07.12.1987
Neðri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)

54. mál, útflutningsleyfi

Geir H. Haarde:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að skrifa undir álit meiri hl. hv. fjh.- og viðskn. með fyrirvara. Fyrirvari minn snýr ekki að þeirri hlið þessa máls er snertir flutning stjórnsýsluverkefna á sviði útflutningsmála frá viðskrn. til utanrrn. Ég er þeirri breytingu sammála. Um hana snýst þetta frv. Með frv. er þannig ekki verið að gera efnislega breytingu á núverandi skipan útflutningsleyfa heldur einungis gert ráð fyrir að framkvæmdir flytjist úr einu ráðuneyti í annað.

Ég vildi hins vegar láta það koma fram að ég hef efasemdir um hvort það fyrirbæri sem frv. þetta fjallar um eða svokölluð útflutningsleyfi eigi áfram rétt á sér með sama hætti og verið hefur óháð því í hvaða ráðuneyti slík leyfi eru gefin út.

Um þessi mál hefur löngum verið deilt og hér togast á tvö meginsjónarmið. Annars vegar það að reyna að hámarka útflutningstekjur og beita í því skyni, ef með þarf, takmörkunum á fjölda útflytjenda þannig að staða hvers um sig á erlendum mörkuðum verði sem sterkust. Hins vegar að tryggja mönnum frelsi til athafna í útflutningsstarfseminni til jafns við atvinnufrelsi í öðrum greinum.

Færa má gild rök fyrir báðum þessum sjónarmiðum. Vandi stjórnvalda á hverjum tíma felst í því að vega þessa hagsmuni hverja á móti öðrum og finna þá leið sem fullnægir báðum sem best, þ.e. kemst sem næst því að hámarka útflutningstekjur án þess að skerða atvinnufrelsið.

Í útflutningsmálum okkar Íslendinga hefur á löngu árabili þróast tiltekin skipan byggð á útflutningsleyfum og þeirri hugmynd að unnt sé að skila meiri verðmætum í þjóðarbúið ef sala helstu útflutningsafurða sé í höndum fárra aðila sem keppa lítt eða ekki innbyrðis. Í aðalatriðum hygg ég að þessi skipan hafi gefið góða raun og mjög vafasamt er að sjálfsögðu að nokkur önnur komi til greina þegar um er að ræða útflutning til ríkja þar sem innflutningur er í höndum eins opinbers aðila, þar sem um opinbert, svokallað einkeypi er að ræða eins og í ríkjunum austan járntjalds. Öll rök viðskipta- og markaðsfræða hníga að því að gegn slíkum aðilum dugi einkasala best. Einokun dugi best gegn einokun ef menn vilja á annað borð reyna að hámarka sinn afrakstur.

Í löndum þar sem frjáls markaðsviðskipti eru meginreglan getur á hinn bóginn gegnt öðru máli þótt oftast sé það svo að einokunarsali í frjálsu markaðskerfi geti aukið hagnað sinn, fái hann að starfa óáreittur, umfram það sem væri ef hann þyrfti að glíma við keppinauta. Það er að sjálfsögðu ástæðan fyrir því að menn hafa almennt á móti einokun, þ.e. aðrir en einokunaraðilarnir sjálfir, sem jafnan finna einhverja réttlætingu fyrir tilveru sinni, stundum réttmæta en oftast ekki.

Nú ætla ég ekki, herra forseti, að blanda slíkum fræðilegum hugleiðingum frekar inn í þetta mál en ég tel að það hljóti að koma til skoðunar á næstu árum hvort ekki sé tilefni til að rýmka til um heimildir til útflutnings, svo sem raunar hefur þegar verið gert í verulegum mæli í vissum vöruflokkum og á ákveðnum mörkuðum. Þá þarf jafnframt að athuga hvort sú skipan útflutningsleyfa sem þetta frv. mælir fyrir um skuli standa óbreytt.

Hin öflugu útflutningssamtök okkar Íslendinga hafa um árabil unnið mikilsvert markaðsstarf. Það munu þau að sjálfsögðu áfram gera. En þess er vart að vænta að þau muni ævinlega geta fylgst svo nákvæmlega með allri þróun á öllum mörkuðum að ekki geti verið rúm fyrir útsjónarsama nýja aðila einhvers staðar á jaðri starfsemi hinna stóru samtaka, aðila með nýjar hugmyndir, nýjar vörur eða nýja sölutækni. Þess vegna þarf að vera unnt að veita slíkum aðilum eitthvert svigrúm enda verði starfsemi þeirra ekki til þess að lækka almennt útflutningsverð eða heildarútflutningstekjur.

Þegar fjallað var um frv. þetta komu á fund fjh.og viðskn. fulltrúar frá Félagi ísl. stórkaupmanna með tillögur um að takmarka mjög ef ekki fella alveg niður heimildir ráðherra til að neita væntanlegum útflutningsaðila um útflutningsleyfi. Byggjast skoðanir þeirra eflaust á sjónarmiðum um frelsi til athafna og atvinnu svipuðum þeim sem ég gat um hér að framan.

Ég tel, eins og fram hefur komið, að viðhorf þessara aðila eigi nokkurn rétt á sér. Frv. þetta felur hins vegar einvörðungu í sér þá formbreytingu að flytja meðferð þessara mála frá viðskrn. til utanrrn. og fjallar ekki um breytingar á núverandi skipan að öðru leyti. Erindi Félags ísl. stórkaupmanna á því ekki rétt á sér við umfjöllun um þetta mál nema sem ábending um breytta tilhögun síðar.

Ég tel ekki rétt að blanda saman þeirri stjórnkerfisbreytingu sem frv. felur í sér og spurningunni um það hvort yfirleitt eigi að gefa út útflutningsleyfi eða hvort þau eigi að vera í öðru formi en nú tíðkast. Það er einfaldlega annað mál.

Ég greiði þessu frv. því atkvæði mitt en áskil mér að sjálfsögðu rétt til að fylgja breytingum á skipan útflutningsleyfa síðar.