04.12.1987
Efri deild: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)
Fundarboð og fjarvera þingmanna
Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Vegna orða síðasta ræðumanns, hv. 4. þm. Vestf., vil ég undirstrika að hér hafa engin illindi orðið enn þá. Ég vil líka taka undir það að sjálfsagt er að slíkir útbýtingarfundir séu haldnir, en þá vil ég jafnframt vekja athygli hv. þm. á því að nú eru hér staddir þrír stjórnarliðar. Það eru staddir hér reyndar fimm að ráðherrunum báðum meðtöldum og skrifara. Já. Nú verður að telja þá alla. (Gripið fram í: Sjö.) En það gildir einu þó þeir séu sjö. Þeir eru ekki nógu margir til þess að hægt sé að setja fund. Og þá spyr ég: Ef þetta er svona sjálfsagt mál ... (Gripið fram í.) Já, þannig að hefðir séu haldnar. Ef þetta er svona sjálfsagt mál, því var ekki hægt að losa fleiri stjórnarliða hingað á þingfund úr þeim skuldbindingum sem þeir hafa tekið á sig í dag vegna þess að þeir bjuggust ekki við fundi? Hefur þessi ríkisstjórn ekki nægan meiri hluta hér á þingi?