20.11.1986
Sameinað þing: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (867)
62. mál, samfélagsþjónusta
Flm. (Kristín S. Kvaran):
Herra forseti. Það mál sem hér er til umræðu er 62. mál þingsins um samfélagsþjónustu sem úrræði í viðurlagakerfinu. Flm. auk mín eru hv. þm. Salome Þorkelsdóttir, Árni Johnsen, Friðjón Þórðarson og Valdimar Indriðason.
Í ályktunargreininni segir svo:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa nefnd til að kanna hvort endurgjaldslaus vinnuþjónusta í þágu samfélagsins geti við ákveðnar aðstæður komið í stað afplánunar dóma í fangelsi og einnig orðið til þess að gera skilorðsdóma markvissari. Slík vinna yrði samkvæmt nánari ákvæðum laga og ákvörðunum ákæruvalds og dómstóla.“
Herra forseti. Það er ýmislegt sem mælir með þessari aðferð sem úrræði þegar dæma þarf í refsimálum. Ég hef undanfarið ár verið að vinna að því að kynna mér hvernig þessari þjónustu er háttað á Norðurlöndum og Englandi. Ég hef aflað mér gagna og ég hef átt viðræður við þá sem hafa haft veg og vanda af umsjón og eftirliti með þessari samfélagsþjónustu. Með því hef ég komist að raun um að það er afskaplega fátt, ef nokkuð, sem mælir á móti henni.
Samfélagsþjónusta var tekin upp á Englandi 1973, í Danmörku 1982 og í Noregi 1984. Felst hún í því að gera dómendum kleift að ákveða að dæmda beri skylda til að fullnægja dómi með störfum í þágu samfélagsins. Flm. telja að þetta geti í allmörgum tilvikum komið í stað óskilorðsbundinna dóma og eftir atvikum í stað annarrar refsingar og þar með stuðlað að því að gera skilorðsdóma gagnlegri og markvissari og með því fengist aukið aðhald.
Skilorðsdómar verða markvissari með því að þessi úrræði væru til staðar. Það yrðu skarpari skil á milli óskilorðsbundinna og skilorðsdóma. Núverandi kerfi gerir ráð fyrir að sá möguleiki geti skapast að dæmdu séu látnir lausir úr fangelsi gegn skilorði, þ.e. að hluti refsingar er tekinn út í fangelsi og afgangur tímans í skilorði. Með þeim úrræðum sem till. gerir ráð fyrir er hins vegar ljóst að þeir sem afplánuðu dóm sinn með samfélagsþjónustu í stað fullnustu í fangelsi fengju ekki frádreginn neinn tíma eftir að þeir á annað borð hefðu gengist undir að fullnægja dómi með störfum í þágu samfélagsins. Með þessu móti er fengið aukið aðhald og skarpari skil mynduðust.
Á þessu upphafsstigi í umræðum og áður en málið er fullkannað vilja flm. ekki útiloka þann möguleika að til umræðu geti verið að nýta þessi úrræði eftir atvikum í stað annarra refsinga, t.d. þar sem reynslulausn hefði verið hugsanleg og einnig að nefndin kanni hvort skilorðsdómar geti komið inn í dæmið. Flm. vilja ekki loka á neitt þó þeir telji meginregluna eiga að vera að þetta gildi fyrst og fremst um óskilorðsbundna dóma.
Reynslan af því að hafa skilorðsdóma með í myndinni hefur verið misjöfn. T.d. hefur það ekki gefist vel í Englandi. En ég tel sjálfsagt að nefndinni yrði falið að athuga alla möguleika til fulls og hvað það er sem á best við í okkar viðurlagakerfi og við okkar aðstæður.
Þau atriði eru augljós sem mæla með þessu úrræði og ber þá fyrst að nefna hve langur tími líður oft á tíðum frá því að dómur fellur og þar til afplánun hefst. Það er mál þeirra manna sem að fangelsismálum starfa að slík bið geti oftlega orðið til þess að gera endanlega út um framtíð viðkomandi. Í millitíðinni frá dómi og að úttekt hans er hann e.t.v. búinn að koma sér nokkurn veginn á réttan kjöl í lífinu, farinn að stunda fasta atvinnu og stundum kominn með fjölskyldu á framfæri. Þá kemur að því að taka út dóminn og má þá segja að allt sem byggt hafi verið upp hrynji.
Þá ber að telja fram þann þátt sem ekki er hvað minnst mikilvægur, sem er að fangelsi getur víst seint talist vera mannbætandi stofnun. Sumir ganga svo langt að segja að þeir sem setið hafa í fangelsi, og þá sérstaklega ef um ungt fólk er að ræða, bíði við það óbætanlegt tjón. Víst er að töluvert er um fíkniefnanotkun í fangelsum erlendis og reyndar fullsannað að fjöldamargir ánetjast fíkniefnum þar. Það hefur reyndar verið staðhæft að það eigi einnig við um fangelsi hérlendis og notkun er töluverð. Að aflokinni fangelsisvist tekur auðvitað ekkert betra við. Þá liggur leiðin oft beinustu leið í gamla félagsskapinn aftur og endurtekning brota hefst.
