08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1606 í B-deild Alþingistíðinda. (1153)
40. mál, Útflutningsráð Íslands
Steingrímur J. Sigfússon:
Virðulegur forseti. Hér er tekið fyrir til þriðju og ef að líkum lætur síðustu umræðu seinna frv. af tveimur sem tengist þeirri kerfisbreytingu að flytja útflutningsviðskipti til utanrrn. og sem fyrr þegar við ræddum þetta mál við 2. umr. er hæstv. utanrrh., sem á að taka við þessum málaflokki, fjarstaddur. Ég vil spyrja virðulegan forseta hvort vitneskja liggi fyrir um það hvenær hæstv. utanrrh. mætir hér til starfa á hinu háa Alþingi, hvort það verður t.d. á morgun og hvort liggi þá á að afgreiða bæði þessi mál í burtu frá deildinni, hvort ekki sé mögulegt að fresta þriðju og síðustu umræðu um þetta mál í ljósi þess að það kann að vera og verður væntanlega, ef að líkum lætur, síðasta tækifæri deildarmanna til að ræða þessa kerfisbreytingu í tengslum við afgreiðslu þessara frv. Það væri að mínu mati æskilegt ef hæstv. utanrrh. gæti orðið viðstaddur hér áður en málið færi frá deildinni til að svara spurningum sem bornar voru upp í gær og aðrir hæstv. ráðherrar reyndu vissulega að svara en sem skiljanlegt er er það fyrst og fremst í verkahring hæstv. utanrrh. sem á að taka við þessum málaflokki. Hann er auk þess kunnur áhugamaður um það að þessi kerfisbreyting nái fram að ganga. Þar af leiðandi væri það æskilegt að hann gæti verið hér viðstaddur og ég ber fram ósk þar um og spyr hæstv. forseta hvort möguleiki sé á því að verða við henni.