20.11.1986
Sameinað þing: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í B-deild Alþingistíðinda. (873)
62. mál, samfélagsþjónusta
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Ég kem hér í ræðustól aðeins vegna þess að það hefur verið minnst á þá nefnd sem er að vinna að undirbúningi frv. um fangelsismál þar sem ég er einn af nefndarmönnum. Því miður er formaður nefndarinnar ekki á þessum fundi sem gæti að sjálfsögðu betur svarað fyrir hvað líður störfum nefndarinnar. En það eru ekki margir dagar síðan ég spurði hann hvað liði drögum að frv. sem verið er að smíða, ef svo má að orði komast. Hann tjáði mér að þess væri ekki langt að bíða að við fengjum að sjá þessi drög. En nefndin hefur ekki séð þau enn þá. Það er verið að setja frv. saman eftir þeim niðurstöðum sem nefndin hefur unnið að. Það er alveg rétt að þetta er búið að taka langan tíma og lengri tíma en við hefðum áreiðanlega öll óskað, en það má gjarnan geta þess að m.a. hefur nefndin skoðað öll fangelsi sem eru í landinu í dag til að kynna sér hvernig aðstæður eru þar og hvernig starfsemin fer fram innan veggja þeirra.
Ég er meðflm. að þessari þáltill. sem hér er til umræðu og það upplýsir væntanlega minn hug í þessu máli. Ég tel það mjög brýnt að gera úrbætur í fangelsismálum á Íslandi. Ég hef áður látið þá skoðun í ljós á hv. Alþingi. Ég held að það sé meginmálið, eins og ég tel að þessi þáltill. einmitt fjalli um og kom reyndar fram í máli hv. 7. þm. Reykv., að hjálpa þeim sem þurfa að taka út refsingu til að verða betri og nýtari þjóðfélagsþegnar eftir en áður.