08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1602 í B-deild Alþingistíðinda. (1137)
Fjarvistir þingmanna og afgreiðsla mála
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég vil inna hæstv. forseta eftir því hvort það séu fjarvistir sem valda því að ekki er unnt að halda fundinum fram sem skyldi og minni á í því sambandi að á fundi hér í hv. deild í gær varð að bíða með atkvæðagreiðslur þangað til stjórnarliðar mættu í þingsalinn. Hér í upphafi þingfundar, þegar 10 mínútur eru liðnar af venjulegum fundartíma, voru fyrir augnabliki síðan 12 stjórnarandstæðingar en 11 hv. þm. sem styðja, a.m.k. að einhverju leyti, hæstv. ríkisstjórn. Ég verð að segja alveg eins og er við virðulegan forseta að ef þetta á að verða áframhaldið að hér sé dag eftir dag óstarfhæft vegna fjarvista stjórnarliðsins legg ég til að hæstv. forseti grípi til ráðstafana, svo sem eins og þeirra að slíta þessum fundi og kalla fyrir sig þingflokksformenn stjórnarliðsins og inna þá eftir því hvort þetta sé það sem í vændum er.
Mér er að vísu tjáð að einhverjir af þessum hv. mönnum, þingflokksformönnum stjórnarliðsins, séu ekki alveg við hendina og mun það e.t.v. ekki greiða fyrir þingstörfunum næstu daga, en ég tel að virðulegur forseti deildarinnar geti ekki látið þetta halda mikið lengur áfram við svo búið. Það er hreinlega misvirðing við þá þm. sem þó mæta hér til að taka þátt í störfum lögum samkvæmt.