24.11.1986
Neðri deild: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (929)
158. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Það er ástæða til að byrja á að rifja upp að Alþingi Íslendinga markaði þá stefnu með samþykkt þáltill. að tekjuskattur á almenn laun skyldi afnuminn í þremur áföngum. Þessi samþykkt var þannig til komin að þingflokkar Alþfl. og Sjálfstfl. höfðu flutt um það tillögur, við höfðum flutt um það tillögur allt frá árinu 1973. Sá áfangi náðist að tillögurnar fengu þá umfjöllun í nefnd að um það náðist samkomulag. Þar með hafði Alþingi mótað sína stefnu. Þetta átti að gerast, eins og ég sagði, í þremur áföngum og fyrsti áfanginn átti að koma til framkvæmda á árinu 1985, í fjármálaráðherratíð hæstv. þáv. fjmrh., Alberts Guðmundssonar. Það er fyrsti og eini áfanginn sem við var staðið af þessari stefnuályktun Alþingis þó að vel megi segja að það hafi verið gagnrýnisvert að á sama tíma og þessi fyrsti áfangi var framkvæmdur, þ.e. niðurfelling 600 millj. kr. í tekjuskatti, hafi um leið ríkissjóði verið bættur skaðinn, ef svo má að orði komast, með hækkun söluskatts um 1/2 söluskattsstig og verðhækkunum á varningi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, eins og fram kom í máli síðasta ræðumanns.
Ef menn hafa skilið málflutning hæstv. fjmrh. á þá leið að hann hafi jafnvel viljað ætlast til þess að fá góða umsögn og jafnvel vottorð frá stjórnarandstæðingum um góða frammistöðu í þessu máli, þá er ég hræddur um að við því getum við ekki orðið. Skýringar hans á því sem gerðist á yfirstandandi ári voru heldur ekki viðhlítandi.
Að því er varðar annan áfangann í niðurfellingu tekjuskatts þá kom hann ekki til framkvæmda. En nú er boðað að þetta frv. sé flutt til þess að skila til baka aftur hluta af því sem oftekið var á árinu 1986. Á þessu ári gerðist það að tekjuskattur einstaklinga var áætlaður 2615 millj. og það byggt á áætlun um tekjubreytingu milli áranna 1984 og 1985 sem væri 36% og skattvísitala þannig ákveðin 136 stig miðað við 185. Að vísu gerðist það síðan í framhaldi af kjarasamningum, með frv. til laga um almennar efnahagsráðstafanir, að tekjuskattsáætlun ríkisins var lækkuð um 150 millj. sem liður í víðtækum aðgerðum öðrum. En að þessu loknu, í mars 1986 gerist það að fyrir liggur áætlun Þjóðhagsstofnunar í apríl um það að tekjubreytingar milli ára verði í reynd meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þannig lá það fyrir þá þegar að tekjuaukning ríkisins gæti orðið allt að 400 millj. kr. umfram marsáætlun. En því næst, þegar álagningartölur raunverulega liggja fyrir í júlí, kemur á daginn að tekjuskattsálagning einstaklinga reyndist hvorki meira né minna en 51,2% hærri en á árinu 1985, þ.e. langt umfram tekjubreytingar milli ára. Það sem sérstaklega vakti athygli þessu til viðbótar var að barnabætur og persónuafsláttur var aðeins hækkaður um 32,1%, sem þýðir ósköp einfaldlega að þarna fór saman að álagður tekjuskattur einstaklinga hækkaði nettó milli ára um 64,6% borið saman við 42-43% hækkun tekna, en skattbyrðin var auðvitað þeim mun þyngri á þeim sem lægstar höfðu tekjurnar vegna þess að barnabætur og persónuafsláttur hækkaði miklum mun minna. í heild þýddi þetta ósköp einfaldlega að ríkissjóður tók til sín, umfram áætlanir, 600 millj. kr. og má þar með segja, orða það á þann veg, að fyrsti áfangi tekjuskattslækkunarinnar frá árinu 1985 hafi allur verið tekinn til baka.
