03.12.1987
Sameinað þing: 26. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1470 í B-deild Alþingistíðinda. (1066)
147. mál, skoðanakannanir
Árni Gunnarsson:
Virðulegi forseti. Ég fagna þessari till. til þál. um setningu laga eða reglna um skoðanakannanir og hef verið þeirrar skoðunar um langt árabil að það hefði verið nauðsynlegt að setja ákveðin lög um skoðanakannanir, í það minnsta ákveðnar reglur. Ég blanda mér í þessa umræðu vegna þess að á undanförnum missirum hafa verið að birtast m.a. í bandarískum og breskum tímaritum og blöðum vísindalegar niðurstöður um áhrif skoðanakannana á þjóðfélagsmyndina og jafnvel um áhrif skoðanakannana á stjórnmálamenn og afstöðu þeirra til einstakra mála. Ýmsir félagsfræðingar eru farnir að hafa af því stórfelldar áhyggjur að skoðanakannanir séu farnar að móta skoðanir og vinnubrögð stjórnmálamanna langt umfram það sem eðlilegt getur talist.
Hér kom fram á 100. löggjafarþinginu, 1978–1979, þ.e. fyrir tæpum 10 árum, þáltill. um almennar skoðanakannanir og þar var lýst þeim vilja að Alþingi ályktaði að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir setningu laga um almennar skoðanakannanir. Þetta mál hefur því verið rætt á hinu háa Alþingi nokkuð oft en árangurinn hefur enginn orðið.
Ég minnist þess að grg. þessarar ályktunar vakti mikla athygli vegna þess hve flm. voru orðljótir en flokkur þeirra hafði orðið fyrir talsverðu áfalli í kosningum sem fram höfðu farið þá skömmu áður og kenndu um að verulegum hluta skoðanakönnunum sem birst höfðu rétt fyrir þessar kosningar. Ég get nú ekki annað en látið það eftir mér að lesa, með leyfi forseta, hluta af grg. þeirra félaga. Þeir segja: „Ekki ber að amast við skoðanakönnunum í þjóðfélaginu sem framkvæmdar eru á marktækan hátt og af hlutlausum og vönduðum aðilum. Því er það brýnt að settar verði skorður við því að þjóðmálaskúmar, kaupahéðnar og áróðursapparöt geti sett á svið hömlulaust eitthvað sem þau geti kallað almennar skoðanakannanir og unnið þannig sjónarmiðum sínum eða skjólstæðingum brautargengi.“ — Og síðan komast þeir að þeirri niðurstöðu að það sé orðið fyllilega tímabært að setja lög um skoðanakannanir.
En rétt eins og ég var sammála niðurstöðu þeirra þremenninga sem fluttu þessa þáltill. á sínum tíma er ég sammála þeirri till. sem hér hefur komið fram um að sett verði löggjöf um gerð skoðanakannana og ákveðin skilyrði lögfest um óhlutdrægni og vísindalega nákvæmni sem ég vænti að sé tilgangurinn með þessu.
Nú getur það hins vegar verið æði snúið að meta hverjir eru óhlutdrægir og hverjir ekki og í hverju hin vísindalega nákvæmni er fólgin. Þó eru til þrautreyndir staðlar sem unnt er að fara eftir og ná fram nokkurri nákvæmni við gerð þessara kannana, á hvaða sviði sem er. Hin hlið þessa máls er og verður alltaf umdeild en það er um hvað er spurt, hverjir spyrja og hvernig er spurt. Og það verður einnig umdeilt, einkum í stjórnmálum, hvenær birta skuli niðurstöðu kannana um fylgi flokka og einstaklinga. Sjálfur tel ég t.d. að það eigi ekki að leyfa birtingu slíkra niðurstaðna skömmu fyrir kjördag og að ekki eigi að líða skemmri tími en sjö dagar eins og ég hygg að Frakkar hafi gert að reglu hjá sér. Við vitum allir að niðurstöður skoðanakannana rétt fyrir kosningar geta haft veruleg áhrif á úrslit kosninga. Þetta hefur m.a. verið sannað í Bretlandi þar sem Verkamannaflokkurinn hlaut í einum kosningum, ef ég man rétt, slæma útreið eftir að hafa fengið mjög góða niðurstöðu í skoðanakönnun fyrir kosningar. Þegar farið var að skoða málið eftir kosningar kom í ljós að kjósendur Verkamannaflokksins voru svo sannfærðir um sigur hans að þeir sátu heima.
