20.11.1986
Sameinað þing: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í B-deild Alþingistíðinda. (874)
62. mál, samfélagsþjónusta
Flm. (Kristín S. Kvaran):
Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þm. Friðjóni Þórðarsyni að það má aldrei alhæfa í þessum efnum frekar en öðrum, ekki í neinu tilliti. Auðvitað er það svo sem betur fer að fangelsin eru mjög misjöfn bæði hér á landi og erlendis. Þess vegna er mjög misjafnlega erfitt fyrir menn að taka út dóma og mismikið álag því fylgjandi bæði andlega og líkamlega.
Bygging nýrra fangelsa er orðin brýn. E.t.v. ættum við frekar að snúa okkur að því að bæta úr þeim stöðum sem nú gegna því hlutverki að vera fangelsi og fyrir eru. Ég leyfi mér í þessu sambandi að lesa upp úr bréfi frá fyrrverandi refsifanga sem ég fékk um daginn. Hann gaf mér góðfúslega leyfi til að nota þetta bréf alveg eins og ég vildi. Það gefur nokkuð góða mynd af því hvernig fangelsi eru í dag. Svo ég grípi þar niður, með leyfi forseta, kemur að því að hann segir:
„Starfandi er þingnefnd sem skipuð var 1982 til að gera úttekt á fangelsismálum í landinu, tillögur til úrbóta og drög að opinberri stefnu. Sú nefnd hefur með höndum viðamikið langtímaverkefni og það er með engri sanngirni hægt að vísa til hennar um lausn á aðkallandi vanda dagsins í dag, enda er hún aðeins ráðgefandi aðili.“
Svo gríp ég aftur niður síðar. Þar segir: „Í hegningarhúsinu var öll þjónusta, sem stendur í valdi starfsmanna að veita, með ágætum. Hins vegar er fangarýmið sjálft ófullnægjandi sem mannabústaður, enda húsið orðið aldargamalt og tíu árum betur. Fangarýmið samanstendur af um þrettán svefnklefum, snyrtiaðstöðu, þvottahúsi og gangi eftir rýminu endilöngu, engu sameiginlegu athvarfi öðru. Svefnklefar eru með brýnasta búnaði, einu til þremur rúmum sem boltuð eru niður í steingólfið. Fyrir klefagluggunum eru voldug járnvirki og klefahurðir eru járnslegnar og efnismiklar með tvöföldum öflugum læsingarbúnaði. Allt eru þetta minjar frá öldinni sem leið um ríkjandi viðhorf stjórnvalda þess tíma til glæpamanna sem ógnuðu lífshagsmunum fólks og voru hættulegir nánasta umhverfi sínu.
Íslenskir afbrotamenn eru í dag að stærstum hluta meinleysingjar innan múranna sem í einu og öllu hlýða fyrirmælum gæslumanna sinna. Um þá má gilda allt önnur varsla og meðferð en gerðist fyrir öld síðan. Sjálfsagt er að gera endurbætur á fangarými hegningarhússins og bæta við það félagslegri aðstöðu. En það sem öllu máli skiptir um velfarnað refsifanga er að látið verði af geymslusjónarmiðum í fangelsismálum.
Í hegningarhúsinu er nánast ekkert við að vera fyrir fanga allan liðlangan daginn. Þarna eru þeir geymdir og verða að hafa ofan af fyrir sér sjálfir. Mest kvörtunarefni fanganna sín á milli var iðjuleysið. Þeir höfðu engar skyldur til nýtilegra verka og þjáðust af leiðindum og auðnuleysiskennd. Iðjuleysið var undirrót óánægju um alla mögulega hluti og skapaði einnig þörf fyrir daglega skammta af róandi lyfjum, raunverulega þörf fyrir þá fanga sem því miður stöðust ekki álagið. Þó verður að taka fram að þessi lyf lágu alls ekki á lausu.“
Í lok bréfsins kemur fram: „Að lokum vil ég fullvissa þig um að fangelsisdvöl er svo miklu verri en frelsissviptingin ein sér með öllu því sem henni fylgir svo að meðalhraustir menn og þaðan af lélegri þurfa viðeigandi lyf til að geta haldið stillingu sinni við þær aðstæður sem nú ríkja í sumum fangelsum fyrir úttektarfanga. Meðan ekkert er aðhafst verður það alls ekki mannbætandi að sitja í fangelsi. Þau halda áfram að framleiða afbrotamenn og flestum mun reynast afar erfitt að koma út í samfélagið eftir fangelsisdvöl.“
Af þessum lestri má ráða að úrbætur á þeim fangelsum sem við eigum í dag eru mjög brýnar svo ekki sé meira sagt. En við skulum ekki láta þær ástæður trufla okkur sem helstar hafa verið neikvæðar taldar annars staðar, svo sem eins og að það sé verið að taka atvinnu frá öðrum með því að koma á samfélagsþjónustu. Hér er alls ekki atvinnuleysi, eins og hefur komið fram hér og við vitum öll, en hins vegar er það mjög mikið í öðrum löndum eins og t.d. í Danmörku þar sem einmitt hefur komið fram þetta umkvörtunarefni í sambandi við samfélagsþjónustuna. Það er heldur ekki tíðkað í sambandi við samfélagsþjónustu að fangar séu í vinnuhópum. Það er alveg í þeirri mynd sem hv. ræðumaður lýsti að væri í Danmörku. Það er þannig annars staðar líka þar sem um samfélagsþjónustu er að ræða.
Ég á heldur ekki nokkra von á því að það verði litið á það sem niðurlægingu á nokkurn hátt eða hættu á því að fá á sig stimpil og alls ekki meiri stimpil en að fara í fangelsi að takast á hendur þessa endurgjaldslausu vinnuþjónustu. Þá skoðun styð ég með þeirri reynslu sem ég hef öðlast eftir að þessi þáltill. kom fram á sjónarsviðið. Það hefur hringt til mín fjöldinn allur af fólki og átt við mig viðtöl og nú síðast fékk ég það bréf sem ég var að lesa upp úr. Það bendir til þess að þessu fólki finnst það geta orðið til gagns í þjóðfélaginu, fólki sem hefur áður setið í fangelsi, og að það geti unnið þarfaverk. Það hefur verið nefnt við mig að það gæti t.d., þó ekki væri annað, reynt að afla félaga í Rauða krossinn þannig að það væri hægt að styrkja ýmsa starfsemi í fangelsinu í líknarfélögum og annað. Dæmi eru þess að menn sem t.d. eru alkóhólistar og verða fyrir því óláni að hrasa á þrönga veginum geta átt von á því, þrátt fyrir að hafa staðið sig mjög vel í að standa á móti Bakkusi í mörg ár, að það takist ekki þegar þeir þurfa að sitja af sér dóma í fangelsi við þær aðstæður sem koma fram í bréfinu frá fyrrverandi refsifanganum. Fólk vill heldur vinna af sér með því að vinna samfélaginu gagn en að láta þetta sama samfélag standa straum af kostnaði sem hlýst af veru í fangelsi. En kostnaðurinn er gífurlegur.
Ég vil að lokum þakka þann stuðning sem þessi þáltill. hefur fengið bæði hjá hv. þm. og hæstv. ráðh. og ég vonast þess vegna eftir mjög jákvæðum framgangi þessa máls.