Skýringar hæstv. fjmrh., nefnilega þær að þetta megi skýra með ofáætlunum bæði að því er varðar sjálfstæða atvinnurekendur og aðra, eru ekki viðhlítandi. Að verulegu leyti felst þetta auðvitað í því að auknar tekjur eru til komnar vegna aukinnar atvinnuþátttöku á vinnumarkaði og vegna lengri vinnutíma. Með öðrum orðum: Það sem gerst hefur er það að efndir núverandi hæstv. ríkisstj. á samþykktum yfirlýsingum Alþingis, um niðurfellingu tekjuskattsins í áföngum, hafa verið á þá lund að við þær hefur ekki verið staðið. Það var framkvæmt með þeim hætti strax fyrsta árið að staðið var við fyrsta áfangann en ríkissjóður tryggði sér um leið þar á móti verulega tekjuaukningu. Við annan áfanga var ekki staðið og nú er verið að reyna að klóra í bakkann, þ.e. að færa til baka hluta af því sem oftekið var, en aðeins lítinn hluta.
Á það verður líka að benda að sú skekkja sem þar með er komin inn í skattvísitöluna heldur áfram. Þegar við ræðum um það að skila til baka þessum 300 millj. er viðmiðunin sú sama, m.ö.o. við skattana á yfirstandandi ári samkvæmt eldri áætlun Þjóðhagsstofnunar. Þessi skekkjumörk vegna skattvísitölunnar halda áfram, t.d. af fullum þunga að því er varðar eignarskattinn. Það á sem sagt við um eignarskatt og sjúkratryggingargjald og það sem við getum kallað þjóðarbókhlöðuskattinn eða eignarskattsaukann. Hér er um að ræða raunhækkun miðað við greiðslubyrði á greiðsluári.
Í athugasemdum við þetta frv. er lögð á það mikil áhersla að hér sé verið að létta skattbyrði vegna þess að skatthlutföll í skattstiga eru lækkuð í einum þremur þrepum. Þannig verði efsta þrep lækkað úr 43,5% í 38,5%. Dæmin, sem tekin eru síðan um skattbyrði, byggjast að verulegu leyti á þessu. Hér bið ég hv. alþm. að taka svolítinn vara á þessum upplýsingum um raunverulega skattbyrði. Ástæðan er einfaldlega sú að það er mikill munur á skattbyrði eftir því hvert verðbólgustigið er þegar við berum saman annars vegar álagningarár og greiðsluár. Þannig getum við tekið til samanburðar að 50% álagning í efsta þrepi á tekjuskatti til ríkisins í 60% verðbólgu þýðir í reynd 31% skattbyrði á greiðsluári, sem hlutfall af tekjum. Ef við miðum við 50% álagningu í efsta þrepi í 80% verðbólgu þá þýðir það í reynd 28% ef við miðum við tekjur á greiðsluári.
Ef við tökum þriðja dæmið um 50% álagningu í efsta þrepi í 130% verðbólgu þá þýðir það í reynd 22% miðað við tekjur á greiðsluári. Þegar við tölum um 38,5%, eins og hér er gerð tillaga um, í 10% verðbólgu, þá er niðurstaðan sú að ef viðmiðunin er greiðsluár þá er álagningin 35%, m.ö.o. 38,5% í 10% verðbólgu er raunverulega hærri álagning en jafnvel öll þau dæmi sem ég nefndi áður miðað við verðbólgu á bilinu 60-130%.
Að því er varðar mat manna á því hver hafi orðið þróun heildarskattbyrði í tíð þessarar ríkisstjórnar þá tek ég undir það sem fram kom í máli hv. fyrri ræðumanns að samkvæmt gögnum sem borist hafa frá Þjóðhagsstofnun og eru dagsett 20. eða 21. nóv., þá fer það ekkert á milli mála að ef spurt er um hlutfall ríkissjóðstekna af vergri þjóðarframleiðslu þá er niðurstaðan sú, ef við berum saman annars vegar spá fyrir árið 1986 og hins vegar áætlunartölur frv. til fjárlaga 1987, þá er um að ræða verulega hækkun á raunverulegri greiðslubyrði sem hlutfall ríkissjóðstekna af vergri þjóðarframleiðslu. Það var 25,7% samkvæmt spá 1986 en er áætlað í frv. til fjárlaga 26%. Sömu sögu er að segja að því er varðar álagningu beinna skatta þó að þessi mælikvarði um hlutfall heildartekna af vergri þjóðarframleiðslu sé kannske sá sem síst er umdeilanlegur.
Herra forseti. Út af fyrir sig gæti verið ástæða til þess að ræða hér ítarlega um skattamál vegna þess að af málflutningi hæstv. fjmrh. má ráða að hann telji að með þessu frv. hafi verið stigin einhver meiri háttar skref í átt til umbóta á skattakerfinu. Það er því miður ekki svo. Umræður um skattamál hafa aukist mjög í þjóðfélaginu en kannske ekki í sama mæli hér á hinu háa Alþingi. Ég minni á tillöguflutning okkar þm. Alþfl. sem hafa beinst að úttekt og rannsókn á skattundandrætti og skattsvikum, tillögugerð um hert viðurlög við skattundandrætti og skattsvikum sem leiddu þó til þess áfanga að hér var lögð fram á Alþingi skattsvikaskýrslan svokallaða, lögð fyrir Alþingi 18. apríl 1986. Þótt þessi skýrsla eða þessi úttekt hafi áreiðanlega verið í varfærnasta lagi þá kom hún þó umræðunni niður á þann grundvöll að menn neituðu ekki lengur staðreyndum um skattundandrátt og skattsvik eins og oft tíðkaðist hér í umræðunni fyrir nokkrum árum síðan. Hún er nú viðurkennd enda þótt hæstv. fjmrh. hafi að vísu látið þau orð falla að skattundandrátturinn sé ef nokkuð er heldur minni en hann hafi raunverulega gert ráð fyrir.
Í málflutningi Alþfl. á undanförnum árum hafa skattamál verið einn af meginstólpunum. Við höfum ósköp einfaldlega komist að þeirri niðurstöðu að núverandi skattakerfi, og það á bæði við um launamannaskattinn, tekjuskatt, og hið hripleka söluskattskerfi, hafi í heild sinni gengið sér til húðar, það sé ónýtt og það þurfi að endurskoða það alveg frá grunni. Það er út af fyrir sig ánægjuefni að við heyrum nú undir þessi sjónarmið tekið og ég læt í ljós þá ósk að þau orð, sem hæstv. fjmrh. lét falla um vilja hans til endurskoðunar á þessu kerfi, boði þá væntanlega betri efndir en verið hefur hingað til. Skattakerfið okkar brýtur allar meginkröfur sem gera verður til skattakerfis. Þær kröfur eru að það á að vera einfalt, það á að vera auðskilið og það á líka að vera þar af leiðandi réttlátt og kostnaðarlítið í framkvæmd vegna eftirlits. Skattakerfið okkar er vissulega mjög flókið, það er vissulega mjög torskilið og það er vissulega mjög ranglátt. Megingalli kerfisins er sá að það gefur þeim sem best eru settir efnalega mikla möguleika á að komast undan skattheimtu svo sem dæmin sanna frá undanförnum árum. Hér er átt við bæði löglegar og ólöglegar aðferðir. Hver hinn raunverulegi skattundandráttur er er út af fyrir sig ekki gott að segja, en færð hafa verið fyrir því rök að hann væri jafnvel á bilinu 10-15% af vergri þjóðarframleiðslu.
Allir þeir, sem einhvern tímann hafa fengist við að telja fram til skatts fyrir aðra, vita að frádráttarliðir hjá einstaklingum eru allt of margir. Þeir eru reyndar yfir 20 talsins. Þeim er mörgum hverjum ætlað að stuðla að tekjujöfnun en þeir virka oft í reynd þveröfugt vegna þess einfaldlega að þeim tekjulægri nýtast frádráttarliðirnir verr en þeim sem eru tekjuhærri. Einfalt dæmi um það eru tveir einstaklingar sem hvor um sig á rétt á 200 þús. kr. vaxtafrádrætti sem er einkennandi fyrir þetta kerfi. Sá sem hefur hærri tekjur og er í hæsta skattþrepi sparar sér 88 þús. kr. í skatt. Sá sem hefur lægri tekjurnar og er í lægsta skattþrepi sparar sér 40 þús. kr. í skatt. Með öðrum orðum hefur sá tekjuhærri verulega mun meiri hag af þessu ákvæði en hinn tekjulægri þó það hafi vafalaust ekki verið hugsað þannig. Þessir frádráttarliðir virka þannig oftast óréttlátt. Þeir koma hinum tekjuhærri að meiri notum en þeim tekjulægri. Þeir gera alla framkvæmd skattalaga erfiða og þeir gera eftirlit með undandrætti oft og tíðum óframkvæmanlegt.
Stærsti galli skattakerfisins er sá hversu margir af hinum efnaðri hluta þjóðarinnar komast hjá því með löglegum eða ólöglegum hætti að greiða sinn hlut. Þeim sem stunda einhvers konar atvinnurekstur er hyglað verulega. Þeir fá margvíslegar skattaívilnanir, auk þess sem þeir geta oft látið fyrirtæki greiða persónulegan kostnað eða þurfa ekki að telja fram allar sínar tekjur eða telja þær fram á tekjulægri meðlimi fjölskyldunnar.
Sem dæmi um skattaívilnanir í atvinnustarfsemi má nefna að í skattalögum eru heimilaðir ýmsir reiknaðir frádráttarliðir sem valda því að jafnvel vel stæð fyrirtæki þurfa lítinn sem engan tekjuskatt að greiða svo sem dæmin sanna. Sem dæmi um þessa reiknuðu frádráttarliði, frádrátt frá tekjum eftir að venjulegur rekstrarkostnaður hefur verið dreginn frá, má nefna ákvæði um fyrningar, ákvæði um gjaldfærslu skv. 53. gr., ákvæði um að draga megi frá 5% af útistandandi viðskiptakröfum, ákvæði um að draga megi frá 10% af matsverði vörubirgða, ákvæði um að draga megi 10% frá vegna arðgreiðslna, ákvæði um framlög í fjárfestingarsjóði sem mega nema allt að 40% af hagnaði, ákvæði um aukafyrningar skv. 44. gr. vegna tekjufærslu og/eða vegna söluhagnaðar, eða það skattahagræði sem felst í því að kaupa fyrirtæki sem eiga tap eins og það heitir á máli bókhaldssérfræðinga.
Svo flókið, torskilið og óréttlátt sem tekjuskattskerfið er þykir þó sumum að það sé hrein hátíð miðað við söluskattskerfið sem er í okkar landi orðið allra kerfa flóknast og torskildast, ekki síst vegna allra þeirra fjölmörgu undanþáguákvæða sem um það gilda. Þetta veldur því að það er mjög erfitt í framkvæmd og eftirlit með því að allt komi til skila og rétt sé fram talið er nær ógerlegt, jafnvel þótt veruleg fjölgun yrði á starfsmönnum sem við skatteftirlit vinna.
Heildarendurskoðun skattkerfisins er því mjög tímabær. Það verður að segja ójöfnuðinum stríð á hendur þegar í stað. Það ástand að efnaðasti hluti þjóðarinnar geti, á löglegan eða ólöglegan hátt, komist hjá því að greiða skatt er óþolandi. Verkefnið er fyrst og fremst að einfalda skattakerfið og gera það auðskilið. Skattaívilnanir á að afnema og hvers kyns undanþágur. Öll hugtök verða að vera vel skilgreind, allt með það í huga að gera framkvæmd og eftirlit sem auðveldast svo að skattundandráttur verði sem torveldastur.
Þá er ekki minnst um vert að kerfið mismuni ekki þegnunum, launamönnum, atvinnurekendum, atvinnustéttum eða rekstrarformum, t.d. eftir því hvort um er að ræða einkarekstur, samvinnurekstur, hlutafélög eða opinberan rekstur.
Það er ástæða, herra forseti, við þessar umræður að vekja máls á enn einu gati í þessu kerfi okkar en það lýtur að skattmeðferð vaxtatekna. Hér er ekki aðeins átt við skattfrelsi ákveðinnar tegundar sparifjár sem menn almennt telja ekki fram, að sögn endurskoðenda, heldur miklu fremur tekjur af verðbréfaviðskiptum sem færast mjög í vöxt eins og öllum er kunnugt. Það er óhætt að fullyrða að mjög lítill hluti þeirra tekna sem menn hafa af þessum viðskiptum komi fram á skattframtölum. Eina leiðin sem til er til þess að koma því til leiðar að skattur sé greiddur af þessum fjármunum er að hverfa frá vaxtafrádráttarreglum, m.ö.o. að leyfa ekki frádrátt vaxtagjalda, leysa t.d. vandamál húsbyggjenda og þeirra sem byggja í fyrsta sinn einfaldlega með mjög ríflegum vaxtafrádrætti fyrstu árin, t.d. þrjú árin, en falla frá að öðru leyti reglunni um vaxtafrádrátt sem er augljóslega ein helsta aðferðin í okkar núverandi skattakerfi til þess að auka misrétti í skattamálum. Auk þess að vera öruggasta leiðin til þess að tryggja það að ríkissjóður hafi tekjur af þessum fjármagnsviðskiptum hefur það í för með sér, augljóslega, minni eftirspurn eftir fjármagni og þar af leiðandi lægri vexti sem er ekki lítið mál þegar við lítum á hagstjórnaráhrif skattakerfis. Það verður m.ö.o. ekki lengur skattalegur ávinningur að skulda til þess að öðlast vaxtafrádrátt ef þessi aðferð væri tekin upp.