Enn ein áhrifin eru þau, sem þekkt eru frá Bretlandi og ég nefndi, að straumurinn geti farið til þeirra eða það sé tilhneiging að fylgja þeim sem fá góða útkomu í skoðanakönnunum rétt fyrir kosningar. Síðan það að slök útkoma í skoðanakönnunum rétt fyrir kosningar getur kallað á svonefndan hræðsluáróður sem fylkir liðinu saman á nýjan leik.
Mig langar að fara nokkrum orðum, virðulegi forseti, um það sem hefur komið fram í þeim greinum sem ég hef verið að lesa, þeim vísindalegu athugunum á áhrifum skoðanakannana, og ég vil fá að draga það saman í nokkrum orðum.
Niðurstaðan er tvímælalaust sú að skoðanakannanir geti verið mjög skoðanamyndandi og þjóni þá ekki lengur þeim tilgangi að vera spegilmynd vilja eða langana fólksins í landinu þar sem könnunin er gerð. Þess vegna verður að gera þá grundvallarkröfu að við gerð skoðanakannana starfi eingöngu einstaklingar og fyrirtæki sem hafi til þess þekkingu og burði og styðjist við vísindalega úrlausn verkefna. Þetta er auðvitað hægt á Íslandi eins og annars staðar, en löggjafarsamkundan verður að mínu mati að setja einhverjar grundvallarreglur um gerð skoðanakannana af öllu tagi, einkum þó hvað snertir svið stjórnmálanna.
Ég geri mér ljósa grein fyrir því að það er tiltölulega auðvelt að gera marktæka skoðanakönnun tölulega séð, en ég er jafnsannfærður um að til að hún verði marktæk vegna spurninga og úrvinnslu þarf mikla reynslu og þekkingu. Orð hafa margvíslega merkingu og þeim er hægt að raða á mismunandi hátt. Við sem höfum fengist við stjórnmál vitum kannski manna best hve auðvelt er að hagræða orðum og túlkun á orðum andstæðinganna. Á sama hátt er unnt að túlka svör á ýmsa vegu, jafnvel þótt svarið sé bundið við orðið já og nei — eða hver kannast ekki við spurninguna: Ertu hættur að berja konuna þína?
Ég hygg að hér á landi þurfi fyrirtæki sem njóta trausts að sérhæfa sig í gerð skoðanakannana, en um leið þarf að setja lög og reglur um þann ramma sem ég hygg að verði að umlykja þennan mikilvæga þátt í nútímaþjóðfélagi.
Ég minntist á áhyggjur manna í útlöndum og ætla að rekja þær nokkru nánar og nokkur atriði sem þar hafa komið fram og ég hygg að vegi verulega þungt. Þar eru menn farnir að hafa miklar áhyggjur af áhrifum skoðanakannana og þá beinlínis á þær lýðræðislegu aðferðir sem beitt er í frjálsum löndum til kjörs fulltrúa á þjóðþing eða til annarra mikilvægra embætta. Gagnrýnendur eru farnir að spyrja spurninga um mikilvægi og áreiðanleika þeirra kannana sem móta stjórnmál og viðskipti.
Fyrir allnokkru birtist gagnmerk grein í bandaríska tímaritinu US News and World Report þar sem varpað er fram þeirri spurningu hvort skoðanakannanir séu að fara úr böndunum. Þar segir að pólitískum könnunum bókstaflega rigni niður. Þær séu hluti af voldugri starfsgrein sem nái til flestra sviða og hafi áhrif á allt frá því hvernig fólk kjósi og til þess hvað það kaupi. Í ritinu kemur fram að þessi starfsgrein eða iðnaður velti a.m.k. 1,5 milljörðum dollara árið 1983.
