20.11.1986
Sameinað þing: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (917)

166. mál, sjúkra- og iðjuþjálfun

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Á þskj. 176 hef ég leyft mér að endurflytja svohljóðandi till. til þál.:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir skipulegu samræmdu átaki til þess að koma sem bestri sjúkra- og iðjuþjálfun inn á heilsugæslustöðvar landsins sem allra fyrst. Kannað verði rækilega hversu tengja megi þessa þætti sem best við kennslu í heilsurækt í efstu bekkjum grunnskólans. Efldir verði möguleikar Vinnueftirlits ríkisins til að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum á vinnustöðum þar sem leiðbeint yrði sem gleggst um grundvallaratriði réttra vinnubragða og vinnustellinga jafnhliða bættri vinnuaðstöðu. Leitað skal samráðs um átak þetta við samtök launafólks og vinnuveitenda, svo og þau félög heilbrigðisstétta sem málið varðar sérstaklega.“

Till. þessi hefur tvívegis verið flutt áður en ekki fengist afgreidd. Nú skal reynt í þriðja sinn til þrautar. Ég skal láta nægja að vísa til grg. um mál þetta, enda rækilega verið reifað hér áður. Áhersluatriði mín skulu aðeins þau að hér er um hvort tveggja að ræða, forvarnar- og endurhæfingarstarf sem skiptir máli fyrir flestalla þjóðfélagsþegna á einhvern veg. Hér þarf að koma til samvinna skóla og heilsugæslu, færa ákveðna þætti inn í heilsurækt skólanna eins og segir í grg.: „Einhver mikilsverðasti þáttur heilsuræktar í skólum ætti að lúta að því að kenna ungu fólki að standa rétt að verki, að þjálfa líkama sinn rétt til mismunandi vinnubragða hvaða lífsstarfi sem síðan er gegnt.“

Hér eiga aðilar eins og stéttarfélög að koma ríkulega inn í myndina, svo og fyrirtæki. Þetta er reyndar sums staðar þegar í gangi til ómetanlegs gagns fyrir þá sem njóta. En eins og segir um vinnuálag okkar og vinnufyrirkomulag yfirleitt: Það er ekki sama á hvern hátt vinnan er leyst af hendi, hversu mikið álag er að baki, hversu mikilli umframorku hefur verið sóað, hversu ranglega hefur verið að verkinu staðið, hversu vinnustellingar hafa verið óhæfar. Nátengt er þetta því hvernig vinnuaðstaðan hefur verið.

Sjúkraþjálfunin er þegar lögbundin inn á heilsugæslustöðvarnar. Það var gert með lagabreytingu 1983. Iðjuþjálfun er það ekki. Hún er hins vegar einn þáttur heilsugæslunnar, varð það líka 1983, en er eingöngu bundin við endurhæfingarstöðvar og stærstu sjúkrahús. Það er vert að vekja athygli á því að í dag er ekki unnt að stunda nám í iðjuþjálfun hér á landi. Það þarf að fara til útlanda til þess og sjúkraþjálfunarbrautin er mjög ásett. Þar þarf að beita takmörkunum sakir þess að ekki er nægileg aðstaða til vinnuþjálfunar eða verkþjálfunar sjúkraþjálfaranema.

Alvarlegast í dag er kannske það hversu launakjör í heilsugæslunni hafa hrakið þetta hæfa fólk og þessa mikilvægu starfsstétt út í einkarekstur þar sem ekki er skipulag á þessu starfi og auk þess ólíkt erfiðara um vik þess vegna að fá fólk til starfa vítt um land á heilsugæslustöðvunum.

Þar sem sjúkraþjálfun hefur hins vegar verið úti á heilsugæslustöðvunum er aðsókn ótrúlega mikil, en á þeim stöðvum er líka áberandi að færri þurfa að fara til endurhæfingar hingað suður og sparnaður á alla vegu því ótrúlega mikill fyrir utan almenna líðan sem er vitanlega ólíkt betri og fyrr farið fyrir bragðið til þess að leita sér lækningar og lækning þá oft skjótari um leið. En báðar þessar starfsstéttir vinna í dag allt um of að endurhæfingu og hennar er vissulega þörf í mörgum tilvikum, sorglegum tilvikum svo sem eftir slys, eftir alvarleg veikindi o.s.frv., en framar öðru eru þetta dæmigerð forvarnarstörf sem þessar stéttir eiga og þurfa að vinna í framtíðinni úti á vinnustöðunum í okkar vinnuþrælkunarþjóðfélagi, grunnstarf í heilsurækt skólanna og alhliða uppbyggingarstarf auðvitað fyrir fólk almennt, fyrir líkama þess í heild sinni. Ég held að það megi einskis láta ófreistað til að breyta þessu úr endurhæfingu, sem er nær alls ráðandi í dag, yfir í fyrirbyggjandi aðgerðir og þess vegna skulu lokaorð greinargerðarinnar jafnframt vera mín lokaorð nú:

„Forvarnarstarf af þessu tagi er ekki síðri nauðsyn en í mörgu öðru og skiptir miklu um velferð og líðan flestra. Hér ættu fjölmiðlar okkar að koma inn í myndina því að vissulega má þar veita mikla fræðslu og auka skilning fólks á mikilvægi þess að byggja líkamann upp gegn þeirri „bara gigt“ sem hrjáir svo marga.“

Ef till. þessi mætti verða til vakningar og áherslu, til athafna þó fyrst og síðast, væri máli þessu ekki hreyft til einskis.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til, herra forseti, að till. verði vísað til hv. félmn.