Á seinasta flokksþingi Alþfl., sem haldið var nú í byrjun októbermánaðar, var lögð fram mjög ítarleg álitsgerð um heildarendurskoðun skattakerfisins. Þær tillögur fjölluðu um breytingar á tekjuskatti einstaklinga og félaga og einnig voru þar rækilega útfærðar tillögur okkar um stigbreytilegan eignarskatt sem við að vísu hugsum ekki sem varanlegan lið í heildarskattakerfi, auk þess sem fram voru lagðar ítarlegar tillögur og álitsgerðir um framkvæmd skattalaga, bæði um meðhöndlun skattsvika og viðurlagaákvæði við skattundandrætti. Þessar tillögur eru reyndar að verulegu leyti þegar kunnar og hafa verið birtar svo að ég ætla ekki að lengja mál mitt að þessu sinni með því að lýsa þeim ítarlega. Mér nægir að segja að þarna er leitast við að taka upp skattakerfi sem fullnægir þeim kröfum sem við viljum að til þess megi gera, nefnilega í fyrsta lagi að það verði einfalt og auðskilið hverjum þeim sem er þolandi kerfisins, að það verði einfalt og ódýrt í framkvæmd og í þriðja lagi að það verði réttlátt skv. þeim kröfum að þeir hinir efnameiri í þjóðfélaginu greiði sinn hlut til sameiginlegra þarfa þjóðarbúsins.
Þá vil ég að lokum, herra forseti, fara hér örfáum orðum um þær hugmyndir sem uppi hafa verið um virðisaukaskatt. Ég tel það ekki vansalaust ef hæstv. fjmrh. er að boða tillögur um endurskoðun skattakerfisins að við skulum enn á þessu stigi málsins hafa hér handa í milli tillögur um upptöku virðisaukaskatts sem eru svo meingallaðar að ég tel að það sé nokkurn veginn borin von að þær komist hér í gegnum þingið að óbreyttu. Mér finnst m.ö.o. vinnubrögðin í þessu máli ekki vera nógu góð. Það eru orðin 15 ár síðan þessum málum var fyrst hreyft. Ég man ekki hvort þetta er þriðja eða fjórða útgáfa af frumvarpsmynd um virðisaukaskatt en mér sýnist af því hvernig það er tilkomið að því fari fjarri að þeir hæstv. fjármálaráðuneytismenn hafi unnið heimavinnuna sína.
Að því er varðar óbeina skatta stöndum við frammi fyrir vali. Ef við viljum auka skattbyrðina fyrst og fremst í formi óbeinna skatta stöndum við frammi fyrir því vali hvort við viljum breyta núverandi söluskattskerfi fyrst og fremst í þá átt að gera það sæmilega nothæft í framkvæmd með því að fella niður undanþágur og þá lækka söluskattsprósentuna verulega eða hvort við viljum fara þá leið, sem farin hefur verið í mörgum grannríkjum okkar, að taka upp virðisaukaskatt en hann verður þá að fullnægja ákveðnum skilmálum.
Það er algerlega borin von að menn sætti sig við að taka upp nýtt kerfi, virðisaukaskatt, til frambúðar ef skattprósentan á að haldast uppi í 25% áfram. Það er fáránleg hugmynd og sér í lagi ef rökin og skýringarnar fyrir þessari tillögu eru þær að menn ætli að reyna að kaupa frið um þetta virðisaukaskattskerfi með því að stórauka hrikalegar niðurgreiðslur og stýra þannig neysluvenjum þjóðarinnar í þágu einhvers úrelts framsóknarkerfis sem menn eru nú að vona að verði lagt fyrir róða að loknum næstu kosningum.