Með þessari þáltill. er markmiðið fyrst og fremst að skora á ríkisstjórnina að skipuð verði nefnd til að kanna hvort hérlendis megi koma á samfélagsþjónustu við ákveðnar aðstæður. Auðvitað þarf einnig að kanna hvort heimild sé að finna í gildandi lögum fyrir þess konar úrræðum. Flm. telja þó að heimild geti verið að finna í lögum, hegningarlögum, þar sem fjallað er um skilorðsdóma, en þar er heimildina að finna sem Norðmenn byggja þessa dóma á. Einnig telja flm. V. kafla laganna, þar sem fjallað er um refsingar, geta gefið tilefni fyrir heimildina og á ég þar við 34. gr. almennra hegningarlaga, en þar segir, með leyfi herra forseta:
„Í fangelsi má dæma menn ævilangt eða um tiltekinn tíma, ekki skemur en 30 daga og ekki lengur en 16 ár.
Þegar lögin leggja fangelsi við afbroti er átt við fangelsi um tiltekinn tíma nema annað sé sérstaklega ákveðið.“
Það er þetta atriði „nema annað sé sérstaklega ákveðið“ sem orkar tvímælis um hvort túlka megi sem heimildargrein. Nefndin þarf einnig að kanna á hvern hátt verði hægt að koma við úrræðum af þessum toga, hvar hægt yrði að inna þjónustuna af hendi og á hvern hátt tímamælingu refsingar yrði háttað.
Líklegt má telja að nefndinni reynist auðvelt að hafa til samanburðar þá reynslu sem fengist hefur á Norðurlöndum, en þar fer slík samfélagsþjónusta fram að miklu leyti í tengslum við líknarfélög, ýmiss konar góðgerðarstarfsemi og hjá bæjar- og sveitarfélögum. En þó er töluvert um að einkafyrirtæki sækist eftir að taka verkefni að sér. Samfélagsþjónustan felst svo í því að hinn dæmdi innir þessi störf af hendi utan ákveðins vinnutíma eða skólatíma og þá eru það einkum kvöldin og helgar sem eru nýtt í þessum tilgangi, og þá yfirleitt svona 5-8 klukkustundir á viku. Þó er það svolítið misjafnt. Þessi vinna getur falist í svo ótal mörgu og má þar nefna t.d. hreingerningar, viðhald, viðgerðir, ýmiss konar garðyrkja og margt fleira. Þessi störf eru þá framkvæmd undir stjórn ákveðinna aðila sem hafa ábyrgð og eftirlit með því að hinn dæmdi leysi þau af hendi eins og til var ætlast og á þeim tíma sem fyrir fram hafði verið ákveðinn. Það er lengd þess dóms eða dóma, sem viðkomandi hefur hlotið, sem ræður skyldunni í samfélagsþjónustunni og er höfð til viðmiðunar því hvaða klukkustundafjöldi er hæfilegur. Danir hafa þá höfuðreglu að samfélagsþjónusta geti komið í stað 6-8 mánaða dóma og að ungir afbrotamenn sitji fyrir að komast að. Svipað er að segja um önnur lönd, en viðmiðunin er yfirleitt sú að fjögurra mánaða dómur er 80 klst., 6 mánaða dómur frá 80 klst. og upp í 120 klst., 8 mánaða dómur tekur 120-150 klst. og 12 mánaða dómur 150-200 klst. Mjög svipað hlutfall gildir í öðrum löndum þar sem þessi þjónusta hefur verið tekin upp en fer þó upp í 240 klst. í Englandi.
Eftir því sem árin hafa liðið hefur dómum í samfélagsþjónustu farið fjölgandi og má nefna sem dæmi að í Englandi urðu þeir á árinu 1984 tæplega 38 þús. Í Danmörku er hlutfall þeirra sem dæmdir eru í samfélagsþjónustu svipað, en það er u.þ.b. 1/4 allra dæmdra sem taka út dóminn í samfélagsþjónustu. Bendir allt til þess að þróunin verði á sama veg í Noregi, en þessi úrræði eru svo nýlega komin til sögunnar þar, eins og ég greindi frá fyrr í máli mínu, og þar af leiðandi ekki komin reynsla á það til hlítar.
Reglan virðist aðallega vera sú að lágmarksdómstími til þess að fara í samfélagsþjónustu eru þrír mánuðir en hámark 12 mánuðir. Þau afbrot sem yfirleitt eru höfð til viðmiðunar við þessa dóma, sem er breytt í samfélagsþjónustu, eru fyrst og fremst svokölluð auðgunarbrot, bílþjófnaðir, innbrot, skemmdir á eignum o.s.frv. Ölvunarbrot og önnur hin grófari brot, svo sem líkamsmeiðingar ýmiss konar koma yfirleitt ekki til greina.
