08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1604 í B-deild Alþingistíðinda. (1143)

Fjarvistir þingmanna og afgreiðsla mála

Forseti (Jón Kristjánsson):

Eins og fram kom í ræðu hæstv. forsrh. var haldinn fundur formanna þingflokka og forseta í gær og reyndar hafa þeir verið fleiri nú undanfarið eins og ávallt áður. Í því sambandi hvernig mál muni ganga hér fram það sem eftir er þingtímans til jóla mega menn að sjálfsögðu búast við að hér verði aukafundir í deildum eins og ávallt hefur verið. Á þessum fundi í gær var lögð fram skrá um þau mál sem fram undan eru. Ákveðið var að hafa tíð samráð og fara yfir þessi mál nánar á morgun. Svo hefur verið gert hingað til. Ég vil taka það sérstaklega fram.