Ég vil aðeins vekja athygli á örfáum staðreyndum um virðisaukaskatt, þessar tillögur eins og þær liggja fyrir. Í fyrsta lagi þetta: Gert er ráð fyrir því að halda skattprósentunni svona gífurlega hárri, 25%, og hafa mismunandi álagningarprósentu, t.d. að því er varðar landbúnað og fiskveiðar. Jafnframt eru uppi þau áform að verja stórum hluta af þessum skatttekjum í ótilgreindar niðurgreiðslur á verði matvæla og niðurgreiðslum á fermetraverði í húsnæði. Það er hætt við því að um virðisaukaskatt sem byggir á þessu, breytilegri prósentu, mishárri, og endurgreiðslukerfi sem á að byggjast á niðurgreiðslum, verði í fyrsta lagi engin samstaða og að gallarnir á því kerfi verði slíkir að við förum úr öskunni í eldinn. Ég vek t.d. athygli á því að að því er varðar núverandi söluskattskerfi eru gjaldendur í því um 9 þús. talsins. Þar af innheimta um 1600 aðilar um 85% skattsins og þar af 300 aðilar um 60% alls af öllum skattinum en aftur á móti 7400 sem innheimta 15% af skattinum.
Það er að vísu rétt að eftirlit með þessu söluskattskerfi er því sem næst ónýtt eða því verður ekki við komið vegna þess hvernig undanþágufarganið er en til samanburðar skulum við hafa í huga að gjaldendur í virðisaukaskattskerfi eru taldir verða allt að því 22 þús. talsins.
Ég er þeirrar skoðunar að ef menn ætla sér að koma á virðisaukaskatti með svo hárri álagningarprósentu séu menn raunverulega búnir að eyðileggja höfuðkost þessa skattkerfis, sem á að vera það að skatturinn sé nokkurn veginn hlutlaus gagnvart efnahagslegum áhrifum, ef hann er bæði svona hár og ef hann er með breytilegum álagningarprósentum.
Einn höfuðgallinn á óbreyttu söluskattskerfi er talinn vera hin svokölluðu uppsöfnunaráhrif söluskatts sem er auðvitað verulegt óhagræði fyrir þá innlenda framleiðendur sem keppa við erlendan varning, en skv. úttekt frá Félagi ísl. iðnrekenda hefur það metið þetta óhagræði, uppsöfnunaráhrifin, á þann veg að það sé á bilinu 1-3%, eitthvað mismunandi eftir greinum. Til eru auðvitað leiðir til að koma í veg fyrir þessi uppsöfnunaráhrif innan söluskattskerfis og ég er þeirrar skoðunar að menn eigi að skoða það mjög vandlega áður en menn gefa það kerfi upp á bátinn ef ekki næst samkomulag um róttækar breytingar á þeim tillögum sem nú liggja fyrir um virðisaukaskatt.
Herra forseti. Ég ætla ekki að svo stöddu að hafa þetta mál miklu lengra. Niðurstaðan er sú að núv. ríkisstjórn, með því frv. sem hér liggur fyrir, er nánast eins og að finna útrás fyrir slæmri samvisku sinni vegna mjög alvarlegra vanefnda á ekki aðeins loforðum Sjálfstfl. heldur yfirlýsingu Alþingis, samþykkt Alþingis, um afnám tekjuskatts í áföngum. Röksemdir hæstv. fjmrh. um það að honum hafi þótt ótilhlýðilegt þegar menn kröfðust þess að það ætti að endurgreiða þetta hitta nú aðallega fyrir menn í hans eigin flokki, þar á meðal þann sem situr hér á móti mér, hv. þm. Gunnar G. Schram, sem er einhver eindregnasti talsmaður þess að við þessi loforð verði staðið og lýsti þeirri skoðun sinni á sínum tíma svo að nokkra athygli vakti að það væri eðlileg og sjálfsögð krafa.
Mér finnst mikið á skorta að hægt sé að hæla hæstv. fjmrh. fyrir einarðlega framgöngu í því að koma með tillögur um uppstokkun á ónýtu skattakerfi en við skulum vona að í framtíðinni verði meira um efndir á því sviði. Engum er alls varnað og lengi má manninn reyna. En um hitt greinir menn sjálfsagt ekki á nú orðið, hvar í flokki sem menn standa, að það er eitt stærsta og brýnasta verkefnið að taka skattakerfið til heildarendurskoðunar. Í því efni munum við Alþýðuflokksmenn ekki láta okkar hlut eftir liggja.