20.11.1986
Sameinað þing: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (880)
26. mál, útboð opinberra rekstrarverkefna
Flm. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég þakka þær undirtektir sem þessi tillaga fær og sýnist mér af þeim að þetta mál sé mjög gott, enda átti ég ekki von á öðru en að fulltrúar argasta afturhaldsins á Alþingi stæðu upp og mæltu gegn þessari þáltill. Tel ég það vera málinu mjög til framdráttar og vil ég þakka hv. síðasta ræðumanni kærlega fyrir hjálpina.
Hv. síðasti ræðumaður gat þess að fyrir lægi önnur tillaga en það er tillaga hv. 2. þm. Austurl. Þar er um að ræða útboð á verklegum framkvæmdum og varðar samskipti einkum vörubílstjóra og verktakafyrirtækja. Af því tilefni vil ég taka fram að því hefur verið haldið fram, og hæstv. samgrh. hefur staðfest það, að sú útboðsstefna sem fylgt hefur verið á síðustu árum hafi sparað verulega fjármuni og gert það að verkum að framkvæmdamáttur fjármagnsins sem fer til vegagerðar til að mynda hafi verið talsvert meiri en ella. Og ég lýsi því hiklaust yfir að þeirri stefnu á auðvitað að halda áfram því að það er skylda opinberra aðila fyrst og fremst að nýta fjármagn skattborgaranna vel en ekki að vera þjónustufyrirtæki fyrir einstaklinga sem kannske hafa keypt sér bíla eða minni fyrirtæki og ætla að lifa á ríkisframkvæmdum. Þeir geta sameinast og boðið í verk og hafa sums staðar gert það með góðum árangri. Ég skil það vel að í sumum tilvikum þarf að gefa nokkurn aðlögunartíma þar sem um breytingu er að ræða en ég hef ekki áhyggjur af því. Þegar menn í framtíðinni sjá um hvað málið snýst verða þeir ekki í vandræðum sjálfir að stofna sín eigin verktakafyrirtæki og bjóða í verk sem unnin eru t.d. á vegum Vegagerðar ríkisins.
En hér erum við að tala um aðra hluti en þá sem ég er að nefna og nefndi í minni fyrri ræðu og þáltill. gengur út á eins og hv. síðasti ræðumaður benti réttilega á. Ég er að leggja til að útboðsstefnan nái ekki eingöngu til verklegra framkvæmda heldur einnig þjónustunnar. Og þá heldur hv. síðasti ræðumaður því fram að þar með séum við að kasta þjónustunni fyrir róða. Ég segi: Við erum að tryggja það að hlutirnir séu gerðir á sem hagkvæmastan hátt. Við erum að undirstrika það að það er hlutverk stjórnmálamanna og stjórnvalds að sjá um slíkt eftirlit en það geti þvert á móti orðið til þess að lakari þjónusta fáist ef eftirlitið og framkvæmdin er á sömu hendi eins og nú er. Og ég bendi á að í nágrannalöndum okkar hefur það um árabil verið þannig að ýmis opinber þjónusta, sem hér er stunduð af opinberum aðilum, er stunduð af einkaaðilum og hefur gengið ágætlega. Og ég hygg að slíkt geti einnig gerst hér á landi. Ég tók það skýrt fram í minni framsöguræðu að það er ekki verið að reyna að minnka þjónustustigið. Ég hafði þessa ræðu reyndar skrifaða og ég tók það alveg skýrt og skortinort fram að þessi tillaga var ekki flutt til þess heldur til þess að nýta fjármagnið betur en gert er í dag.
Það kemur auðvitað ekki nokkrum manni á óvart, allra síst hv. alþm., að fulltrúar Alþb. mæli gegn þessari tillögu. Þeir eru fulltrúar þeirrar stefnu sem vill haga málum þannig að helst öll atvinnustarfsemi sé í höndum ríkisins, að þeir sjálfir, þegar þeir komast til valda, ákveði hvað sé gert og hvernig það sé gert og ráði sjálfir mannskapinn til þess. Það er ekki langt síðan við höfðum ríkisstjórn sem hv. síðasti ræðumaður átti aðild að. Þar sat hann og hann ákvað gjaldskrár fyrir sveitarfélögin í landinu, fyrir orkufyrirtæki, og var með nefið ofan í hvers manns koppi. Þannig var ástandið þá. Það sem við viljum gera og erum ekkert feimnir við að segja er að breyta hlutunum á þann veg að þeir sem fara með völd á hverjum tíma taki ákvörðun um hvað eigi að gera og leyfi síðan þeim sem eru sem best í stakk búnir til þess að framkvæma það undir því eftirliti sem hlýtur að vera í höndum hins opinbera. Um þetta er auðvitað meginágreiningur í stjórnmálum og það þekkjum við. Það kemur engum á óvart að þetta hljóð kom úr þessu horni og ég vil einungis nota tækifærið til þess að þakka hv. síðasta ræðumanni fyrir hans orð því að ég tel þau vera málinu til mikils framdráttar.