15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (100)

Síðustu efnahagsákvarðanir ríkisstjórnarinnar

Guðmundur G. Þórarinsson:

Hæstv. forseti. Ég fagna því að hér hafa efnahagsmál íslensku þjóðarinnar verið tekin til umræðu í dag. Ég tel það bæði sjálfsagt, eðlilegt og nauðsynlegt að slík umræða fari nú fram á Alþingi Íslendinga. En jafnframt því vil ég beina þeim orðum vinsamlega til hv. 5. þm. Reykn. að næst þegar hann hefur umræðu utan dagskrár á Alþingi þá velji hann dag þegar hann hefur sæmilegan tíma til að vera viðstaddur sjálfur.

Jafnframt því sem ég vil líka þakka honum fyrir að hefja þessa umræðu þá verð ég að játa það að ég varð fyrir dálitlum vonbrigðum með ræðu þm. Ég hef nefnilega verið þeirrar skoðunar að hv. 5. þm. Reykn. væri vel að sér um efnahagsmál og byggi þar yfir talsvert mikilli þekkingu. Og vegna þeirra fjölmörgu sem eru á annarri skoðun en ég um þetta mál og ég hef lent í miklum deilum við þá er ég beinlínis sár við þm. að hann skyldi láta sér takast það að tala hér nærfellt í heilan klukkutíma um efnahagsmál án þess að þessi þekking kæmi fram. Eða að hann kæmi fram með tillögur til úrbóta í þeim málum sem hann var sjálfur að gagnrýna. Hins vegar flutti þm. hér listaskemmtilega ræðu. Mér fannst virkilega gaman að hlusta á ræðuna og ég tek ekki undir með þeim sem telja að slíkt léttmeti eigi ekki erindi inn í þingsali. Ég held einmitt að núna þegar skammdegið kemur þá sé það einmitt ágætt að fá slíkt saman við. Sumt af ræðu þm. hefði fyllilega sómt sér á Broadway við hliðina á Ómari Ragnarssyni eða Halla og Ladda og þetta var, eins og ég sagði áðan, ljómandi skemmtileg ræða, listaskemmtileg.

Hér hafa menn gert það nokkuð að umræðuefni og sérstaklega alþýðubandalagsmenn að stjórnarliðar séu ekki allir sammála um alla hluti og ég verð að játa það að ég er dálítið undrandi á þeirri umræðu. Gera menn sér ekki grein fyrir því að hér eru saman í ríkisstjórn þrír stærstu stjórnmálaflokkar landsins? Stjórnmálaflokkar sem í grundvallaratriðum eru ólíkir en þurfa á stuttum tíma að koma sér saman um mörg helstu grundvallaratriði í íslensku þjóðlífi. Þegar litið er á málin frá þeirri staðreynd og frá því sjónarhorni þá verð ég nú að játa það að ég er eiginlega undrandi hversu mikil samstaða hefur náðst. Ég er jafnframt glettilega mikið undrandi á því að alþýðubandalagsmenn skuli vera svona undrandi að ekki skuli allir vera sammála í öllum atriðum í þessum þremur stóru stjórnmálaflokkum. Ekki síst þegar litið er til þess að þeir eru þó í einum flokki og þar sýnist mér nú að menn séu glettilega mikið ósammála þó í einum flokki séu. Þar greinir menn á um grundvallaratriði eins og bara hreinlega stefnuna og viðhorfið til verkalýðshreyfingarinnar. Ég þarf ekki að nefna annað en deiluna við Ásmund Stefánsson eða persónulegar deilur á milli manna og nefna nöfn eins og Guðmund J. Guðmundsson eða jafnvel Þröst Ólafsson, formann félagsins á Akureyri sem núna var að segja af sér formennsku. Ég er ekki með jafngott úrklippusafn og hv. 5. þm. Reykn. þannig að ég geti rakið þetta hér en ég hygg að ef menn horfa á Alþb. sem einn flokk þá verði menn glettilega mikið undrandi yfir því að í einum flokki geti verið saman menn sem í nánast engu geta komið sér saman um neitt og þaðan af síður held ég að menn geti skilið það að þessir menn komi síðan algjörlega undrandi á fundi í Alþingi Íslendinga, undrandi á því að í þessum þremur stóru stjórnmálaflokkum skuli finnast menn sem greinir á um einhver grundvallaratriði. Ég held að menn séu að beina þarna dálítið sjónum frá sjálfum sér. Ef horft er grannt á málin þá er það undravert hversu þessum þremur flokkum hefur þó tekist á stuttum tíma að koma sér saman um erfið mál. Við búum hér í opnu þjóðfélagi, við opið stjórnskipulag og opna umræðu og menn segja beint út það sem þeim finnst. Það er eðlilegt, það er ákjósanlegt og þannig viljum við hafa það. Ágreiningurinn innan stjórnarliðanna er ótrúlega lítill og hann er nánast enginn ef hann er borinn saman við ágreininginn innan þessa eina flokks sem hér þó vakti umræðuna sérstaklega til að vekja athygli á þessum ágreiningi.

