20.10.1986
Efri deild: 4. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég kemst ekki hjá því að mótmæla orðum hæstv. fjmrh. sem ósmekklegum dylgjum og óheiðarlegum sem eru hans embætti ekki sæmandi. Mér sýnist að þannig hafi verið staðið að verki varðandi afnám aðflutningsgjalda af svokölluðum afruglurum að engin heimild hafi verið fyrir því í fjárlögum heldur hafi fjmrh. hagað sér líkt og tíðkast í margnefndum Afríkuríkjum þar sem ráðherrar leyfa sér að ganga í ríkiskassann eftir því sem mönnum sýnist án heimilda. Ég minni á að það er Alþingi sem á að gefa heimildir til þessara hluta en ekki velvilji fjmrh.

Ég kemst ekki hjá því að benda á að í því fjárlagafrv. sem nú liggur fyrir er þessarar heimildar aflað fyrir næsta ár, en hvað varðar afnám aðflutningsgjalda á þessu ári er engin heimild fyrir því og hefði þurft að afla hennar. Svona umgengni við ríkiskassann er óþolandi og ég tala nú ekki um þann óheiðarlega málflutning sem hæstv. fjmrh. hefur uppi nú varðandi afstöðu annarra manna til frjáls útvarpsreksturs.

Það er alveg ljóst að hv. 5. landsk. þm. gerði margar brtt. við nýju útvarpslögin og margt af því hefði mátt samþykkjast, allt. Mörgu var komið til skila og samþykkt, en vissulega hefði mátt betur gera í þeim efnum því þau lög sem nú eru í gildi eru vissulega gölluð og koma til með að þurfa breytinga við þegar menn átta sig á því hversu illa var staðið að verki.