aðfarargerðir hér á landi nema að líkindum nokkrum þúsundum á ári. Í mörgum tilvikum, sérstaklega þegar um er að ræða aðfarir vegna vangreiddra gjalda til ríkis eða sveitarsjóða, er um það að ræða að sami embættismaður framkvæmir mjög margar aðfarir í einu, eða um svipað leyti. Það leiðir af sjálfu sér að það kostar ákaflega mikinn tíma og fjármuni þegar fógeti með þeim hætti þarf að fara hús úr húsi ásamt tveimur til þremur mönnum í stað þess að geta kvatt viðkomandi gerðarþola að mæta á starfsstöð sína og tjá sig um eignir og hann getur síðan framkvæmt aðförina.

Í langsamlega flestum tilvikum er vitað um eignir gerðarþola þá aðför er framkvæmd. Úti á landsbyggðinni skiptir þetta kannske enn þá meira máli vegna þess að þar eru jú að sjálfsögðu vegalengdir mun lengri. Þess eru dæmi að aðfararkostnaður sé margfaldur kostnaður upphaflegs höfuðstóls plús vaxta og málskostnaðar.

Ýmsir fógetar og lögmenn hafa um langan tíma haft áhuga á því að breyting í þessa veru yrði gerð. Fyrst og fremst í því skyni að draga úr kostnaði fyrir gerðarþola og til þess að minnka starfsálag á embættismönnum. Í því skyni er þetta frv. flutt.

Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.