25.11.1986
Sameinað þing: 21. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1148 í B-deild Alþingistíðinda. (982)

183. mál, aðstoð við hitaveitur

Iðnaðarráðherra (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég vil fyrst geta þess að ég tel ekkert óeðlilegt að þessi þáltill. kæmi fram. Hún er sett fram eftir fund sem átti sér stað sama dag og fulltrúar hitaveitnanna heimsóttu mig í ráðuneytinu þannig að bæði þm. kjördæmisins og ráðherra fóru strax að draga athygli stjórnvalda að vandamálinu. Það var ekkert óeðlilegt að þáltill. kæmi fram á sama tíma og nefndarskipun á sér stað í ráðuneytinu hjá mér.

En varðandi fyrirspurn hv. 5. þm. Austurl. um væntanlega raforkuverðshækkun frá áramótum treysti ég mér ekki til að ræða það að sinni, hann verður að virða það við mig, enda er ekki komið að neinni ákvarðanatöku um raforkuverð á næsta ári eða hækkanir um áramót.

Síðan spyr hann um þá fjárupphæð sem er á fjárlögum vegna niðurgreiðslu á raforku á næsta ári. Þá er eðlilegt að framlag ríkisins lækki vegna þess að mjög mikið hefur t.d. verið unnið að einangrun á húsum sem hefur sparað orkunotkun gríðarlega mikið. Það er til eitthvað um það í ráðuneytinu hvað mikið hefur sparast. Líka hefur notendum hitaveitna fjölgað gríðarlega mikið þannig að upphæðin sem þarf til niðurgreiðslu hefur lækkað. Þess vegna er upphæðin lægri á fjárlögum í ár en á s.l. ári. Ég held að það sé góð þróun. Ef ég man rétt held ég að hæstv. fyrrv. ráðherra iðnaðarmála, þá á ég við hv. 5. þin. Austurl., hafi byrjað á þessu verkefni á sínum tíma, sérstaklega á einangrun húsa og öðru því sem ég hef hér gert að umræðuefni. Bæði forveri minn í embætti og ég höfum haldið því verki áfram. Þar af leiðandi er augljóst að með auknum hitaveituframkvæmdum og með betur einangruðum húsum lækkar það framlag sem ríkið þarf að veita á fjárlögum til niðurgreiðslu á rafmagni.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.