20.11.1986
Sameinað þing: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (889)
Ákvörðun um fullvirðisrétt
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Hér er hreyft miklu alvörumáli og ekki ætla ég að lasta það eða vanþakka en það liggur við að manni finnist verra að þessi umræða sé hafin vitandi það að ekki verður hægt að halda henni áfram nema í einar 20 mínútur.
Ég vil því beina þeirri eindregnu áskorun til hæstv. landbrh. að hann beiti sér fyrir því að upp verði tekin á Alþingi opin almenn umræða um framleiðslustjórnun í landbúnaði á næstu dögum og að hann innleiði þá umræðu með skýrslugjöf eða framsöguræðu um stefnu sína í þeim málum. Það er algjörlega óhjákvæmilegt að mínu viti að þessi mál verði tekin hér til ítarlegrar umræðu á Alþingi og það eru miklar kröfur uppi um að það verði gert.
Ég hygg, því miður, herra forseti, að þeir bændur sem hlustað hefðu á ræðu hæstv. landbrh. hér áðan hafi ekki getað dregið aðra niðurstöðu af henni en þá aðallega að þeir verði að leggjast á bæn og biðja guð almáttugan um að forða sér frá góðæri. Góði guð, gefðu okkur nú ekki góðæri svo að við verðum ekki verðskertir næsta haust, gefðu okkur heldur hallæri eða a.m.k. langleiðina það.
Hér eru svo alvarlegir hlutir á ferðinni fyrir ákveðin byggðarlög í landinu að það er óhjákvæmilegt að Alþingi taki á því hvaða afleiðingar þessi stefna, þessi reglugerð, hefur í för með sér. Við þm. Norðurl. e. höfum fengið bréf frá Hólsfjöllum, frá bændum á Hólsfjöllum, þeim sem þar þrauka enn. Menn kannast e.t.v. við það að einu sinni var samþykkt áætlun um að halda í byggð bæjum á Hólsfjöllum og það var talið mikið hagsmunamál allra landsmanna að svo væri gert. Nú er skertur framleiðsluréttur þessara fáu bænda sem eftir eru á Hólsfjöllum, m.a. ungra bænda sem þar hafa verið að taka við búum og hefja búskap og þetta er auðvitað þvert á alla skynsemi, þvert á alla stefnu í byggðamálum o.s.frv. Ég segi það að ég tel óhjákvæmilegt að taka reglugerðina til endurskoðunar og að leiðrétta þá einstaklinga og þau svæði sem verst fara út úr þessu. Það er ljóst að ákveðnar jaðarbyggðir, byggðir við Þistilfjörð, í Strandasýslu, hreppar á Austurlandi, og fleiri dæmi mætti nefna, fara mjög illa út úr þessum viðmiðunarárum og þessari reiknireglu sem hér er lögð til viðmiðunar og það er óhjákvæmilegt að bæta þar úr, að taka þau svæði og þá einstaklinga sem verst fara út úr þessu til leiðréttingar. Það verður að gera með því að bæta hér við eða taka þessa úthlutun upp á nýtt.
Síðan er það eitt enn sem ég vil fá að koma hér að áður en ég lýk máli mínu, herra forseti, og það er tímasetning þessara aðgerða. Ég bið þann mann, ef einhver er, að gefa sig fram sem mælir með því að fullvirðisréttinum sé úthlutað 3-4 vikum eftir að sláturhús loka, löngu eftir að ásetningur er ákveðinn og svo maður tali ekki um löngu, löngu eftir að borið var á tún og tekið var að afla fóðurs fyrir búpening. Það gengur auðvitað ekki að standa að þessum hlutum með þessum hætti.