07.12.1987
Neðri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (1107)

54. mál, útflutningsleyfi

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég skrifaði undir nál. meiri hl. með fyrirvara og vil gera grein fyrir þeim fyrirvara með örfáum orðum.

Með þessu frv. er ekki gerð tillaga um neinar breytingar á orðalagi frá núgildandi lögum að öðru leyti en því að hér er um tilflutning að ræða á milli ráðuneyta. Eins og segir í því nál. sem ég skrifaði undir með fyrirvara, þá komu nokkrir aðilar á fund nefndarinnar, aðilar sem standa í útflutningsviðskiptum. Og þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir var ekki að merkja á þessum aðilum að menn væru andvígir þessum tilflutningi milli ráðuneyta. Hins vegar voru svolítið skiptar skoðanir, eins og hér hefur komið fram, um það hvernig þessi lög ættu að vera og ýmsir sem vildu breytingar á þeim í frjálsræðisátt. Á það var ekki fallist af meiri hl. nefndarinnar og ég er sammála því að það beri að fara varlega í þessum efnum, og að það svigrúm sem fyrir er í lögunum sé nægilegt.

Hér er sem sagt einfaldlega um það að ræða, eins og ljóst er af frv. og grg., að flytja utanríkisviðskipti og það sem þeim tilheyrir, þar með talið Útflutningsráð, svo vitnað sé til næsta máls á dagskrá hér, frá viðskrn. til utanrrn. Sá flutningur hefur raunar oft komið til umræðu á síðustu árum og hafa menn vissulega ekki verið á eitt sáttir um réttmæti þess og ágæti.

Kvennalistinn leggur enga áherslu á þetta mál en telur að þessi breyting eigi þó rétt á sér, enda er þegar hafin viðleitni í þá átt að tengja viðskipti við útlönd utanríkisþjónustunni á markvissari hátt en verið hefur. Mér hefur virst sú viðleitni eðlileg og líkleg til að skila árangri ef vel er á haldið.

Ég held að það sé alveg ómaksins virði að gefa utanríkisþjónustunni aukið vægi, hefja hana upp af kokkteila- og hirðsiðastiginu, og nýta hana á víðtækari hátt en verið hefur, án þess að ég sé á nokkurn hátt að kasta steinum að því ágæta fólki sem hefur starfað fyrir okkur á erlendri grund.

Það er svo aftur annað mál hvort flutningur á milli ráðuneyta, flutningur utanríkisviðskipta, eins og nú á að verða, á sér eðlilegan aðdraganda og er nægilega vel undirbúinn. Ég held reyndar að svo sé ekki. Aðdragandinn er einfaldlega samkomulag núverandi stjórnarflokka barið saman á sumardægrum í tengslum við myndun ríkisstjórnar og þessi stjórnkerfisbreyting hefur greinilega verið notuð sem skiptimynt í þeim samningum.

Kvennalistakonur eru vissulega sammála því að þörf sé á endurskipulagningu Stjórnarráðsins. En eins og mörgum hv. þm. er kunnugt höfum við lagt allt aðra áherslu í þeim efnum. Við höfum lagt áherslu á mál sem okkur þykir miklum mun brýnna. Hér á ég við stofnun sérstaks ráðuneytis umhverfismála eða að lágmarki sameiningu þeirra undir einn hatt. Ég tel það mjög miður að ekki skyldi gengið frá slíkri breytingu í stjórnkerfinu við myndun núverandi ríkisstjórnar á jafnafdráttarlausan hátt og gert var með þá breytingu sem hér á að lögfesta. En áhugamálin eru oft persónubundin og svo mun vera um þetta mál.

Fyrirvari minn er hér settur vegna þess að mér finnst, og sú tilfinning hefur styrkst við umfjöllun í nefndinni, sem þetta mál sé eingöngu eða a.m.k. fyrst og fremst komið á þetta stig með tilliti til pólitískra hagsmuna, en ekki að ýkja yfirlögðu ráði og eftir vandlega athugun. Ég get tekið undir margt af því sem hefur komið fram í umræðum um þetta mál í dag hvað það varðar. Ég held að það sé þá eðlilegast og réttast að stjórnarflokkarnir beri einir ábyrgð á sínu samkomulagi og mun ekki greiða þessu frv. atkvæði mitt. Hins vegar sé ég ekki ástæðu til að greiða atkvæði gegn því með tilvísun til þess sem ég hef sagt hér og mun því sitja hjá við afgreiðslu málsins.