Tímaritið segir enn fremur að félagsfræðingar hafi miklar áhyggjur af því að menn á valdastólum styðjist um of við kannanir sem kunni að vera rangar. Helsti sérfræðingur á þessu sviði, sem heitir Everett Carl Ladd og er yfirmaður Roper Center við háskólann í Connecticut, þar sem er miðstöð rannsókna varðandi skoðanakannanir, segir: „Við verðum að vera gagnrýnni og taka sumar kannanir með fyrirvara.“ Aðrir sérfræðingar hafa áhyggjur af því að almenningur skilji ekki að kannanir eru takmarkaðar og eru ekkert annað en skyndimyndir af tilteknu ástandi á tilteknum tíma. Þá er bent á að niðurstöður skoðanakannana kunni að hafa meiri áhrif á afstöðu pólitískra frambjóðenda til einstakra málaflokka, en jafnvel þeirra eigin niðurstaða og samviska. Telji þeir að eitthvað annað en þeir hafa boðað eða sagt geti tryggt fleiri atkvæði samkvæmt niðurstöðu einhverrar könnunar breyti þeir afstöðu sinni.
Niðurstöður skoðanakannana geta einnig haft afgerandi áhrif á hverjir geta verið í framboði, til að mynda í Bandaríkjunum af því að þetta á sérstaklega við um það ríki sem lengst er komið í skoðanakönnunum, og það án tillits til mannkosta eða hæfileika. Þetta getur hugsanlega snert að einhverju leyti prófkjör hér á landi sem mjög hafa verið tíðkuð þar sem fjármagnið hefur kannski ráðið úrslitum um niðurstöðu prófkjörs. En í Bandaríkjunum fer það gjarnan þannig að þeir sem fá slaka útkomu í skoðanakönnunum skömmu fyrir kosningar hafa litla von um að fá fjármagn til kosningabaráttunnar.
Þá segir í þessari grein, svo að ég vitni til hennar aftur með leyfi forseta, að margir stjórnmálamenn haldi áfram að styðjast við niðurstöður skoðanakannana eftir að þeir hafa komist í valdastóla. Þetta hafi reynst sumum þeirra vel, en orðið öðrum alger martröð.
Við höfum orðið vitni að því hér á landi að skoðanakönnunum hefur verið klúðrað vegna þess að það hefur ekki verið staðið nægilega vel að þeim. Hvorki virðist þekking á eðli þeirra hafa verið nægjanleg eða menn stuðst við nægilega vísindalega stuðla. Gagnrýnin hefur orðið háværari eftir því sem við höfum orðið vitni að því hve mikill mismunur getur verið á niðurstöðum skoðanakannana einstakra fyrirtækja sem hafa verið birtar með tiltölulega skömmu millibili.
Það er líka ljóst að skoðanakannanir á Íslandi eru að verða talsverður iðnaður. Það eru sérstök fyrirtæki hér sem gefa sig út fyrir það að vinna skoðanakannanir og það er þegar farið að veita umtalsverðu fjármagni inn í þennan nýja iðnað. Þess vegna hlýtur það að vera áhyggjuefni löggjafarvaldsins hvernig að þessum málum er staðið. Og þó að ég vilji alls ekki gera því skóna að þeir menn sem stjórna og hafa stjórnað þeim skoðanakönnunum, sem gerðar hafa verið hér á landi, hafi viljað hafa áhrif á stjórnmálalífið í landinu er engu að síður full ástæða til að hafa áhyggjur af þessu. Ég geri það að lokaorðum mínum, sem einn stjórnmálafræðingur hefur sagt, að það sé ekki allt með felldu í þeim þjóðarlíkama þar sem nauðsynlegt reynist að taka púlsinn jafnoft og gert er. Ég held að þetta eigi við um Íslendinga líka.