03.12.1987
Sameinað þing: 25. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (1049)

154. mál, deilur um forræði barna

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég vildi ljúka þessum orðaskiptum með örstuttri athugasemd, einmitt vegna þess sem fram kom í máli hv. 3. þm. Reykv. og 6. þm. Reykv. Hinn langi afgreiðslutími í forsjárdeilumálum er ákaflega bagalegur og eins og kom fram í máli þeirra beggja bitnar hann á þeim sem síst skyldi, börnunum. En ég bendi á það aftur að þetta hlýst fyrst og fremst af því hversu langur biðtími og afgreiðslutími mála er hjá barnaverndaryfirvöldum sveitarfélaganna, en það er lögboðið að leita umsagnar þeirra í þessum málum. Hvort hægt er að setja þarna strangari fresti skal ég gjarnan láta kanna. Ég vil að endingu leggja áherslu á að sáttaumleitanir hjá barnaverndarnefndunum og hjá ráðuneytinu er að sjálfsögðu sá farvegur sem þessi mál ættu helst að fara í og eins og kom fram í máli hv. 6. þm. Reykv. nú síðast er það forræðið eftir skilnað, hvort sem það er lögskilnaður hjónabands eða vegna sambúðarslita, sem leysa þarf en ekki að útkljá einhver lögfræðileg vandamál. Hugsanlegt er að ráðgerð breyting á barnalögum um sameiginlegt forræði þeirra sem skilja geti eitthvað auðveldað lausn slíkra mála og það verður einmitt eitt af þeim atriðum sem væntanlegt frv. til barnalaga mun taka á.