20.11.1986
Sameinað þing: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1058 í B-deild Alþingistíðinda. (910)
151. mál, afstaða Íslands til stöðvunar kjarnorkuvígbúnaðar
Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. 3. landsk. þm. og hv. 2. þm. Norðurl. v. fyrir jákvæðar undirtektir við till. mína og yfirlýsingu sem ég túlka sem stuðning við þessa till. þó að hv. 2. þm. Norðurl. v. hafi ekki orðað það með beinum hætti svo í sínum málflutningi hér. En hann lýsti afstöðu hæstv. utanrrh. þannig að hann fallist ekki á skilning hans og túlkun á ályktun Alþingis frá maí 1985. Það væri rökrétt framhald af þeirri ályktun Alþingis að styðja tillögu Svíþjóðar og Mexíkó á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og það sé óþarfafeimni, eins og hv. þm. Páll Pétursson orðaði það, hjá hæstv. utanrrh. að vilja ekki tala um frystingu þó að rætt sé um eitthvað annað og meira á milli manna.
Á það verður auðvitað að reyna hér í þinginu í atkvæðagreiðslu, hvort þingið styður hæstv. utanrrh. í afstöðu hans varðandi atkvæði Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og ég treysti því að hv. 9. þm. Reykv., nú formaður utanrmn. í fjarveru hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar, sem þessa dagana situr einmitt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem fulltrúi Sjálfstfl., greiði fyrir því að þetta mál komi frá utanrmn. til þingsins þannig að þingviljinn komi í ljós.
Ég þarf ekki mikið meira um þetta að segja á þessu stigi máls, herra forseti, en ég tek undir með hv. 2. þm. Norðurl. v. þegar hann víkur að afstöðu Íslands og samvinnu við aðrar Norðurlandaþjóðir. Það hefur löngum verið talið til tekna, einnig af þeim sem hafa stutt aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, að Ísland reyndi að stilla saman við aðrar Norðurlandaþjóðir í afstöðu til utanríkismála. En hér kveður bara við allt annan tón. Og það kveður við allt annan tón einmitt í þýðingarmiklum málum sem verið er að ræða á norrænum vettvangi og varða í reynd stöðvun kjarnorkuvígbúnaðarins, skref í sambandi við stöðvun kjarnorkuvígbúnaðarins, þ.e. varðandi kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum eða í Norður-Evrópu. Þar hefur hæstv. utanrrh. Íslands sett öðrum Norðurlandaþjóðum nánast stólinn fyrir dyrnar að taka þetta mál upp til umræðu og undirbúnings í embættismannanefnd á vegum Norðurlanda með því að fallast ekki á tillögu þar að lútandi, sem danska þingið hefur lýst að meiri hluta stuðningi við og flutt hefur verið af fulltrúa dönsku ríkisstjórnarinnar inn á vettvang norrænnar samvinnu. Þar hefur hæstv. utanrrh. lýst sérstöðu Íslands í hópi Norðurlandaþjóðanna að þessu leyti. Þetta er satt að segja háskaleg afstaða því að staða Íslands í vígbúnaðarkapphlaupinu er orðin mjög sérstök. Við erum hér vegna afstöðu íslenskra stjórnvalda á liðinni tíð í fremstu víglínu, eins og Reagan Bandaríkjaforseti var að minna dátana sína á í Keflavík, þegar hann var að halda brott af Reykjavíkurfundinum um daginn. Hann var að hvetja þá til dáða þar sem þeir væru í fremstu víglínu. Er það æskilegt fyrir öryggismál Íslands, hæstv, utanrrh., að halda Íslandi í fremstu víglínu og stuðla ekki að því með öllum mætti að slökun verði á spennu á þeim slóðum sem við erum sett á hnettinum með því að stuðla að stöðvun kjarnorkuvígbúnaðarins og taka undir hvert það frumkvæði í sambandi við afvopnun sem fram kemur á vettvangi þjóðanna eða frá þeim rikjum sem eiga hlut að máli?
Ég vænti þess að Alþingi beri gæfu til að lýsa sínum vilja og ég treysti því að hæstv. utanrrh. fari að vilja Alþingis í þessu máli og ég vænti þess að hæstv. utanrrh. vilji leiða þingviljann í ljós í þessu máli. Ég spyr hæstv. utanrrh. að því áður en ég vík úr ræðustól: Vill ekki hæstv. utanrrh. fá það á hreint hver er afstaða þingsins til þessa máls? Hefur hæstv. utanrrh. stuðning Alþingis varðandi þá afstöðu sem hann hefur lýst? Það hlýtur að vera áhugamál hæstv. ráðh. að þetta verði leitt í ljós og að þessu sinni eru aðstæður ekki þær sömu og í fyrra, þegar þessu máli var teflt út á tíma. Nú hefur þingið öll tök á því að fjalla um þetta mál með fullkomlega þinglegum hætti í nefnd og síðan hér eftir að nefnd hefur um málið fjallað og ég vænti þess að hæstv. utanrrh. stuðli að því að málið komi aftur til þingsins og það verði skorið úr hver er afstaða þingsins. Hefur ráðherrann meirihlutastuðning á Alþingi fyrir þessari afstöðu, sem ég er andvígur, formaður þingflokks Framsfl. hefur lýst sig andvígan og fleiri þingflokkar hér, Kvennalistinn ítrekað lýst andstöðu sinni við afstöðu ráðherrans? Ég vænti þess að ráðherrann tjái sig um þetta atriði áður en umræðu lýkur.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað