03.12.1987
Sameinað þing: 25. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)

134. mál, heildarendurskoðun erfðalaga

Guðrún Agnarsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég var meðflm. að því máli sem hv. fyrirspyrjandi gat um áðan og að gefnu tilefni langar mig að geta þess að um fá mál hef ég meira verið spurð en þetta þegar það var í meðförum þingsins. Það var afar náið fylgst með þessu máli af fjölda fólks úti í þjóðfélaginu sem gerði fsp. um það hvar þetta mál væri statt, hvort væri búið að samþykkja það og hvers mætti vænta af meðförum þingsins. Ég vil því vekja athygli hæstv. dómsmrh. á því að það eru mjög margir sem hafa fylgst með því hvernig þetta mál fór í þinginu og vænta sér mikils af breytingu á erfðalögunum í þá veru sem frv. kveður á um.