08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1605 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)

Fjarvistir þingmanna og afgreiðsla mála

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég tek fram að þessari umræðu er að sjálfsögðu ekki beint gegn störfum ágætra forseta Alþingis sem hafa lagt sig fram um að reyna að greiða hér fyrir og skipuleggja störfin. En af ástæðum sem eru okkur hv. þdm. væntanlega öllum kunnar hefur þeim ekki verið mjög létt um vik einfaldlega vegna þess að hæstv. ríkisstjórn hefur ekki fram á síðustu daga, að því er virðist, vitað sjálf hvaða málum eða hve mörgum hún hygðist koma hér í gegn. Það er erfitt um vik fyrir forseta og formenn þingflokka að skipuleggja störf Alþingis, þó að þeir fundi og hittist reglulega og er ekkert nema gott um það að segja, þegar svo óljóst er hvaða verkefni bíða þingsins. Síðan er náttúrlega ekki hægt annað en taka undir þær óskir sem hér hafa verið bornar fram, að þessum fundi verði frestað eða að a.m.k. svo fljótt sem við má koma verði kallaðir saman þingflokksfundir og það rækilega rætt hvort þetta eigi að verða viðvarandi ástand dag eftir dag að stjórnarliðar séu jafnvel í bullandi minni hluta þegar á að fara að greiða fyrir málum með því að veita afbrigði fram hjá venjulegri málsmeðferð. Hér voru atkvæði á þá lund að 12 stjórnarandstæðingar en 11 stjórnarliðar að meðtöldum forseta og skrifurum voru til að taka þátt í atkvæðagreiðslu um afbrigði. Nú telst mér lauslega til að hafi fjölgað um tvo stjórnarsinna þannig að þeir merja þá meiri hluta núna. En þetta, virðulegur forseti, gengur auðvitað ekki eða er stjórnin e.t.v. búin að missa meiri hluta sinn? Þá þarf nú að fara að huga að ýmsu hér á virðulegu Alþingi á þeim tíma sem eftir er fram að jólum.