Við lestur þeirra gagna sem ég aflaði mér og af samtölum við hlutaðeigendur má ráða margt mjög merkilegt, og mér þykir einna verst að geta ekki komið nema örlitlu broti af því á framfæri hér við þessar umræður, en þar var t.d. að finna lýsingar þeirra sem höfðu fengið dóm um samfélagsþjónustu. Oft var um að ræða fólk sem hafði framið síendurtekin afbrot, svokallað síbrotafólk. Þar af leiddi auðvitað fangelsisvist hvað eftir annað og hafði gert í gegnum árin. Yfirleitt var þetta fólk vart komið út úr fangelsi fyrr en afbrotaferillinn byrjaði aftur. Það virtist í nær öllum tilfellum útilokað að brjóta upp þann vítahring sem þetta fólk var komið í. Lífsferillinn breyttist hins vegar umtalsvert þegar þeir fengu dóm um samfélagsþjónustu.
Ef hinir dæmdu voru atvinnulausir fyrir úttekt dóms við samfélagsþjónustu var gengist í það að útvega viðkomandi fasta vinnu, en eitt af grundvallarskilyrðum fyrir því að samfélagsþjónusta nái tilgangi sínum er að hún sé unnin utan venjubundins vinnutíma eða skólatíma. Með því er gamli farvegurinn brotinn upp og oft fer það svo að gömlu vinirnir verða minna mikilvægir en áður var og færi gefst á því að brjóta upp óæskilegan félagsskap. Einnig kemur fram að það nýja umhverfi sem hinn dæmdi komst í og það að kynnast fólki sem leit lífið allt öðrum augum en hann átti áður að venjast, það hafði annað hugðarefni og sinnti áhugamálum sínum launalaust, átti sinn þátt í því að koma hinum dæmda á réttan kjöl aftur.
Það var og mjög sterkur þráður í frásögnunum hve þessu fólki virtist hafa tekist að ná fram þeirri tilfinningu með sjálfu sér að það væri með þessari þjónustu að bæta fyrir afbrotið sem það hafði framið og taldi sig að því loknu geta sagt skilið við þessa braut. Í fangelsinu hafði þetta sama fólk hins vegar ekki fengið það á tilfinninguna að það væri að bæta fyrir neitt, fremur þvert á móti. Þegar það hafði lokið afplánun í fangelsi kom það yfirleitt enn harðara út en það hafði áður verið og að ýmsu leyti hatrammara í hugsun út í það samfélag sem hafði sent það í fangelsi. Meðan á samfélagsþjónustunni stóð og að henni aflokinni náði það oft að losa um þessa heiftugu hugsun út í samfélagið og réttarkerfið og fannst sem nú væri komið að því að það gæti hagað sér í samræmi við þau lög og þær reglur sem samfélagið hefur sett sér. Þó ber að taka fram að þessar frásagnir voru langt í frá að vera einhver glæsimynd. En þó örlaði reyndar á framför hjá hinum dæmda í átt að nýtum þjóðfélagsþegn, í fyrsta sinn frá því að afbrotaferillinn hófst, og fannst mér það nú þó nokkuð.
Nú kynni einhverjum að detta í hug að með þessu móti sleppi hinn dæmdi allt of vel. Hann sleppi við að fara í fangelsi. Þessi skoðun kom einmitt mjög sterklega fram hjá öllum þeim sem ég talaði við og einnig í þeim gögnum sem ég hef yfirfarið, og má segja að þetta hafi einnig verið fyrstu viðbrögð manna almennt, líka dæmdra. En það kom fljótlega annað hljóð í strokkinn þegar til kastanna kom og ljóst var að dæmdi verður að lifa mjög reglubundnu lífi, sem er nú nokkuð sem mörgum fannst jafnast á við frelsissviptingu. En það er einmitt frítíminn sem er notaður til að inna af hendi þessa endurgjaldslausu þjónustu eins og áður sagði.
Í þessum dómum er lögð mjög rík áhersla á það að ef um afbrot verður að ræða á tímabilinu eða ef samningur er rofinn, svo sem eins og með því að mæta of seint eða í slæmu ásigkomulagi eða koma alls ekki og láta ekki vita af sér, þá er strax tilkynnt um það af eftirlitsmönnum á staðnum og afgreiðsla málsins gengur þá mjög hratt fyrir sig eftir annað brot, þ.e. fyrst fær viðkomandi áminningu en síðan er strax farið út í það að rjúfa samfélagsþjónustuna og þá tekur við fangelsi.
Það virðist vera nánast eins farið um þetta atriði alls staðar þar sem þetta hefur verið reynt. Megináhersla er lögð á það að dómar sem fjalla um brot á samfélagsþjónustu gangi mjög fljótt fyrir sig. Gengist er í það að fá fram nýjan dóm.
Ég vil að lokum geta um það að allir þeir, sem ég hef rætt þetta mál við bæði heima og heiman og starfað hafa að þessum málum og reyndar einnig þeir sem tekið hafa út slíkan dóm, þeim virðist ekki blandast hugur um ágæti slíkra úrræða og segir það nú allnokkuð. Þess vegna vonast flm. til þess að þessi till. hljóti jákvæða umfjöllun og afgreiðslu þannig að unnt reynist að bæta þessu við sem úrræði í viðurlagakerfinu.
Að lokinni þessari umræðu, herra forseti, legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.