Ég ætla ekki að fara mjög mörgum orðum um efnahagsmálin eða aðgerðirnar í efnahagsmálum nú. Ráðherrarnir hafa gert það mjög ítarlega. Ég vil þó segja það að þegar þessi ríkisstjórn var mynduð þá var ég þeirrar skoðunar og einn harðasti talsmaður þess að til harðra aðgerða væri gripið. Mín rök voru þau að í slíku góðæri gæti ríkisstjórn ekki lagt af stað með bullandi öfugan viðskiptajöfnuð við útlönd og öfugan ríkissjóð. Þess vegna yrði að grípa til aðgerða, það væri nauðsynlegt og eðlilegt. Því miður náðist ekki samkomulag um það þegar stjórnin var mynduð. Nú er gripið til viðbótaraðgerða og ég er sammála því og þeim markmiðum sem þar er verið að reyna að ná. Það er algjörlega í samræmi við mínar skoðanir þegar þessi ríkisstjórn var mynduð.

En síðan örfá atriði vegna þess að til mín hefur verið vitnað talsvert hér í umræðunni og þeirra ummæla sem höfð hafa verið eftir mér í fjölmiðlum. Ég hef sagt það að ég samþykki aldrei söluskatt á matvæli nema að til komi hliðarráðstafanir til þess að bæta kjör þeirra sem flesta munna hafa að fæða, stærstu fjölskyldnanna og þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu. Ég trúi því ekki að það sé neinn maður hér inni ósammála mér í þessu atriði. Ég vil ekki trúa því. Menn hafa rætt um breytingar á söluskattskerfinu með það fyrir augum að samræma það og gera það skilvirkara og því hafa menn sagt að til þess að innheimtan verði það þurfi að koma á ein og sama prósenta á allt. Þetta get ég fallist á en jafnframt fullyrði ég að það var aldrei meining framsóknarmanna og sennilega aldrei neinna í ríkisstjórninni að slíkur skattur, sem samræmingaratriði væri, yrði skattheimta á almenning heldur hlytu að koma þar á móti vandlega yfirvegaðar og þaulhugsaðar aðgerðir til að mæta því, þannig að sex, átta, tíu eða tólf manna fjölskylda væri ekki dæmd til þess að greiða meira í ríkissjóð en sú sem færri meðlimi hefur. Þessi afstaða mín er alveg ljós og alveg klár. Öðruvísi mun ég aldrei samþykkja söluskatt á matvæli. Og ég geri mér vonir um það að félagar mínir í stjórnarflokkunum séu sama sinnis, enn trúi ég engu öðru. Þegar hefur verið ákveðið að verja nokkru fé til niðurgreiðslna. Ég hef sagt það og segi það hreint út, ég hef ekki enn reiknað það dæmi til enda og ég hef ekki séð hvort það mætir því nægilega sem ég er að segja. Það mun ég skoða. En ég vil jafnframt vekja athygli á því að Alþingi Íslendinga hefur mjög afsalað sér valdi varðandi söluskatt. Lagaheimildir sem ráðherra hefur til undanþága í söluskatti, sem aftur hafa verið skildar þannig að hafi hann rétt til að veita undanþágu þá hafi hann rétt til að leggja söluskattinn á aftur, eru að mínu viti of rúmt notaðar almennt. Ég er þeirrar skoðunar að Alþingi eigi að afnema slíkar undanþágur en ekki bara frá þessum söluskatti, 25%, heldur eru bráðabirgðalögin sem ríkisstjórnin setti einnig með slíku heimildarákvæði og ég efast um að það sé samrýmanlegt stjórnarskránni að Alþingi afsali sér slíkum rétti. Ef ég man rétt þá stendur það í 40. gr. íslensku stjórnarskrárinnar að enginn skattur skuli lagður á, breytt eða afnuminn nema með lögum. Og það hlýtur að verða okkur öllum nokkurt umhugsunarefni. Það sem ég hef sagt um söluskattinn á matvæli stend ég þess vegna við og ég vonast til þess að u.m það náist víðtæk samstaða.

Annað atriði sem sérstaklega hefur verið vitnað til mín með eru hugleiðingar og orð um gengisfellingu eða gengi íslensku krónunnar. Það er rangt haft eftir mér og misskilningur að ég hafi krafist gengisfellingar. Ég hef hins vegar á fundi með ungum framsóknarmönnum reynt að gera grein fyrir mínum skoðunum hvað fastgengisstefna feli í sér og ég geri mér mjög vel grein fyrir því að það er afar erfitt að ræða gengismál af sanngirni og raunsæi án þess að vekja um leið einhverjar tilhneigingar til spákaupmennsku. Ég held hins vegar að margt af því sem hér hefur verið sagt um gengismál í dag og í kvöld sé ekki skynsamlegt. Ég held að ríkisstjórn sem hefur takmarkaða stjórnþætti í höndum sér geti ekki lofað því að halda gengi föstu vegna þess að þeir þættir sem hafa áhrif á gengið eru svo margir og þeir eru ekki allir í höndum einnar ríkisstjórnar. Ég held að ef verðbólga í okkar landi er meiri en í viðskiptalöndum okkar og verðlag á okkar afurðum hækkar ekki í sama mæli þá styrkist íslenska krónan óeðlilega. Ég held líka að ef menn í slíkri verðbólgu halda gengi föstu þá geri þeir það með því að ganga á eigin fé útflutningsatvinnuveganna. Þeir eru mjög mismunandi vel staddir og þá mun auðvitað reka upp á sker á einhverjum tíma ef ekki tekst að halda verðbólgunni niðri. Þetta er afar einfalt reikningsdæmi og þarf ekki að fara mörgum orðum um.

Ég ætla ekki að fara fleirum orðum, herra forseti, um efnahagsaðgerðirnar almennt. Ráðherrarnir hafa rætt þær mjög ítarlega hér. En mér dettur í hug vegna þess að ég hóf þessa ræðu mína hér með því að segja að hv. 5. þm. Reykn. hefði flutt listaskemmtilega ræðu, en það er með þá list, ræðulistina, eins og til að mynda myndlist, að menn greinir nokkuð á og ég þykist vera þess fullviss að það hafi kannski ekki öllum þótt þessi ræða hv. 5. þm. Reykn. jafnskemmtileg og mér þótti hún. Í því sambandi dettur mér í hug dálítil saga um samanburðinn við myndlistina vegna þess að kunningi minn einn tók dóttur sína með sér á málverkasýningu þar sem verið var að sýna abstrakt-listaverk. Hún gekk á undan honum inn í salinn og þegar hann kom að henni þá stóð hún fyrir framan eitt listaverkið sem sumir hefðu nú kannski kallað klessulistaverk. Og þegar faðirinn lagði höndina á öxlina á henni þá hrökk litla stúlkan við og leit eins og afsakandi á pabba sinn og sagði: Ég gerði þetta ekki.

Þessi saga kom mér í hug þegar ég hlustaði á hv. 5. þm. Reykn. flytja þessa listaskemmtilegu ræðu, og ekki síst þegar ég sé það að þm. Alþb. eru fæstir viðstaddir hér í kvöld, vegna þess að þegar hann lauk ræðu sinni í dag fannst mér eins og skrifað á enni hinna þm. flokksins: Ég gerði þetta ekki.