03.12.1987
Sameinað þing: 26. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1464 í B-deild Alþingistíðinda. (1058)
Staða mála í þinginu
Forsætisráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins í lok þessarar umræðu árétta að það var hv. 4. þm. Norðurl. e. sem hóf þessa umræðu um stöðu stjórnarandstöðunnar og þá meintu skoðun að hún væri slöpp. Ég hóf ekki þá umræðu og viðhafði ekki þau orð og ég bið hv. þm. stjórnarandstöðunnar að misskilja ekki mín orð. Ég minnist þess að Halldór Laxness sagði einhverju sinni í útvarpsviðtali eftir að bók eftir hann var nýkomin út að það væri svo með gagnrýnendur að þeir féllu oft í þá freistni að lesa bara á milli línanna í bókum hans en ekki textann sjálfan. Og ég bið hv. þm. stjórnarandstöðunnar að taka bara orðin eins og þau voru sögð.
Varðandi störf ráðherra hér á hinu háa Alþingi fullyrði ég að þeir hafa verið hér við umræður um þau mál sem þeir fara með fyrir hönd framkvæmdarvaldsins. Á það verður ekki borin fram gagnrýni að þeir hafi vikist undan því að vera hér við umræður þegar mál, sem undir þeirra málaflokka heyra, hafa verið hér til umfjöllunar. Ég held að það verði ekki borin fram sú gagnrýni að það hafi orðið undandráttur í því að ráðherrar svöruðu fsp. sem fram hafa verið bornar með hefðbundnum hætti.
En ég vil taka undir það sem fram kom hjá hv. 4. þm. Norðurl. e. að við eigum mjög mikið starf fyrir höndum á næstu tveimur vikum. Óvenjumikið starf. Og það er auðvitað rétt að svo stór og viðamikil þingmál sem við höfum til umfjöllunar hefðu þurft að koma fyrr fram. En eins og kom fram í máli hv. málshefjanda, þá eru hér á döfinni margs konar kerfisbreytingar sem þurfa mikinn undirbúning áður en ríkisstjórn getur lagt þau fram af sinni hálfu þannig að ég veit að hv. þm. hafa skilning á því. Við munum fyrir okkar leyti reyna að hafa sem best samráð um framgang þessara mála hér í þinginu og ég vænti þess að þau frumvörp, sem hér um ræðir og ekki eru komin fram, komi hér fram á þingi strax eftir helgina.