03.12.1987
Sameinað þing: 26. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1477 í B-deild Alþingistíðinda. (1072)
147. mál, skoðanakannanir
Guðni Ágústsson:
Virðulegi forseti. Ég kem í stólinn til að lýsa stuðningi mínum við þessa till. og tel að menn hafi staðið rétt að. Mér sýnist vera hér fulltrúi úr hverjum þingflokki utan þess að þar er ekki hv. þm. Stefán Valgeirsson. En þetta segir kannski að í öllum þingflokkum gæti orðið samstaða um lagasetningu sem gerði að verkum að menn stæðu að skoðanakönnunum af meiri skynsemi og kannski væri hægt að byggja á þeim sem marktækum og merkilegum með meira öryggi í framtíðinni.
Ég held að það sé full ástæða til að setja lagaákvæði um skoðanakannanir sem tengjast mikilvægum málum og umdeildum þjóðfélagsmálum, eins og segir í till. Enn fremur hygg ég að lýðræðisins vegna sé mjög brýnt að skoðanakannanir fari ekki fram mjög nærri alþingiskosningum. Þær eru leiðandi og út af þeim er lagt með þeim hætti í þessu þjóðfélagi að þær eru gerðar leiðandi. Þess vegna styð ég till. og tel að flm. hafi gefið í þessari till. myndarlega ábendingu um hverjir skyldu eiga aðild að nefnd til að fjalla um þessi mál. Með leyfi forseta nefna þeir einmitt Blaðamannafélag Íslands, félagsvísindadeild Háskólans og Félag þjóðfélagsfræðinga og að formann nefndarinnar skipi ríkisstjórnin. Ég held að þetta væri gagnlegt. En síðan tveir frá hverjum þingflokki.
Ég endurtek að ég lýsi fyllsta stuðningi mínum við að svona starf fari í gang og vænti þess að það leiði af sér að hér á landi verði staðið af myndarlegri hætti og öruggari að skoðanakönnunum í framtíðinni en gert hefur verið hingað til.