20.10.1987
Sameinað þing: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í B-deild Alþingistíðinda. (115)
11. mál, kjarnorkuvopnalaust Ísland
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir svör hans og ótvíræða yfirlýsingu þess efnis að á Íslandi verði ekki staðsett kjarnavopn, hvorki á friðar- né ófriðartímum. Þetta er hin mikilsverðasta yfirlýsing af hálfu hæstv. ráðherra sem tekur af tvímæli um stefnu hans og væntanlega stefnu ríkisstjórnarinnar í heild varðandi þetta efni. Hún þýðir auðvitað í reynd að þeim aðilum sem hafa kjarnorkuvopn undir höndum á vegum Atlantshafsbandalagsins, svo ekki sé nú talað um gagnaðilann, er samkvæmt vilja íslenskra stjórnvalda óheimilt að gera áætlanir um, og móta sínar hernaðaráætlanir í þá veru, að flytja kjarnavopn til Íslands. Það sem máli skiptir er auðvitað að áætlanirnar, hernaðaráætlanirnar séu ekki við það miðaðar vegna þess að viðkomandi ríki hefur tekið af öll tvímæli um að það muni ekki heimila flutning kjarnavopna til landsins þó að um ófriðartíma sé að ræða.
Ég tel að það sé í rauninni söguleg yfirlýsing sem hér hefur fallið því að eins og ég rakti áðan þá voru vöflur, svo ekki sé meira sagt, í tíð hæstv. fyrrv. ríkisstjórnar og þeirra ráðherra, sem fóru þá með utanríkismál, varðandi þessi efni.